Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 80

Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 80
Náttúrufræðingurinn 80 áætlaðs kostnaðar í hendi. Ákvarðanir stjórnvalda um Nátt- úruhús á Seltjarnarnesi gefa tilefni til bjartsýni og benda til að loks fáist farsæl lausn á langtíma ólestri í húsnæðismálum safnsins. Útgáfumálin standa á tímamótum, bæði vegna stórafmælis en einnig vegna breyttra áherslna í notkun og aðgengi að fræðsluefni. Langflestir leita sér nú fanga á netmiðlum og ef félagið ætlar að eignast nýja félaga verðum við að vera tilbúin að birta útgefið efni á þeim vettvangi. Nú þegar er allt efni aðgengilegt þremur árum eftir útgáfudag á timarit.is en það þykir mörgum langur tími. Fram hefur komið að árgjöld eru ekki há miðað við það glæsilega tímarit sem fylgir félagsað- ild. Hins vegar fer þeim fjölgandi sem ekki vilja fá tímaritið á pappír og lesa eingöngu rafrænt efni. Að mínu mati þurfum við að fara milliveg og birta efni bæði rafrænt og á pappír. Í framtíðinni yrði svo stefnt að því að allt efni verði öllum aðgengilegt á vefsetri tímaritsins. Þetta kostar fjármagn. Stjórnin þarf að leita allra leiða til að afla þess fjár, og til að byrja með yrði afmarkað efni á vefnum. Við erum þess fullviss að útgáfa félagsins sé þörf og að það sé hagsmunamál allra landsmanna að hægt verði að halda henni áfram af þeirri fag- mennsku sem raun ber vitni hingað til, bæði í óbreyttri mynd og rafrænt. Kórónuveirufaraldurinn hefur orðið til þess að sífellt fleiri viðburðir og verkefni hafa verið leyst rafrænt og með fjar- fundarkerfum. Þetta kemur þó ekki í staðinn fyrir raunveru- legar samkomur og við bindum vonir við að hægt verði að halda nokkrar slíkar á komandi starfsári. Við höfum þó fengið miklar og góðar undirtektir vegna hlaðvarpsins og fáum von- andi fleiri til að koma að því verkefni, bæði efni og vinnslu. Það væri synd að hætta því þótt samkomutakmarkanir leggist af, enda skemmtileg viðbót við verkefni félagsins. Við í stjórn HÍN gerum okkur grein fyrir ábyrgð okkar við að halda uppi starfi í anda markmiða félagsins. Við teljum að með því að taka upp starf faghópa getum við aukið möguleika almennra félaga á að taka virkan þátt í starfi félagsins, á þeim vettvangi sem áhugi og sérþekking nýtur sín best. Til okkar er leitað vegna álits í stórum málum og við getum ekki látið okkar eftir liggja við að svara slíku kalli. Ég hvet félaga til að ganga til liðs við okkur í stjórn og taka að sér verkefni eða viðburði sem væru í anda markmiða félagsins. Þegar öllu er á botninn hvolft skiptir hver einstak- lingur máli í frjálsum félagasamtökum eins og HÍN og hvert og eitt okkar getur lagt sitt af mörkum, öllum til heilla. Þótt kjörnir fulltrúar sitji í stjórn tímabundið er það félagsheildin sem er uppistaðan og engin ástæða til annars en að fagna frumkvæði og hugmyndum frá félögum okkar. Það er hollt að hafa í huga hversu miklu af sínum tíma, og jafnvel fjármunum, einstaklingar hafa varið til að byggja upp grunninn að þessu félagi og halda því starfandi í áranna rás. Fyrir það ber að þakka og við sem nú stöndum í brúnni getum ekki verið eftirbátar þeirra sem héldu starfinu gangandi þrátt fyrir alls konar hremmingar sem hafa dunið á þjóðinni og heimsbyggðinni allri á þessum langa tíma. Við stöndum for- verum okkar framar að mörgu leyti því ekki höfðu þeir sömu tækifæri og við, né aðgang að samfélagsmiðlum eða öðrum þeim leiðum sem nú hafa skapast til að koma hugsjónum sínum á framfæri. Ég horfi bjartsýn til ársins 2021 og hlakka til að vinna áfram að málefnum félagsins, með góða stjórnarmenn og ritstjórn mér við hlið. Megi félagið okkar vaxa og dafna og verða til fyrirmyndar áfram með það markmið „að efla íslensk náttúruvísindi, glæða áhuga og auka þekkingu manna á öllu er snertir náttúrufræði,“ eins og segir í lögum Hins íslenska náttúrufræðifélags. Ester Rut Unnsteinsdóttir, formaður Besta leiðin til að hafa samband við stjórnarmenn er að nota vefformin á vef- setrinu: https://hin.is/hafa-samband/, og fylla í formin eða velja netföng til að senda skilaboð eftir því hvaða málefni brenna á viðkomandi, Netfang félagsins er hin@hin.is og stjórnar stjorn@hin.is. Netföng félagsins Hið íslenska náttúrufræðifélag hefur aðstöðu og lögheimili hjá Náttúru- minjasafni Íslands, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Þar er jafnframt afgreiðsla Náttúrufræðingsins og skrifstofa ritstjóra. Sjá nánar á vefsetri Náttúruminjasafns Íslands: https://nmsi.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.