Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 79
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
79
MÁLEFNI NÁTTÚRUMINJASAFNSINS
Hin mikla barátta um lausn á húsnæðisvanda Náttúru-
minjasafnsins hefur ávallt verið viðamesta málefni HÍN.
Þrátt fyrir að árið 2020 hafi verið erfitt í ljósi heims-
faraldurs af völdum kórónuveirunnar má segja að árið
hafi verið eitt það besta í sögu Náttúruminjasafnsins, að
minnsta kosti hvað varðar lausn á framtíðarhúsnæði fyrir
starfsemi þess. Af þessu tilefni gripu stjórnarmenn HÍN
til pennans og rituðu grein sem birtist í Fréttablaðinu 3.
nóvember og bar heitið „Glæsilegt náttúruhús á Nesinu“.
Þar segir meðal annars:
Stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags fagnar löngu tíma-
bærum áformum um uppbyggingu Náttúruminjasafns
Íslands á Seltjarnarnesi. Áformin voru kynnt í greinar-
gerð starfshóps á vegum Lilju Alfreðsdóttur mennta- og
menningarmálaráðherra og má finna í fjárlagafrumvarpi
næsta árs, með 300 m.kr. framlagi til undirbúningsvinnu
á verkefninu … Náttúruminjasafn Íslands er skilgetið
afkvæmi Hins íslenska náttúrufræðifélags, eins elsta
starfandi félags landsins. Í stofnlögum þess frá 1889 segir:
„Aðaltilgangur félagsins er sá, að koma upp sem fullkomn-
ustu náttúrugripasafni á Íslandi, sem sé eign landsins og
geymt í Reykjavík.“ … Ráðgert er að ljúka við lagfæringar
á húsnæðinu á næstu tveimur árum og gera það sam-
tímis tilbúið undir starfsemi og sýningarhald Náttúru-
minjasafnsins. Staðsetning Náttúruhúss á Seltjarnarnesi
er einkar hentug: í faðmi náttúrunnar, í miklu nábýli við
sjávarsíðuna og hið margbreytilega lífríki sem þar er
að finna, auk þess sem útsýni frá safninu er stórbrotið
bæði til suðurs og norðurs … HÍN fagnar að sjálfsögðu
þessum mikla áfanga og við þökkum ríkisstjórninni en
þá einkum Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra, og
ekki síður Seltjarnarnesbæ og íbúum þar fyrir að standa
með þessum framförum … Hið íslenska náttúrufræðifélag
hvetur ráðherra mennta- og menningarmála, ríkisstjórn-
ina og Alþingi allt til dáða, enda um brýnt þjóðhagsmál
að ræða sem jafnt núlifandi einstaklingar og komandi
kynslóðir munu njóta góðs af. Af öllum gögnum máls-
ins að að dæma mun þjóðin loks eignast glæsilegt höf-
uðsafn í náttúrufræðum. Það væri í anda þess sem stór-
huga náttúrufræðingar stefndu að fyrir rúmum 130 árum.
Látum þennan draum verða að veruleika í þetta sinn, við
eigum það öll skilið.
Þótt baráttan kunni að virðast á enda er mikilvægt að sofna
ekki á verðinum, enda mikið eftir. Kostnaðurinn við full-
búið safn með þeirri starfsemi sem þar fer fram verður lík-
lega yfir einn og hálfur milljarður króna, miðað við áætl-
anir sem lagðar hafa verið fram og hægt er að finna á vef
Náttúruminjasafnsins.
Við félagar í HÍN verðum ekki í rónni fyrr en okkur verður
boðið til sýningar á Nesinu og hlökkum óskaplega til að sjá
safnið tilbúið. Hér eftir sem hingað til styðjum við því áfram
við bakið á höfuðsafni Íslendinga í náttúrufræðum og von-
umst til að fylgt verði eftir áformum um að tryggja nauðsyn-
legt fjármagn til fullbúins Náttúruhúss á Nesinu. Þessu máli
þarf að ljúka í eitt skipti fyrir öll.
LOKAORÐ
Þrátt fyrir heimsfaraldur og samkomubann hefur ekki verið
nein ládeyða í félaginu okkar á síðastliðnu starfsári. Við
trúum því statt og stöðugt að þörfin sé enn brýn fyrir félags-
skap eins og okkar. Eins og fram hefur komið eru málefni
Náttúruminjasafnsins í góðum farvegi en brýnt að standa þétt
við bakið á því verkefni þar til yfir lýkur, enda aðeins hluti
Nes er ysta jörðin á Seltjarnarnesi og skartar fjölbreyttu náttúrufari. Horft til suðvesturs yfir
friðlandið Bakkatjörn. Nesstofa til vinstri. Ljósmynd: Vigfús Birgisson.