Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 76

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 76
Náttúrufræðingurinn 76 FÉLAGSGJÖLD Allir geta orðið félagar í Hinu íslenska náttúrufræðifé- lagi og hafa félagsgjöld haldist óbreytt frá árinu 2013. Inni- falin er áskrift að tímaritinu Náttúrufræðingnum. Er það skoðun stjórnar að í félagsaðild felist ekki síst stuðningur við starf félagsins og útgáfu þess. Ákveðið hefur verið að halda árgjaldinu óbreyttu áfram, en það eru litlar 483 krónur á mánuði fyrir einstaklinga, eða 5.800 krónur á ári. Hjón greiða 566 krónur á mánuði, eða 6.800 krónur á ári. Fyrir stúdenta er mánaðarleg upphæð 333 krónur, eða 4.000 krónur á ári. Eru þetta smáar upphæðir þegar þeim er skipt niður á mánuði, og er hægt að útbúa greiðslukortasamning til að létta á byrðinni ef þess er óskað. Stjórn hefur rætt um að stofnanir og fyrirtæki greiði hærri áskriftargjöld en almennir félagar. Sú umræða heldur áfram og er fyrirhugað að leggjast yfir þau mál á komandi starfsári. RITSTJÓRN Hlutverk ritstjórnar er að velja efni til birtingar í Náttúru- fræðingnum og tryggja að kröfum um gæði og framsetningu efnisins sé fylgt. Að minnsta kosti tveir óháðir fræðimenn lesa allt efni sem berst til ritstjórnar. Þeir geta gert athugasemdir og ábendingar um úrbætur sem höfundar eru beðnir að taka afstöðu til og lagfæra eftir þörfum áður en efnið er að endingu samþykkt til birtingar. Í ritstjórn situr fjölbreyttur hópur sjálfboðaliða sem valinn er af stjórn félagsins. Ritstjórn er nú þannig skipuð: Droplaug Ólafsdóttir, líffræðingur, formaður ritstjórnar, Esther Ruth Guðmundsdóttir, jarðfræðingur, Hlynur Óskarsson, vistfræðingur, Hrefna Sigurjónsdóttir, líffræðingur, fulltrúi stjórnar HÍN, Sindri Gíslason, sjávarlíffræðingur, Snorri Baldursson, líffræðingur, Tómas Grétar Gunnarsson, dýravistfræðingur, Þóroddur F. Þóroddsson, jarðfræðingur. Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur, er rit- stjóri tímaritsins. Hún vinnur með ritstjórn og fylgir eftir ákvörðunum hennar. Öllu þessu fólki er þakkað fyrir framlag sitt. Án þeirra gætum við ekki státað af veglegasta fagtímariti um náttúrufræði sem gefið er út á landinu. Þess ber að geta að ritstjórnarmenn fá enga umbun fyrir sitt framlag aðra en gleðina yfir því að taka þátt í að glæða áhuga og auka þekkingu landans á málefnum náttúrunnar. Þau eiga heiður skilinn fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins og landsmanna allra. FAGHÓPAR Í gegnum tíðina hafa starfað ýmsir faghópar innan raða Hins íslenska náttúrufræðifélags. Stjórn hefur rætt hvort ekki sé upplagt að taka upp slíkt starf, meðal annars til að auka möguleika félaga á að vera virkir þátttakendur á sínu áhugasviði. Eins og sást í aðalfundarboði er tillaga stjórnar um lagabreytingar þess eðlis að á aðalfundi séu formenn fag- hópa kosnir um leið og stjórn, skv. 7 gr. lið c í lögum félagsins. Hugmyndin er að faghópar vinni sjálfstætt en starf þeirra sé í samræmi við lög félagsins. Hver faghópur eigi sér málsvara (formann) sem er kosinn á aðalfundi, hann sé tengiliður við stjórn og ábyrgur fyrir hópnum. Á síðasta