Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 28
Ég hugsa mjög
fallega til minn-
inga frá minni eigin
æsku. Þá voru alltaf
bakaðar piparkökur
fyrir jól og við skreytt-
um þær saman öll
fjölskyldan. Nú langar
mig að gera þetta með
dóttur minni.
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Jólabarnið Salka Sól Eyfeld
ætlar að endurvekja jóla-
stemninguna fyrir þessi jól á
sama hátt og hún gerði fyrir
tveimur árum. Þá var hún
komin á níunda mánuð með
fyrsta barnið, dótturina Unu
Lóu, en nú styttist í að sonur
komi í heiminn.
Salka Sól hefur verið áberandi á
árinu enda hefur verið mikið að
gera hjá henni í alls kyns verk
efnum, jafnt á sviði tónlistarinnar
og leikhússins. Hún er enn í fullri
vinnu þótt hún ætli að taka aðeins
rólegri aðventu núna miðað við í
fyrra. „Þetta verða kannski svolítið
öðruvísi jól en samt kunnugleg.
Ég virðist hafa einn fengitíma
sem þýðir að börnin fæðast á
þessum árstíma,“ segir Salka hress
í bragði. „Fyrir tveimur árum
var ég að syngja á jólatónleikum
allan desember og þeir síðustu
voru fjórum dögum fyrir fæðingu,
en það var á Jülevenner Emmsjé
Gauta og ég verð aftur með honum
núna fyrir jólin. Mér finnst gaman
að hafa eitthvað fyrir stafni, það
er ekki mikið mál að koma fram
og syngja. Ég tek því rólega á milli
gigga, verð með Stórsveitinni í
byrjun desember sem mér finnst
alltaf sérstaklega skemmtilegt,“
segir Salka, en nýlega var frum
sýnd kvikmyndin Birta þar sem
hún leikur eitt aðalhlutverkanna.
Jólahefðir í hundrað ár
Salka hefur auk þessa verið að
gera tónlist fyrir nýtt jólaleikrit,
Jólaboðið, sem Vesturport er að
setja upp í samstarfi við Þjóð
leikhúsið og Gísli Örn leikstýrir.
„Þetta er f lott leikrit sem fjallar
um jólahald hjá sömu fjölskyld
unni yfir hundrað ára tímabil.
Áhorfendur fá að skyggnast inn í
jólahefðir og siði íslenskrar fjöl
skyldu í gegnum árin. Um leið er
þetta fjölskyldusaga, bæði gleði
og sorg. Leikritið verður einmitt
frumsýnt í dag. Við vonumst til
að það verði síðan sýnt árlega
á aðventu,“ segir Salka, sem er
tónlistarstjóri sýningarinnar og
sér um alla tónlist ásamt Tómasi
Jónssyni píanóleikara. „Við
erum búin að semja nýtt jólalag í
tengslum við sýninguna. Leikritið
átti að frumsýna um síðustu jól en
þau plön breyttust vegna Covid.
Það eru kannski aðeins breyttar
aðstæður hjá mér núna, komin
næstum átta mánuði á leið,“ segir
Salka og getur ekki annað en
hlegið eins og henni einni er lagið.
Þegar hún er spurð hvort hún
kannist við eitthvað af þessum
hefðum sem koma fyrir í leik
ritinu, svarar hún því játandi.
„Það eru nokkrar hefðir í minni
fjölskyldu sem eru órjúfanlegur
partur af jólunum. Til dæmis laufa
brauðsgerð. Faðir minn kemur að
norðan og það eru nokkrar hefðir
komnar frá honum. Meðal þess
er að möndlugrauturinn er alltaf
hafður í hádeginu á aðfangadag.
Maðurinn minn er líka að norðan
svo við höfum alist upp við svip
aðar hefðir. Við munum örugglega
halda í þær þegar við förum að
halda okkar jól heima,“ segir hún.
„Hingað til höfum við skipst
á að vera hjá foreldrum okkar á
aðfangadagskvöld. Núna er aðeins
meira rifist um mann þegar barn
hefur bæst í hópinn, en það styttist
örugglega í að við höldum okkar
jól þegar við verðum komin með
tvö börn,“ segir Salka.
Piparkökudagur hjá vinahópi
„Það er ekki langt síðan ég varð
svona jólastelpa. Ég reyni að lýsa
upp skammdegið eins mikið og
hægt er. Jólatréð fer snemma upp
og ég sanka að mér jólailmkertum
sem ég kveiki á strax í nóvember.
Ég var mjög ýkt í jólastemningu
þegar ég gekk með fyrra barnið
vegna spennings. Ætli ég hafi ekki
haldið að ef jólin kæmu fyrr myndi
barnið fæðast fyrr. Núna er ég jafn
Jólastelpa sem vill
lýsa upp aðventuna
Salka Sól ætlar að taka aðventuna á rólegri nótum núna miðað við undanfarin ár. Hún á von á sér í byrjun næsta árs.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Jólasnjókorn Sölku
Fullt nafn: Salka Sól Eyfeld.
Maki: Arnar Freyr Frostason.
Börn: Una Lóa Eyfeld.
Áhugamál: Fyrir utan það
að syngja, leika og skemmta
fólki þá er prjónið og alls
kyns handavinna í uppáhaldi
hjá mér. Mér finnst líka mjög
skemmtilegt að elda og prófa
mig áfram í eldhúsinu.
