Þjóðmál - 01.03.2018, Síða 49

Þjóðmál - 01.03.2018, Síða 49
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 47 Með lokum kalda stríðsins hurfu lykil- forsendur sem réðu mikilvægi Íslands í þjóðar öryggisstefnu Bandaríkjanna á tuttug- ustu öldinni. Ísland fær ekki sömu stöðu aftur því Rússland er ekki og verður ekki arftaki Sovétríkjanna á hernaðarsviðinu. Hætta á að stórveldi nái ráðandi stöðu á meginlandi Evrópu, líkt og var í heims styrjöldunum og kalda stríðinu, er því ekki til staðar. Hernaðarlegur viðbúnaður Rússa á norður- slóðum á rætur í almennri hernaðarstefnu þeirra, einkum í þeim þætti er lýtur að kjarn- orkuvopnastefnu. Rússneskir eldflaugakaf- bátar í norðurhöfum, en einkum Barentshafi, eru hryggjarstykki í kjarnorkuherafla Rússa og öryggi þeirra er því forgangsverkefni Norðurflotans rússneska. Þessi atriði eru meðal þess sem kemur fram í ritgerð minni Staða Íslands í þjóðar- öryggisstefnu Bandaríkjanna 1917-2017. Ritgerðin er birt í heild sinni á vef mínum en meginniðurstöður hennar eru eftirfarandi: Staða Íslands í þjóðaröryggisstefnu Banda- ríkjanna hefur aðallega ráðist af stórum breytingum á alþjóðakerfinu. Þær hafa varðað uppbyggingu þess og einkum í því efni valdajafnvægið á meginlandi Evrópu. Einnig hefur þróun hernaðartækni haft mikilvæg áhrif á þessa sögu. Á tuttugustu öldinni hófu Bandaríkjamenn þrisvar bein afskipti af öryggismálum í Evrópu. Fyrsta íhlutunin kom í fyrri heims- styrjöld á árinu 1917, þegar útlit var fyrir að Þýskaland sigraði. Slík grundvallarbreyting á uppbyggingu alþjóðakerfisins og valda- jafnvægi á meginlandinu var talin mundu leiða til þess á endanum að vesturhveli jarðar og öryggi Bandaríkjanna yrði ógnað. Sama átti við í síðari heimsstyrjöld þegar fall Frakklands í júní 1940 leiddi til þess að þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna breyttist í grundvallaratriðum. Eftir að Frakkland var úr leik gat Þýskaland ógnað Bretlandi, sótt enn frekar en orðið var út á Atlantshaf og í kjölfarið orðið ógn við vesturhvel. Þótt stjórnmál í Bandaríkjunum kæmu í veg fyrir beina þátttöku þeirra í stríðinu voru útgjöld til hermála margfölduð og sett lög um almenna herkvaðningu. Bandaríkin hófu og haustið 1940 stórfelldan stuðning við Breta með því að senda þeim hergögn og vistir og, örfáum mánuðum síðar, með því að lána þeim í stað þess að krefjast staðgreiðslu fyrir vopn og vistir. Bandaríkjamenn byrjuðu enn fremur að fikra sig inn í átökin á Atlants- hafi sem leiddi til þess meðal annars að bandarískar hersveitir voru sendar til Íslands sumarið 1941. Eftir síðari heimsstyrjöld voru Sovétríkin nálægt því að ná ráðandi stöðu í Evrópu. Þetta leiddi til róttækrar breytingar á stefnu Bandaríkjanna, sem stofnuðu Atlantshafsbandalagið, hófu að halda stóran her á friðartímum og halda úti miklu liði í bandarískum herstöðvum í Evrópu. Markmiðið var að halda aftur af útþenslustefnu Sovétstjórnarinnar og fæla hana frá því að hefja átök við vesturlönd. Þegar kalda stríðinu lauk með hruni kommúnismans og Sovétríkjanna varð aftur grundvallarbreyting, en nú í þá veru að ekki stóð lengur ógn af stórveldi á meginlandinu. Lykilforsendur þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna í kalda stríðinu hurfu. Það leiddi til þess að þau minnkuðu stórlega herlið sitt og umsvif í Evrópu og gerðu róttækar breytingar á stærð og starfsemi Bandaríkjahers að öðru leyti til að laga hann að gerbreyttum aðstæðum. Stórstíg þróun í hernaðartækni hafði og áhrif á þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna á tuttugustu öld. Í síðari heimsstyrjöld gátu langdrægar flugvélar sótt sífellt lengra út á Atlantshafi frá meginlandi Evrópu. Í kalda stríðinu gátu flugvélar og eldflaugar borið kjarnavopn frá Sovétríkjunum norðurleiðina til skotmarka í Norður Ameríku.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.