starfsári ákvað stjórn, með ánægju, að taka opnum örmum starfsemi sem fram til þessa hefur fallið undir Flóru- vini, samstarfshóp sjálfboðaliða um rannsóknir og verndun á íslensku flórunni. Hópinn stofnaði Hörður Kristinsson árið 1998 og var markmiðið „að stuðla að áhuga á íslensku flórunni meðal almennings, afla upplýsinga um plöntur til að bæta við þekkingu okkar á útbreiðslu þeirra í landinu, og aðstoða aðra flóruvini við greiningar á plöntum“. Þessi markmið eru í fullu samræmi við lög HÍN þar sem segir að tilgangur félagsins sé að efla íslensk náttúruvísindi, glæða áhuga og auka þekkingu manna á öllu sem snertir náttúrufræði. Í samræmi við lögin er því tilgangur deildar Flóruvina að glæða áhuga og auka þekk- ingu manna á flóru Íslands. Flóruvinir eiga sitt svæði á heima- síðu félagsins, og er slóðin https://hin.is/floruvinir/. Spendýrafélag Íslands var lagt niður síðastliðið haust og lýstu félagsmenn eindregnum vilja til að ganga til liðs við HÍN sem faghópur. Við fögnum þeim áformum og bjóðum nýja félaga velkomna til liðs við félagið. Spendýrahópurinn á eftir að marka sér stefnu og velja sér formann en við hlökkum til að sjá hvað verður brallað á þeim vettvangi. FRÆÐSLUERINDI Eins og áður var getið var að venju haldið fræðsluerindi fyrir ársfund félagsins í febrúar 2020. Ekki grunaði okkur þá að þetta yrði eini viðburðurinn sem haldinn yrði á vegum félags- ins þetta árið. Fyrir vikið er það eftirminnilegra en ella, ekki síst þar sem jörð tók að skjálfa á ný nú í aðdraganda þessa aðalfundar. Hér er ágrip af erindi Þóru Bjargar Andrésdóttur, Ef gýs á Reykjanesskaga, hvar eru líklegustu upptakasvæðin?: Ísland er mjög eldvirkt, eldgos eru tíð og er eldvirknin tengd stöðu landsins á flekaskilum og heitum reiti undir landinu. Langur tími getur þó liðið á milli eldgosa og því líklegt að afleiðingar margra þeirra séu ekki lengur í minni manna. Eldgos í sumum eldfjallakerfum áttu sér stað fyrir tíma vökt- unar og hafa fyrirboðar þeirra eldgosa og eldgosin sjálf því ekki verið rannsökuð með nútímatækni. Á Reykjanesskaga eru fimm virk eldstöðvakerfi þar sem eldvirkni kemur í hrinum, en síð- ustu eldgosahrinu lauk með Reykjaneseldum 1210–1240. Til þess að meta eldgosavá eldvirkra svæða er nauðsyn- legt að hafa upplýsingar um fyrri virkni á svæðinu og því er jarðfræðikortlagning fyrsta skrefið í hættumati. Grein- ing á eldgosavá er sérstaklega mikilvæg á svæðum líkt og á Reykjanesskaga þar sem íbúafjöldi er mikill og mikil- vægir innviðir tengja bæi um langa vegalengd. Mat á tjón- næmni Reykjanesskaga með áherslu á líklegustu svæðin þar sem eldgos gætu hafist, ásamt nákvæmara hættumati, var unnið fyrir Reykjanes, vestasta eldgosakerfi Reykjanesskag- ans, sem getur ógnað Grindavík, Vogum og Keflavík ásamt innviðum á svæðinu. Vegna kórónuveirufaraldurs, samkomubanns og sóttvarnar- takmarkana voru sem sé engin önnur fræðsluerindi haldin eða -ferðir farnar á árinu 2020. Stjórn lagðist yfir möguleikana og var reglulega áætlað að halda af stað með eitthvað slíkt, sem ekki þótti ráðlegt að framkvæma þegar þar að kom.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.