Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 69

Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 69
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 69 þræðir að steinum, beltið verður ljós- grænt meðan það nær vætu, síðan hvítt og hverfur síðsumars. Þá koma brúnleitir kísilþörungar í staðinn í vatnsborðinu. Minna hefur borið á ullþræðisbeltinu síðan vatni úr Jökulsá á Dal var veitt í fljótið haustið 2007 og jökulgrugg jókst stórlega. Sumarið 2020 sást það við Droplaugarstaði um miðjan ágúst. Árin 2006 og 2007 fór fram rannsókn á kísilþörungum og smádýrum í Leg- inum, og stóð Jón S. Ólafsson á Veiði- málastofnun fyrir henni. Aðrir þörungar voru ekki greindir. Skýrsla um rann- sóknina kom út í maí 2013.19 Í lokakafla hennar er viðurkennd nauðsyn þess að skoða og greina grænþörunga, „hlutur þeirra hljóti að vera verulegur í heildar- framleiðni í Leginum á þeim tíma sem þeir eru í blóma“. Rannsóknin var endur- tekin 2011–2012 til að fá samanburð eftir breytingu Lagarins. Þá urðu grænþör- ungar líka útundan, en niðurstöður hafa ekki birst þegar þetta er ritað. Selfljót á Héraði: Hinn 31. júlí 2002 skoðaði ég gróður í Selfljóti við bæinn Klúku í Hjaltastaðaþinghá. Fljótið rennur þar í stórum sveigum um marflata sléttu sem jökulfljótin hafa myndað fyrir botni Héraðsflóa, og er næstum straumlaust. Þarna eru tættur á nesi sem kallast Arnar- bæli, sem sumir telja af fornum kaupstað, og hafi þangað verið skipgengt. Á stór- straumsflóði getur sjór borist inn í lónið Unaós, sem Selfljót mynnir í, og jafnvel allt að Klúku. Þarna eru leirur meðfram Selfljóti, með leðju- og sandbotni, sem voru alþaktar lófæti (Hippuris vulgaris) og slönguþörungi (Vaucheria sp.) er mynd- aði þétta og samofna breiðu sem víða var á þurru, dökkgræna á yfirborði en glæra eða ryðlita neðantil. Minnist ég ekki að hafa séð svo mikið af þessum þör- ungi fyrr. Ekki reyndist unnt að greina tegundina í því sýni sem tekið var. Í grunnu vatni austar í fljótinu taka við breiður af kransþörungi, Nitella opaca C. Agardh, með ríkulegum, rauðum frjóhirslum. Austan við nesið með rústunum er fljótið örgrunnt (10–30 cm), með föstum ryðlitum sandbotni og dálitlum straumi. Þar var botninn þakinn gulgrænu, ull- kenndu slýi sem myndaði nokkurra metra langar dræsur. Þegar vaðið var út í þessa breiðu vafðist slýið um fætur manns, en var þó furðu seigt og slitn- aði ekki. Aldrei hafði ég séð neitt því- líkt áður. Við skoðun í smásjá reyndist það vera einhver tegund af Ulothrix. Þræðirnir voru gulgrænir, ógreindir, 19–22,5 µm á breidd, og lengd frumna 25–40 µm, oftast kringum 30 µm. Grænuberi beltislaga, oftast um miðbik frumu. Frumuveggir nokkuð þykkir og lagskiptir, þverveggir oftast linsulaga, brúnir að lit. Þræðirnir voru þaktir örfínum staflaga bakteríum, líkt og þeir væru hærðir, einnig sáust kylfulaga blá- þörungar á nokkrum þráðum. Sumir voru þaktir gulu leirklístri, sem líklega veldur mestu um lit slýsins. Þessi lýsing passar einna best við Ulothrix aequalis, sem ekki hefur áður verið skráður hér- lendis. Ef það er rétt hafa allar fimm tegundir Bretlands fundist hér. Að lokum þakka ég Gunnari Steini Jónssyni, Reykjavík, fyrir myndir og yfirlestur. Helgi Hallgrímsson (f. 1935) er líffræðingur að mennt. Helgi var