Þjóðmál - 01.03.2018, Side 54

Þjóðmál - 01.03.2018, Side 54
52 ÞJÓÐMÁL Vor 2018 Árið 1789 skrifaði Benjamin Franklin, einn af stofnendum Bandaríkjanna, bréf til franska eðlisfræðingsins Jean-Baptiste Le Roy þar sem hann lýsti yfir ánægju með nýja stjórnarskrá Bandaríkjanna sem samþykkt hafði verið árið áður. Þar sagði hann að allt útlit væri fyrir að stjórnarskráin yrði varanleg, en þó væri ekkert varanlegt í þessum heimi nema dauðinn og skattar. Franklin var að vísu ekki upphafsmaður þessa orðatiltækis, en það hefur þó óspart verið notað í rúmar tvær aldir. Og það er full ástæða til. Dauðanum þurfum við öll að mæta einhvern tímann og skattar hafa fylgt mannkyninu nær alla tíð. Heimildir sýna að skattar voru innheimtir í Kína til forna, sem og öðrum svæðum í Asíu. Forn-Grikkir, Rómverjar og Egyptar innheimtu skatt af þegnum sínum, sem oftast var nýttur til að standa straum af hernaði og öðrum rekstri hins opinbera. Í flestum tilvikum var um að ræða einhvers konar eignarskatta en Egyptar hófu síðar að innheimta skatt af einstaka vörum, t.d. matarolíu. Skattheimtumenn fóru þá á milli húsa til að tryggja það að almenningur væri að nota alvöru matarolíu, enda bar hún skatt, en ekki eitthvert sull. Þannig að skattaeftirlit er ekki heldur nýtt af nálinni. Í Grikklandi til forna var innheimtur bæði eigna- og neysluskattur á stríðstímum en á friðartímum var skattheimtan lögð niður. Þeir sem ekki áttu gríska móður eða föður þurftu þó að greiða svokallaðan útlendingaskatt ef þeir vildu búa í Aþenu. Sem fyrr segir var skattheimtu ætlað að standa straum af kostnaði sem féll til vegna hernaðar. Vissulega komu faraóar, keisarar og síðar konungar sem beittu hörku við aukna skattheimtu til að kosta tilgangslaus stríðsátök eða aðra drauma en hvað sem því líður hefur ríkisvaldið – í hvaða mynd sem er – beitt þegna sína ákveðinni þvingun við skattheimtu í þúsundir ára. Hugmyndafræði Gísli Freyr Valdórsson Skattagleðin

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.