Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 71

Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 71
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 71 Dýraríkið er greinargott yfirlit á íslensku um fjölbreytni allra dýra jarðar, samið handa fróðleiksfúsum almenningi. Efnistökin eru að ýmsu leyti áþekk því sem tíðkast um samskonar yfirlitsrit á erlendum málum. Fyrstu þrír bókarkafl- arnir, 11% bókarinnar, er almennur inn- gangur að dýrafræði, en næstu 13 kaflar, 89% bókarinnar, fjalla um sérkenni og breytileika hinna ýmsu dýrafylkinga. Í 1. kafla er stutt ágrip af sögu dýra- fræðinnar og helstu viðfangsefnum greinarinnar, svo sem upprunaflokkun, hegðun dýra, lífsháttum, vistfræði og útbreiðslu. Í 2. kafla eru rakin þau sér- kenni sem öllum dýrum eru sameiginleg og því sem aðgreinir þau frá frumdýrum, sveppum og plöntum. Sagt er frá fóstur- þroskun dýra, ólíkum líkamsgerðum og því markverðasta um dýrasteingervinga og þróun lífs í jarðsögunni. Þriðji kaflinn heitir Lífsstörf og líkamsgerð, og segir þar frá því hversu breytileg hin ýmsu líf- færakerfi geta verið meðal ólíkra dýra- fylkinga, þótt þau leysi af hendi sömu lífsstörfin við næringarnám, meltingu, öndun, skynjun, hreyfingu, æxlun, úr- gangslosun og við vatns- og saltjafnvægi. Í 2. kafla er undir fyrirsögninni Hefð- bundin flokkunarþrep fjallað um þró- unartengsl helstu meginklasa eða fylk- inga dýra og nafngiftir hæstu flokkunar- þrepa. Á bls. 60 segir að „róttækustu flokkunarfræðingarnir, sem stefna að því að draga allan lífheiminn í dilka út frá þróunarskyldleika, hafa lagt af öll heiti mishárra þrepa og nota í þeirra stað eitt samheiti, cladus eða klasa, sem tekur jafnt til afbrigða innan tegundar sem fylkinga eða yfirfylkinga dýraríkis- ins“. Hér er sennilega vísað til tilraunar sem var fyrst reynd árið 1984 um að innleiða nýtt regluverk (PhyloCode) um nafngiftir allra flokkunarheilda, en þó með þeirri undantekningu að ekkert yrði hróflað við nafngiftum tegunda; um þær skyldi áfram notað tvínafna- kerfi Linnés. Þetta nýja kerfi náði aldrei verulegri útbreiðslu og á sér nú fáa fylgj- endur. Nánast allir dýrafræðingar eru sammála um að fylgja alþjóðlegu reglu- verki um nafngiftir allra lægstu flokk- unarheildanna (e. International Code of Zoological Nomenclature), en það gildir aðeins um tegundir, ættkvíslir og ættir. Kerfi þetta var tekið upp árið 1830 og hefur síðan verið þróað og betrumbætt. Markmiðið er eingöngu tæknilegt, að tryggja alþjóðlegan stöðugleika og samræmi í vísindaheitum allra lægstu flokkunarheildanna og afstýra glundroða sem annars mundi skapast í nafngiftunum. Um nafngiftir flokk- unarheilda á „hærri stigum“ eða „stærri hópa“ ofan við ættir gildir fremur frjáls- legt samkomulag, enda eru stærstu flokkunarheildirnar margfalt færri. Lítil þörf er á að hafa sérstakt regluverk um heiti á öllum þeim greinamótum sem birtast á ótal upprunaritum sem menn keppast við að birta í fagtímaritum. Hins vegar hafa ákveðnir „dýrahópar“ eða „greinamót“ staðist ítrekaðar próf- anir sem greinaklasar á upprunatrjám. Þessar stærstu flokkunarheildir hafa því í tímans rás öðlast sérstök heiti og löng hefð er fyrir að nefna þessa hópa „fylk- ingar“. Flokkunarstigið sem slíkt hefur þó enga líffræðilega merkingu umfram það að tengja saman upprunaskyldar tegundir sem standa nálægt rótum þróunartrésins. Viðteknum aðferðum við uppruna- flokkun (e. cladism; cladistics) á megin- klösum vefdýra eru gerð ágæt skil í inngangsköflunum þremur, enda er það sú aðferð sem nú er notuð af megin- þorra þeirra sem fást við flokkun dýra og annarra lífvera. Þó gætir nokkurrar einföldunar þegar eldri aðferðir í flokk- unarfræði eru nefndar einu nafni „hefð- bundin flokkun“. Frá því um 1950 hefur gerólíkum kenningakerfum verið beitt við að leiða líkur að skyldleika tegunda- hópa. Þar ber hæst svonefnda svipgerða- flokkun (e. phenetics) og nýflokkun (e. gradism; the new systematics) sem voru allútbreidd kenningakerfi fram til um 1980–1990 en eru nú að mestu aflögð. Örnólfur gerir þó ágæta grein fyrir því að enn er margt óljóst um innbyrðis skyld- leika „fylkinganna“ og lýsir því hvernig myndin verður sífellt skýrari, einkum á síðustu árum þegar heil erfðamengi tegunda eru nýtt við upprunaflokkun (e. phylogenomics). Slíkar skyldleika- rannsóknir hafa afhjúpað áður óþekkta greinaklasa sem vísa til sameiginlegs uppruna nokkurra fylkinga, og hafa þær í kjölfarið öðlast sérstök heiti, einkum ef greinaklasinn hefur staðist ítrekaðar prófanir. Sérstaða upprunaflokkunar byggist á því nota aðeins einklasa hópa (e. monophyletic groups), og er um leið Örnólfur Thorlacius (1931–2017).

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.