Fréttablaðið - 19.11.2021, Síða 20

Fréttablaðið - 19.11.2021, Síða 20
Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria @frettabladid.is Hvað er líkt með jólakett- inum og sænsku IKEA-jóla- geitinni? Við fyrstu sýn virðast þessi tvö grey fátt eiga sameiginlegt, annað en fjölda lappa og tengingu við jólin. Þegar rýnt er í söguna og jólahefðir Evrópu birtast ýmsir þræðir sem tengja þessi tvö kvikindi saman. Þjóðfræðingurinn Pétur Húni Björnsson hefur undanfarin ár verið með vinsælt uppistand á aðventunni. Þar útskýrir hann meðal annars tilurð jólakattarins og annarra fyrirbæra úr íslenskri menningu, sem í augum nútíma Íslendings geta virkað skrítin. Hann biðst forláts ef hann rænir þjóðtrúna og þjóðsögurnar rómantíkinni, en það gerist víst þegar þjóðfræðingur nördar yfir sig í að tengja saman gamlar sagnir, sagnaminni og tákn. Jólaköttur eða -geit? „Ýmislegt kemur í ljós þegar rýnt er í söguna á bak við íslenska jóla- köttinn og jólageitina frá Svíþjóð og Skandinavíu. Þessi tvö skrímsli byggja á sama fyrirbærinu,“ segir Pétur. „Heilagur Nikulás, eða Sankti Kláus, viðurkenndur fyrir- rennari jólasveinsins, er gjarnan sýndur með púka í för með sér. Þegar átrúnaður á heilagan Nikulás berst til Evrópu verður púkinn að Krampusi í Austurríki og Ölpunum. Krampus er hroða- legt tröll, oftast sýndur svartur eða brúnn og loðinn, með horn og klaufir. Á Íslandi verður púkinn að Grýlu og að hluta til jóla- sveinunum sem voru eins konar óvættir framan af. Þetta er áður en jólasveinarnir urðu meinlaus grey í rauðum fötum. Púkinn tekur líka á sig mynd jólakattarins. Þegar átrúnaður á Heilagan Nikulás berst til Niðurlanda verður púkinn að Zwarte Piet, eins konar svörtum púka, sem teldist í dag seint vera pólitískt rétthugsuð vera.“ Arfleifð heilags Nikulásar Á kaþólskum tíma var heilagur Nikulás einn fjögurra vinsælustu dýrlinga á Íslandi ásamt Maríu mey, Ólafi helga Noregskonungi og Lykla-Pétri, „en íslensku dýrling- arnir, Þorlákur og Jón voru mun neðar á vinsældalistanum. Þegar Sæmundur fróði kom heim úr námi varð hann prestur Köttur og geit úr sömu sveit Pétur Húni hefur grúft sig lengi yfir þjóðsög- urnar og sýnir fram á að jóla- kötturinn á Ís- landi og sænska IKEAgeitin eru skyldari en margir myndu halda. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Í dag herjar jólakötturinn á þá sem láist að redda sér nýjum flíkum fyrir jólin. í Odda og reisti kirkju helgaða heilögum Nikulási. Sankti Kláus er því kominn til Íslands strax á 11. öld. Sagnirnar í kringum dýrlinginn fylgja og síast inn í íslenska þjóðtrú. Sama með sagnir um óvættinn Krampus og fylgdarsveinana, eins og Ruprecht í Þýskalandi og hinn hollenska Zwarte Piet. Þeir eru hrekkjóttir en koma gjöfum frá Nikulási til skila til þeirra sem eiga þær skildar. Verurnar taka á sig mynd Grýlu, jólasveinanna og jólakattarins á Íslandi. Líkt og evrópsku óvættirnir, leggjast þau Grýla og kisi á fólk, og sérstaklega börn sem hegða sér ekki rétt. Þegar átrúnaður á heilagan Nikulás berst til Skandinavíu og Svíþjóðar, og sögurnar samlagast þjóðtrúnni, slæðist með þessi saga um púkann, nema þá er hann orðinn að geithafri sem heilagur Nikulás stýrir og kemur ríðandi á.“ En af hverju meinlaus geithafur? „Það er eflaust tengt geit- höfrunum sem draga vagn Þórs í norrænni goðafræði. Einnig má ímynda sér að skandinavískir ferðalangar í Evrópu á miðöldum hafi séð Krampussýningu í desember. Leikarar í Krampus- búningum hafa minnt á geitur. Þannig afbakast sagan eða tekur á sig nýja mynd af sænsku jóla- geitinni. Ég verð svo að minnast á þá snilld sem einhverjum starfs- manni IKEA datt í hug að gera við uppstillingu á jólavörunum um daginn. Í körfunum í stiganum á milli hæða, rétt hjá veitinga- staðnum, fyllti einhver eina körfuna af litlum jólageitum. Karfan við hliðina var troðfull af eldspýtupökkum, en það má segja að það sé að verða aðventuhefð bæði hér á landi og í Skandinavíu að jólageit IKEA sé brennd, eða tilraunir gerðar til þess. Ég vona svo sannarlega að einhver hafi gert þetta viljandi.