Fréttablaðið - 19.11.2021, Qupperneq 1
gar@frettabladid.is
BYGGINGARIÐNAÐUR „Það er að
verða mánuður sem við höfum
aðeins getað framleitt 30 til 40
prósent af því sem við áætluðum,“
segir Björn Ingi Victorsson, forstjóri
Steypustöðvarinnar, um skort á
sementi hjá fyrirtækinu.
Björn segir að í lok október hafi
myndast skortur á sementi vegna
umframeftirspurnar víða um lönd.
Skip sem komið hafi frá birgi þeirra
í Danmörku, Aalborg Portland, til
Þorlákshafnar á mánudaginn, hafi
fært þeim mun minna sement en
pantað var. Því hafi ekki verið leyst
úr stöðunni. „Mér var sagt að þetta
yrði búið þá en það verður ekki og
ég sé ekki fyrir endann á þessu.
Þetta heldur áfram,“ segir Björn.
Nánar á frettabladid.is
2 2 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 1
Dan Brown er
Íslandsvinur
Menning ➤ 24
fylgir Fréttablaðinu í dag
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Jólablaðið 2021Jólablaðið
2021
SYKURLAUS
HINDBERJA OG
SALTLAKKRÍS
Skjótt skipast veður í lofti og því fengu Reykvíkingar að kynnast í gær. Jörðin var snævi þakin í upphafi dags og því
eflaust margir sem klæddust eftir því en þegar líða tók á daginn var snjórinn horfinn á brott. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sér ekki fyrir endann á sementsskorti
Heilbrigðisráðherra hallast
að ógildingu kosninga. Aðrir
fulltrúar stjórnarflokka vilja
staðfesta kjörbréf.
adalheidur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Línur eru farnar að
skýrast í undirbúningsnefnd kjör-
bréfanefndar þingsins og líkur
aukast á því að nefndin klofni í nið-
urstöðum sínum. Þó ekki á línum
stjórnar og stjórnarandstöðu því
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðis-
ráðherra og þingmaður Vinstri
grænna, er mjög beggja blands í
afstöðu sinni. Heimildir blaðsins
úr nefndinni herma að Svandís hafi
talað mjög fyrir uppkosningu en
aðspurð segist hún hafa talað opið
fyrir báðum niðurstöðum en finn-
ast allt of bratt að hrapa að niður-
stöðu um staðfestingu kjörbréfa.
Á móti kemur að Inga Sæland, for-
maður Flokks fólksins, hefur ekki
legið á skoðun sinni um að byggja
eigi á síðari talningu í Norðvestur-
kjördæmi. Samkvæmt heimildum
blaðsins eru fulltrúar bæði Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
í nefndinni á sömu línu og Inga og
verði einhugur í þessum þremur
f lokkum þegar málið kemur til
atkvæðagreiðslu í þinginu er meiri-
hluti tryggður fyrir staðfestingu
kjörbréfa allra þingmanna, en
f lokkarnir hafa sameiginlega 35
þingmenn.
Líklegt er talið að þingmenn Sam-
fylkingar, Pírata og Viðreisnar muni
kjósa gegn staðfestingu kjörbréfa.
Hvort þingmenn Vinstri grænna
muni fylgja fordæmi Svandísar,
hvorum megin sem hún lendir, er
hins vegar óvíst.
Innan þingf lokka mun allur
gangur vera á því hvort ein sam-
eiginleg lína verði tekin í málinu eða
hvort þingmenn muni kjósa eftir
eigin sannfæringu, óháð afstöðu
félaga sinna.
Ólík sjónarmið eru einnig uppi
meðal þeirra sem vilja ógildingu
vegna ágalla í Norðvesturkjördæmi,
um hvað gera skuli í framhaldinu
og hvort unnt sé að greiða atkvæði í
þinginu sem leiði til endurtekningar
kosninga um land allt. n
Ekki eining milli
stjórnarflokka í
talningarmálinu
Sjálfstæðisflokkurinn,
Framsóknarflokkur-
inn og Flokkur fólks-
ins geta myndað meiri-
hluta um staðfestingu
kjörbréfa.