Þjóðmál - 01.03.2018, Síða 97

Þjóðmál - 01.03.2018, Síða 97
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 95 Sjávarútvegurinn skiptir Íslendinga miklu máli. Í honum er stunduð verðmætasköpun úr dýrmætri endurnýjanlegri auðlind sem er fiskistofnarnir. Greinin er iðulega í sviðsljós- inu og þarf ekki að koma á óvart. Allt þetta þarf vart að rekja fyrir þeim sem á annað borð fylgjast með þjóðfélagsumræðunni. Það var með nokkurri eftirvæntingu að ég opnaði bók Óla Samró og hóf lesturinn. Ég hef lengi saknað þess að til væri svona rit á íslensku þar sem hægt væri að finna upp- lýsingar um fiskveiðistjórnun í hinum ýmsu löndum. Mér hefur oft þótt umfjöllun um sjávarútvegsmál hér á landi of sjálfhverf, að Íslendingar geri of lítið af því að kynna sér og ræða hvernig þessum mikilvægu málum er háttað í öðrum löndum. Þá horfi ég ekki síst til nágrannalanda sem búa við svipaða verk- og þjóðfélagsmenningu og nýta sömu tegundir nytjastofna og við. Höfundinum tekst ágætlega upp í fyrstu þremur köflum bókarinnar, þar sem hann dregur upp mynd af því hvernig og hvers konar rammar hafa verið dregnir upp í umgjörð fiskveiða í heiminum fram á þennan dag. Þetta er almenn umfjöllun um flókin mál. Stefin eru þekkt úr umræðunni þar sem tekist er á um stjórnmálalegar áherslur og stefnur. Útfærslur ríkja og ríkjasambanda á sjávarútvegsstefnu eru mismunandi. Í seinni hluta bókarinnar er síðan tekið til við að lýsa fiskveiðistjórnunarkerfum ein- stakra ríkja og ríkjasambanda sem tekin eru til umfjöllunar. Mér þótti mestur fengur að umfjöllun um tilhögun sjávarútvegsmála í ríkjum Evrópusambandsins, í Færeyjum og í Noregi. Ég saknaði hins vegar þess að fjallað væri um það hvernig málum er háttað í Grænlandi og Rússlandi. Umfjöllunin um Færeyjar og Noreg er gagnleg en hefði að mínu mati mátt vera miklu ítarlegri. Í báðum löndum hafa stjórn- völd að mörgu leyti kosið að fara aðrar leiðir en á Íslandi. Það hefði verið dýrmætt fyrir umræðuna hér á landi að fá enn meiri fróðleik um sjávarútvegsmál í Noregi og Færeyjum í bók af því tagi sem Óli Samró hefur skrifað. Sömuleiðis er fengur að um fjöllun inni um fiskveiðistjórnun Evrópu- sambandsins og annarra landa. Við lestur bókarinnar fannst mér fljótt sem bókin bæri öðrum þræði keim af því að hún væri hugsuð sem kennslubók. Það er að sjálfsögðu enginn ókostur. Svona bók ætti einmitt að nýtast námsfólki vel. Sjávarútvegs- mál eiga það til að vekja heitar tilfinningar og deilur enda hápólitísk í eðli sínu. Óli Samró gætir sín vel á því að greina frá með hlut- lausum hætti. Bók hans er ágætt innlegg í umræðuna svo langt sem hún nær, þótt ég hefði eins og fyrr segir viljað sjá hana ítar- legri. Ég hefði glaðst með 500 síðna doðrant í höndunum því hér er verið að greina frá hlutum sem skipta máli. Eitt er það sem er verulegt lýti á bókinni. Svo er að sjá sem prófarkalestri hafi verið verulega áfátt. Ég hef lesið margar bækur um dagana en enga með jafn mörgum meinlegum prentvillum og í þessari bók. Bókstafir og orð hafa dottið út. Sums staðar er þýðingin og setningaskipan beinlínis klúðursleg. Á nokkrum stöðum er látið hjá líða að þýða færeyska, norska, danska og enska texta yfir á íslensku. Það er vart ofmælt að þetta handrit hefði mátt lesa betur yfir áður en það fór í prentun. Höfundur er fiskifræðingur, framkvæmda- stjóri, ritstjóri og rithöfundur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.