Uppáhaldsjólamyndin: Við
hjónin horfðum á Home
alone aftur síðustu jól og
héldum að hún hefði kannski
ekki elst vel. En við hlógum
alveg helling og höfðum
gaman af.
Upphaldsjólalagið: Ég elska
gamlar jólaplötur og platan
Gleðileg jól sem var gefin út
af Geimsteini er alltaf sett á
fóninn um hátíðirnar.
Uppáhaldsjólasmákökurnar:
Sörur. Engin samkeppni þar.
Jólamaturinn: Svo lengi sem
rauðkálið er á borðinu er ég
sátt.
spennt og er alltaf að skoða fallega
jólahluti í búðum. Þegar ég var í
menntaskóla var próflestur iðu
lega í desember og ekki mikill tími
til að jólaskreyta, frekar að það
væri prófastress á þessum árstíma.
Núna getur maður notið þess að
hlakka til jólanna. Margt breytist
þegar barn kemur í heiminn og
núna er ég að plana piparköku
dag með vinum okkar. Þá verða
bakaðar piparkökur og skreyttar.
Ég hugsa mjög fallega til minn
inga frá minni eigin æsku. Þá voru
alltaf bakaðar piparkökur fyrir jól
og við skreyttum þær saman öll
fjölskyldan. Nú langar mig að gera
þetta með dóttur minni,“ segir
hún.
Margir forréttir á borðum
Þegar Salka er spurð um matar
hefðir á jólum segir hún að faðir
hennar, Hjálmar Hjálmarsson
leikari, sé einstakur snillingur í
eldhúsinu. „Hann er mjög flinkur
ástríðukokkur. Heimagerða
rauðkálið hans er svo gott að það
er hægt að borða það eintómt.
Hann setur það í jólabúning með
hlynsírópi, hnetublöndu, salti,
pipar, smjöri og kannski smá kanil.
Það kemur yndislegur jólailmur í
húsið með rauðkálinu. Undanfarin
ár höfum við fjölskyldan verið
forréttasjúk. Nokkrir forréttir eru
í boði, til dæmis er alltaf humar
í rjómasósu, alls konar paté og
aðrir smáréttir. Í staðinn er minna
borðað af hamborgarhryggnum
eða hnetusteikinni, eða hverju því
sem er á borðum. Svo er heima
gerður ís á eftir. Venjurnar hafa
breyst eftir því sem við systkinin
verðum eldri, sérstaklega þegar við
áttuðum okkur á að forréttir væru
í miklu uppáhaldi. Pabbi kemur
okkur á óvart í snilli sinni um hver
jól. Að öðru leyti ætla ég að taka
því rólega um jólin og undirbúa
komu barnsins.“
Mikil stemningskona
Salka segir að þar sem hún byrji
yfirleitt snemma að æfa jólalögin
fyrir tónleika hefjist jólatíminn
snemma hjá henni. „Ég er svo
mikil stemningskona. Allt sem
framkallar stemningu, eins og
hrekkjavakan, sem Íslendingar
hafa verið að taka upp, finnst mér
ótrúlega spennandi. Þetta gerir
lífið skemmtilegra.“
Salka skellir upp úr þegar
blaðamaður spyr hvort hún ætli
að halda í hefðina og koma með
þriðja barnið eftir tvö ár. „Það er að
minnsta kosti ekki á planinu,“ segir
hún. „Ég finn mun á þessari með
göngu og hinni fyrri þar sem ég er
með ungt barn sem þarf umönnun.
Síðast taldi ég daga og vikur en
er ekkert að spá í það núna. Það
verður síðan nóg að gera á næsta ári
að halda jól og síðan tvö barna
afmæli með stuttu millibili.
Þar sem ég er mikið jólabarn
er ég farin að hlakka mikið til
jólanna. Mér finnst laufabrauðs
gerðin til dæmis skemmtileg.
Við búum til deigið og skerum út
kökurnar. Síðan höfum við prófað
nýjungar, til dæmis að nota spelt,
heilhveiti, kúmen eða súrdeig. Svo
gerum við soðbrauð og steikjum
afganga,“ segir Salka og bætir við
að hún ætli svo sannarlega að
njóta aðventunnar. „Það verður
minna að gera hjá mér fyrir þessi
jól heldur en mörg önnur. Ég
hagræddi vinnu minni þannig í
kringum jólin. Ég verð auðvitað
með Helga Björns í lokaþættinum
á laugardaginn,“ segir hún.
Stutt fæðingarorlof
„Ég er mjög ánægð með þá
hvatningu að setja upp jólaljósin
snemma. Það er svo dimmt hjá
okkur og frábært að lýsa upp
skammdegið. Ég hlakka til að sitja
á náttfötunum og prjóna á milli
jóla og áramóta. Ég er búin að
prjóna heimferðarföt á soninn.
Undanfarið hef ég prjónað mikið
af ungbarnafatnaði. Tíminn á milli
jóla og nýárs er svo göldróttur, allt
svo kósí og rólegt. Fæðingarorlofið
verður stutt því ég er að æfa nýjan
söngleik, Sem á himni, sem verður
frumsýndur í Þjóðleikhúsinu um
páskana. Þar fer ég með aðalhlut
verk á móti Elmari Gilbertssyni.
Við æfðum í nokkrar vikur í haust
og förum aftur í gang í mars. Mér
finnst æðislegt að hafa nóg að
gera og er þakklát fyrir að vinna í
þessum bransa.“ n
19. nóvember 2021 jól 2021 8 fréttablaðið