Þjóðmál - 01.03.2018, Blaðsíða 20
18 ÞJÓÐMÁL Vor 2018
Klemman
Það er þekkt klemma að þegar stjórnvöld
grípa til ráðstafana til að létta undir með ein-
stæðum foreldrum kemur strax upp gagnrýni
um að verið sé að „refsa fólki fyrir að vera í
hjónabandi“. Af svipuðum toga er gagnrýni
um að ríkið „refsi fólki fyrir að vinna“ með því
að skerða bætur vegna atvinnutekna. Það
sem kallað er refsing er hin hliðin á þeirri
viðleitni að hjálpa þeim sem höllustum fæti
standa og geta ekki unnið.
Ég skil vel að kröfur séu uppi um að draga
úr skerðingum í hinum ýmsu kerfum. En á
sama tíma verður að vera ljóst að það þýðir að
minna verður til skiptanna fyrir þá einstaklinga
sem standa veikast og þurfa á öryggisnetinu
að halda. Sömu krónu er ekki eytt tvisvar.
Þá má líka geta þess að skilaboð geta verið
misvísandi. Dæmi um það er að ein lands-
fundarályktun Sjálfstæðisflokksins árið 2015
sagði að ekki skyldi nota virðisaukaskatts-
kerfið til að styðja einstakar atvinnugreinar
(sem felur í sér að allar atvinnugreinar skuli
bera sama virðisaukaskatt) en önnur ályktun
sama landsfundar kvað á um að ekki mætti
leggja auknar álögur á ferðaþjónustuna, sem
auðveldlega má túlka sem andstöðu við að
greinin yrði sett í almennt þrep virðisauka-
skatts. Það varð enda raunin og voru þau
áform lögð til hliðar í nýjum stjórnarsáttmála.
Hér er, enn og aftur, ekki kveðinn upp dómur
um réttmæti hverrar kröfu fyrir sig heldur
aðeins vakin athygli á því að það er ekki alltaf
einfalt að átta sig á því hver hin raunverulega
krafa er, því þær eiga það til að stangast á.
Stöndum saman um markmiðið
Þó að óskir okkar stangist stundum á erum
við flest sammála um grundvallaratriðin. Það
er stefna Sjálfstæðisflokksins að draga úr
skattheimtu og hemja vöxtinn í út gjöldum
ríkisins. Risaskref voru tekin nýlega í þeim
efnum með afnámi vörugjalda og nánast
allra tolla, þökk sé forystu Sjálfstæðis-
flokksins. Þetta er vanmetin aðgerð en hún
var söguleg og bætti lífskjör til muna, sem og
samkeppnishæfni fyrirtækja.
Það er ekki laust við að ég finni fyrir því úr
mörgum áttum að ætlast sé til þess af mér
sem ráðherra að ég freisti þess að auka
útgjöld til málaflokka sem undir mig heyra
sem allra mest. En Ísland er háskattaríki og
við verðum að skapa skilyrði til að draga úr
hlutfalli skattheimtu af landsframleiðslu. Við
erum sammála um að skapa þarf atvinnu-
lífinu samkeppnishæf skilyrði og þar getum
við gert enn betur. Við þurfum að vinda ofan
af tímabundnum skattahækkunum eins fljótt
og auðið er. Og við eigum ekki að ætlast til
þess af ríkinu að það viðhaldi tímabundnum
átaksverkefnum út í hið óendanlega, þótt
ýmsir kunni að verða ósáttir við að þeim sé
hætt.
Höfundur er ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra.
6
Ísland er háskattaríki og við verðum að skapa skilyrði til að draga úr
hlutfalli skattheimtu af landsframleiðslu. Við erum sammála um að skapa
þarf atvinnu lífinu samkeppnishæf skilyrði og þar getum við gert enn betur.