Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 59
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
59
Júní / June Júlí / July Ágúst / August Sept. / Sept. Okt. / Oct.
N=9 N=71 N=156 N=55 N=353
Júní / June Júlí / July Ágúst / August Sept. / Sept. Okt. / Oct.
N=5 N=49 N=97 N=51 N=340
%
k
ve
n
flu
g
u
r
/
%
f
e
m
a
le
fl
ie
s
%
k
ve
n
flu
g
n
a
m
eð
f
an
g
i /
%
f
e
m
a
le
g
ra
vi
d
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
50
40
30
20
10
0
Ásætur
Engar naglýs fundust á snípuludd-
unum eða í geymsluvökva glasanna.
Hins vegar fundust kláðamítlar á 181
flugu. Mítlarnir voru af þremur teg-
undum, M. borealis, P. pari og M. avus.
Nánar um þessar ásætur:
Myialges borealis
Samtals voru 158 flugur smitaðar af M.
borealis (5. mynd), smittíðnin var 24,4%
(95% öryggismörk 21,2–27,8%, n = 648)
og meðalsmitmagn var 11,0 mítlar á
sýkta flugu (95% öryggismörk 9,7–12,5).
Alls fundust 1.730 mítlar á þessum
flugum, allt fullorðin kvendýr, og voru
þeir fastir við afturbol flugnanna.
Mikill munur var á smittíðni og með-
alsmitmagni á milli mánaða (2. tafla).
Engin snípuludda fannst smituð í júní. Í
júlí voru 2,8% flugnanna smitaðar, smit-
hlutfallið hækkaði í 35,4% í ágúst, var í
hámarki í september, 90,9%, en féll á ný
í október í 13,9%. Meðalsmitmagn var
5,5 og 6,4 mítlar á sýkta flugu í júlí og
ágúst en tvisvar til þrisvar sinnum hærra
í september (15,3 mítlar) og október
(12,2 mítlar; 2. tafla). Mesti fjöldi M.
borealis á snípuluddu var 48 mítlar, og
samtals voru 23 flugur með fleiri en 20
mítla. Sýktu flugurnar fundust á fjórum
tegundum hýsla, rjúpu (n = 151), fálka (n
= 5), smyrli (n = 1), og skógarþresti (n =
1). Engin egg fundust umhverfis kven-
dýr M. borealis á 13 flugum frá júlí og
ágúst. Þessar flugur höfðu samtals 27
mítla. Egg voru umhverfis öll kvendýr
M. borealis frá september og október.
Flugur sem setnar voru mörgum mítlum
báru hundruð eggja.
Promyialges pari
Alls fundust 25 snípuluddur smit-
aðar af P. pari (6. mynd). Þessir mítlar
festa sig neðan á vængi flugunnar og
nota króka á framfótum til að krækja
yfir æð í vængnum. Þar hanga þeir og
var auðvelt að losa þá. Í tveimur til-
vikum voru P. pari-mítlar á M. borealis-
smituðum flugum, annars voru þeir
einir. Smittíðni var 4,3% (95% öryggis-
3. mynd. Kynjahlutföll (±95% öryggismörk) snípuluddu á Íslandi skipt
eftir mánuðum. Flugunum (n=644) var safnað 1999–2011. – Sex
ratio (±95% confidence limits) of the louse fly Ornithomya chloropus
according to collection month. Specimens (n=644) were collected in
Iceland 1999–2011.
4. mynd. Mánaðarleg hlutföll (±95% öryggismörk) snípuluddu-kven-
flugna (n=542) með nær fullþroskaðar lirfur. Flugunum var safnað á
Íslandi 1999–2011. – Monthly proportions ±95% confidence limits of
Ornithomya chloropus females (n=542) with almost fully developed
larvae. Specimens were collected in Iceland 1999–2011.
5. mynd. Lúsflugan snípuludda og húðmítillinn Myialges bor-
ealis. A. Fullorðin snípuludda með fimm áfasta M. borealis-
mítla á afturbol (örvar). B. Ungt kvendýr M. borealis-mítils
safnað á rjúpu (Lagopus muta). Á þessu stigi tengjast mítl-
arnir snípuluddum. C. Fullþroskað kvendýr M. borealis-mítils
plokkað af afturbol snípuluddu. Egg sjáanlegt í afturbolnum,
framlimirnir ummyndaðir til festingar við fluguna. – The hippo-
boschid fly Ornithomya chloropus and the skin mite Myialges
borealis. A. Adult fly with five M. borealis mites attached to
the hind body (arrows). B. Young M. borealis female from
the plumage of Rock Ptarmigan L. muta ready to attach to
a louse fly. C. Gravid M. borealis female removed from the
abdomen of O. chloropus. Anchor-formed forelimbs enable
the mite to attach to the fly. Ljósm./Photo: Karl Skírnisson.