“ En hví er Krampus köttur á Íslandi? „Það er líklega vegna þess að kötturinn í íslenskum þjóð- sögum er nokkurs konar púki, eins og kettir virðast gjarnan vera í þjóðtrú víða um heim. Í þjóð- sögum Jóns Árnasonar segir frá því að djöfullinn hafi ætlað að skapa mann en klúðraði því svo herfilega að úr varð hárlaus köttur. Sánkti Pétur miskunnaði sig yfir þessa vesælu hárlausu skepnu, gaf henni feld og úr varð kötturinn. Ástæðuna fyrir vafasömum uppruna kattarins á Íslandi má mögulega rekja til þess að í nor- rænni goðafræði er vagn frjó- semisgyðjunnar Freyju dreginn af köttum. Þar er heiðin tenging, eins og í tilfelli geithafranna sem draga vagn Þórs. Kötturinn stendur því, eins og geitin, á milli heiðni og djöfulsins úr kristni. Það hefur legið beint við að púkinn sem fylgdi heilögum Nikulási yrði að ketti á Íslandi. Svo slitnar púkinn frá heilögum Nikulási þegar átrúnaður á dýrlinga leggst af við siðaskiptin og púkinn skiptist upp í Jólaköttinn og Grýlu. Heilagur Nikulás heldur áfram að skipta máli á meðal kaþólikka í Evrópu, þar sem haldið er upp á messudag hans 6. desember ár hvert og gefnar gjafir, og hann fylgir kaþólikkum til Ameríku. Þar er ansi duglega hrært í sagna- pottinum uns við erum komin með kókakólajólasveininn. Í raun er hann klæddur eins og líklegt er að heilagur Nikulás hafi klæðst. Nikulás hefur líklega verið uppi á síðari hluta 3. aldar og fram á þá fjórðu, og verið biskup í borginni Mýru í Litlu-Asíu, sem er nú Tyrkland. Hluti af biskupsskrúða á svæðinu var rauð eða purpura- lituð skikkja, gjarnan með hvítum bryddingum. Rauði jólasveina- búningurinn er því ekki alveg nýr af nálinni. Jólakötturinn er því í raun og veru bara birtingarmynd hins evrópska Krampusar, rétt eins og Grýla og skandinavíska jóla- geitin. Þau eru öll af sama meiði, og eru fulltrúar ógna sem steðja að fólki. Þetta eru verur vetrarmyrk- ursins, og ef það er eitthvað sem Íslendingar hafa alltaf átt nóg af þá er það myrkur, og auðvitað spruttu fjölmargar sögur úr því.“ Kapítalísk þróun Í dag hafa jólakötturinn og IKEA- geitin þróast í tvær hliðar á sama kapítalíska peningnum. „Jóla- kötturinn leggst á fólk fái það ekki nýja flík á jólunum, og IKEA-geitin er náttúrulega tákn um kapítalísk jól, ódýrt tilgangslaust jólaskraut og drasl. Þetta eru bókstaflega tvær birtingarmyndir djöfulsins, orðnar að nútímabeitu til að fá fólk til að eyða peningum og stuðla að ofneyslu og tilheyrandi offram- leiðslu. Sama gildir auðvitað um ameríska Jólakólasveininn.“ Spjaraðu þig „Það að jólakötturinn lagðist á fólk sem fékk ekki nýja spjör um jólin, virðist eiga uppruna sinn í vinnu- hörku við ullarvinnslu í kjölfar sláturtíðar á haustin. Fólk vann úti á daginn. Er tók að rökkva fóru allir inn að borða og hvíla sig. Svo hófst kvöldvakan, sem var í raun brjáluð vinnutörn og stóð oft fram á nótt. Þá var ullin unnin. Einhver kembdi, annar spann, sumir þæfðu og enn aðrir prjónuðu sokka, vettlinga og flíkur eða ófu vaðmál. Vörurnar voru lagðar inn hjá kaupmanninum til þess að gera upp reikning bæjarins fyrir úttektir ársins. Var þetta var oft eina leið fólks til þess að gera upp skuldir sínar. Kaupmaðurinn seldi vörurnar til Evrópu, þetta var því útflutningsvara. Til er skýrsla frá 1624 um útflutning á ullar- og vefnaðarvörum frá Íslandi. Þá voru flutt út rúmlega 72.000 pör af sokkum, 12.000 vettlingapör og rúmar 12.000 álnir vaðmáls. Þetta er náttúrulega alveg brjálæðislegt magn og hafa nú verið einhver handtökin sem þurfti til að fram- leiða þetta. Árið 1789 voru svo flutt út um 20.000 pör af sokkum frá Berufirði einum. Þjóðsöguna um jólaköttinn sögðu menn til að halda fólki og börnum við kvöldvinnuna. Jóla- gjafir tíðkuðust almennt ekki fyrr en komið er fram til nútímans, en þeir sem stóðu sig vel fengu nýja flík – sokkapar eða föðurland. Slugsarnir fengu engin slík vinnu- laun og máttu fara í jólaköttinn. Í seinni tíð er búið að snúa þessu upp í það að jólakötturinn leggist á fólk sem kaupir sér ekki ný föt.“ ■ 4 kynningarblað A L LT 19. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.