forstöðumaður Náttúrugripasafnsins á Ak- ureyri í aldarfjórðung og ritstjóri Týlis – tímarits um náttúrufræði og náttúruvernd – í 15 ár. Hann hefur mest fengist við rannsóknir á íslenskum sveppum og vatnalífi og ritað bækur um þau efni; Veröldina í vatninu (1979, 1980), Sveppabókina (2000) og Vallarstjörnur, einkennisplöntur Austurlands (2017) auk tveggja bóka um heimahaga sína: Lagarfljót (2005) og Fljótsdal (2016). Helgi er búsettur á Egilsstöðum og fæst við ritstörf og grúsk. UM HÖFUNDINN HEIMILDIR PÓST- OG NETFANG HÖFUNDAR / AUTHOR'S ADDRESS Helgi Hallgrímsson Lagarási 2 700 Egilsstöðum hhall@simnet.is 1. Broady, P.A. 1978. The terrestrial algae of Glerárdalur, Akureyri, Iceland. Acta Botanica Islandica 5. 3–60. 2. Oddur J. Hjaltalín 1830. Íslenzk grasafræði. Hið íslenska bókmenntafélag, Kaupmannahöfn. 310 bls. 3. Helgi Hallgrímsson 1979. Veröldin í vatninu. Askur, Reykjavík. 216 bls. 4. Helgi Hallgrímsson 2007. Þörungatal. Skrá yfir vatna- og landþörunga á Íslandi. Náttúrufræðistofnun (fjölrit nr. 48), Reykjavík. 94+2 bls. 5. Gunnar Steinn Jónsson 1992. Photosynthesis and production of epilithic algal communites in Thingvallavatn. Bls. 222–240 í: Ecology of oligotrophic, subarctic Thingvallavatn (ritstj. Pétur M. Jónasson). Fræðafélagið, Kaupmannahöfn. 6. John, D.M., Whitton, B.A. & Brook, A.J. (ritstj.) 2002. The freshwater algal flora of the British Isles. Cambridge University Press, Cambridge. 702 bls. 7. Smith, G.M. 1950. The fresh-water algae of the United States. New York 1950. 720 bls. 8. Sigurður Jónsson og Karl Gunnarsson 1978. Botnþörungar í sjó við Ísland. Greiningalykill. [Hafrannsókastofnun, Reykjavík]. 9. Rueness, J. 1977. Norsk algeflora. Universitetsforlaget, Ósló 1977. 10. Wikipedia. Ulothrix. Skoðað 16. október 2020. Slóð: https://en.wikipedia.org/ wiki/Ulothrix 11. Hariot, H.P. 1893. Contribution à l'étude des algues d'eau douce d'Islande. Journal de botanique VII. 313–318. 12. Belloc, E. 1894. La flore algologique d'eau douce de l´Islande. Association fran- çaise pour l'avancement des sciences fusionné avec l´Association scientifique de France. Congrès de Caen. 559–570. 13. Sigurður Pétursson 1948. Íslenzkir vatnaþörungar. Náttúrufræðingurinn 18(1). 1–8. 14. Kristín Aðalsteinsdóttir 1987. Líf í ám og lækjum á Akureyri. Náttúrugripasafnið á Akureyri (fjölrit nr. 14), Akureyri. 26 bls. 15. Gunnar Steinn Jónsson 1980. Benthiske alger i den islandske sø Þingvallavatn. Cand. scient.-ritgerð við Hafnarháskóla. Handrit. 73 bls. 22 töflur, 16 myndir. 16. Starmühlner, F. 1969. Beiträge zur Kenntis der Biozönosen isländischer Thermalgewässer. Sitzungsberichte der Akademie der Wissenschaften matem- atich-naturwissenschaftliche Klasse 178. 83–173. 17. Helgi Hallgrímsson 1973. Rannsóknir á svifi í Mývatni og Laxá 1970–71. Nátt- úrugripasafnið á Akureyri, Akureyri. 110 bls. 16 myndasíður og 12 töflusíður. 18. Helgi Hallgrímsson 2005. Lagarfljót: Mesta vatnsfall Íslands. Skrudda, Reykja- vík. 414 bls. 19. Iris Hansen, Eydís Njarðardóttir, Finnur Ingimarsson, Haraldur R. Ingvarsson og Jón S. Ólafsson 2013. Kísilþörungar og smádýr í Lagarfljóti 2006–2007. Veiði- málastofnun, Landsvirkjun og Náttúrufræðistofa Kópavogs. 76 bls.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.