Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 12

Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Ef þefa á uppi hvert einasta Covid-smit þá mun sá eltingaleik- ur standa æði lengi og skila engu nema viðvarandi höftum. Samein- uðu þjóð- irnar hafa bein og óbein áhrif á líf fólks um allan heim. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is Ekki verður séð að mikið vit sé í því að telja Covid-smit af sama ákafa og gert var áður en þjóðin var að stórum hluta bólusett. Með því að einblína á smittölur er einfaldlega verið að senda þau skilaboð til fólks að bólusetningar skipti sáralitlu máli – sem er vitanlega alls ekki rétt. Ef þefa á uppi hvert einasta Covid-smit þá mun sá eltingaleikur standa æði lengi og skila engu nema viðvarandi höftum. Sóttvarnayfir- völd virðast tilbúin í þann leik, eru jafnvel frekar spennt fyrir honum. Stór hluti almenn- ings er það alls ekki. Það er löngu tímabært að breyta um áherslur. Hér á landi streymdi fólk í bólusetningar og f lestir eru tvíbólusettir, sumir hafa farið þrisvar. Lítið bólar hins vegar á frelsinu sem fólki var lofað, léti það sprauta sig. Enn eru ströng höft við lýði og lítið vit virðist í þeim flestum. Endalaust er verið að telja fólki trú um að hættur leynist svo að segja alls staðar. Ótrúlega margir gleypa við þeim áróðri. Rétt er að víkja að menningunni – en ekki hafa borist fréttir af því að fólk sé að smitast í einhverjum mæli á menningarviðburðum. Samt er það svo að það kostar mikla fyrirhöfn að komast á slíka viðburði. Þar eru fjöldatak- markanir og grímuskylda, hraðprófs er krafist og fólk má ekki blanda geði. Ekki nema von að margir forðist að leggja þetta á sig og kjósi að sitja heima. Menningarviðburðir eiga að vera vítamínsprauta fyrir sálarlífið, ekki vera íþyngjandi. Á hverjum degi er menningarvið- burðum frestað eða hætt við þá vegna ýmiss konar takmarkana. Menningarlíf á Íslandi er að verða fyrir miklu höggi vegna hafta. Eigum við virkilega að taka því með brosi á vör? Með höftum er verið að tala niður árangur bólusetninga. Á sama tíma er farið í bólu- setningarátak. Það er ekki einkennilegt að einhverjir skuli spyrja: Til hvers að fara í bólu- setningu ef það skilar mér engu? Aðrir heimta svo að óbólusettir verði gerðir að annars f lokks borgurum því bólusettum stafi hætta af þeim. Þjóðfélag sem skiptir þegnum sínum í hópana „við“ og „hinir“ er komið á skelfilega braut. Það þarf að greina vandann mun betur gert hefur verið. Við getum ekki endalaust búið við höft vegna smita sem eru ekki í miklum mæli að valda alvarlegum veikindum. Mannréttindi einstaklinga eiga svo ekki að miðast við stöðu Landspítans hverju sinni. Úrbóta er örugglega þörf á Landspítalanum, en það á ekki að setja almenning í fjötra þess vegna. n Tölurnar Í dag eru 75 ár síðan Ísland gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum. Eftir hörmungar tveggja heimsstyrjalda varð til hugsjón og von um að ríki heims gætu samein- ast um að vinna að friði, mannréttindum og framþróun fyrir alla. Í ræðu sem Thor Thors sendiherra flutti við tilefnið, sagði hann hugsjónina að baki Sameinuðu þjóðunum endurspegla vel gildismat Íslendinga. Þátttakan í starfi Sameinuðu þjóðanna hefur allar götur síðan verið horn- steinn í utanríkisstefnu okkar. Ísland hefur á þessum 75 árum verið öflugur málsvari sjálfsákvörðunarréttar, virðingar fyrir alþjóðalögum, mannréttinda, jafnréttis, bættra lífsgæða og sjálfbærrar auðlindanýtingar. Sameinuðu þjóðirnar hafa bein og óbein áhrif á líf fólks um allan heim. Þær eru vettvangur fyrir samtöl þjóða sem stuðla að sameiginlegum skilningi og sátt um réttindi og skyldur ríkja, mannréttindi, félagslegar og efnahagslegar framfarir og öryggismál, svo fátt eitt sé nefnt. Á hverjum degi sinnir starfsfólk þeirra brýnum verkefnum, oft við afar krefjandi aðstæður, við að aðstoða og vernda þá sem eiga undir högg að sækja vegna átaka, hamfara, fátæktar eða óréttlætis. Við stöndum í þakkarskuld við mikilvæg og óeigingjörn störf þess. Erfiðustu viðfangsefni samtímans verða ekki leyst í einrúmi. Heimsfaraldurinn, hraðfara loftslags- breytingar og vaxandi spenna í alþjóðasamskiptum undirstrika þá staðreynd. Við þurfum því að tryggja að Sameinuðu þjóðirnar og aðildarríkin 193 hafi getu og þor til að takast á við þessi viðfangsefni. Það gerist ekki af sjálfu sér. Ísland hefur á síðustu árum aukið þátttöku í starfi Sameinuðu þjóðanna og eflt samstarf við helstu stofnanir og sjóði um velferð barna, kynja- jafnrétti og mæðravernd. Á sama tíma höfum við hvatt til aukinnar þátttöku ungmenna, félagasamtaka og atvinnulífsins í verkefnum Sameinuðu þjóðanna. Öll ríki, stór og smá, bera ábyrgð á Sameinuðu þjóð- unum og því að leggja rækt við hugsjónirnar sem þær standa fyrir og Ísland mun halda áfram að vera þar í fararbroddi. n Sameinuð með þjóðum Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsam- vinnuráðherra arnartomas@frettabladid.is Gaggó gró Áttundi bekkur í Hagaskóla sat heima í gær eftir að mygla greindist í múr þartilgerðrar áttundabekkjarálmu. Skólinn bætist þar með á vaxandi lista grunnskóla í Reykjavík sem hafa þurft að slíta kennslu vegna myglu á undanförnum mánuðum. Hagskælingar fagna því líklega að fá að brjóta upp heimasetu vegna sóttkvíar eða einangrunar með heimasetu sökum myglu, en óskandi væri að húsanör- dar myndu rannsaka hvort arkitektar hafi hannað grunn- skóla borgarinnar í funkis- eða fungis-stíl. Messuvín Þótt Alþingi hafi ekki komið saman í rúmlega hálft ár geng- ur lífið áfram sinn vanagang. Óspektir vegna anarkíunnar hafa verið í lágmarki, sem vekur upp spurninguna hvort það séu f leiri stofnanir sem samfélagið gæti verið án, til lengri tíma litið. Myndi einhver sakna Menntamálastofnunar í svo sem eins og hálft ár? Vín- búðin er þó ómissandi bákn sem leitar nú í örvæntingu að nýju húsnæði í miðborginni en sennilega endar hún á að opna fyrir starfsemi í Hallgríms- kirkjuturninum, aðsókn hvers hefur liðið fyrir fækkun ferða- manna í faraldrinum. n Kíktu í heimsókn og prófaðu! Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is Vinsælu Hvíldarsófarnir væntanlegir aftur í byrjun desember Sjá nánar á patti.is Tryggðu þér eintak 2 sæta sófi 3 sæta sófi Hægindastóll Vandaðir sófar með rafstillanlegum sætum. SX 80532 SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 19. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.