Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 32

Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 32
Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Katrín Halldóra Sigurðar- dóttir, leik- og söngkona, hefur í nógu að snúast á aðventunni, en þrátt fyrir það vill hún líka halda upp á aðventuna því hún er mikið jólabarn. Mikið er um að vera hjá Katrínu Halldóru fyrir jólin, til að mynda verður hún gestur hjá Siggu Bein­ teins söngkonu á jólatónleikum hennar í Eldborg í byrjun desem­ ber. Síðan verður hún líka gestur hjá Friðriki Ómari í Hofi á Akur­ eyri í desember. Katrín segir að aðventan verði virkilega annasöm, en hún ætli samt að baka fyrir jólin samhliða verkefnum sínum í söngnum. „Ég mun heldur betur syngja jólin inn í ár. Ég fylgi plötunni minni líka eftir með því að syngja hér og þar og alls staðar, þessi plata er svo sannarlega jólagjöfin í ár,“ segir Katrín og er hin glaðasta. Platan nefnist Katrín Halldóra syngur lög Jóns Múla og eru öll lögin útsett af Hauki Gröndal. „Þetta er algjörlega frábært sjö manna band og svo er mikill heiður að fá Pál Óskar í tvo dúetta. Þetta er afmælisheiðursplata þar sem Jón Múli hefði fagnað aldar­ afmæli í ár. Ég er virkilega stolt af plötunni, hún er eiguleg eign, fallegar myndir úr hljóðverinu og svo er þessi tónlist við texta bróður hans, Jónasar Árnasonar, bara svo æðisleg. Það er búinn að vera draumur hjá mér lengi að syngja þessi lög.“ Finnst þér jafn gaman að leika eins og að syngja? „Já, ég elska að geta gert bæði og það er eiginlega ómögulegt að velja á milli.“ Lagtertan ómissandi á aðventu Hvað er ómissandi á aðventunni að þínu mati? „Lagterta. Það koma ekki jól fyrr en hún er bökuð. Ég elska þessa köku, upprunalega er uppskriftin frá Kristrúnu langömmu minni og mamma bakaði hana fyrir okkur Lagtertan kemur með jólin Katrín Halldóra safnar jólaskrauti á tréð, einhverju skrítnu og skemmtilegu. Katrín Halldóra óskaði eftir upp- skrift þegar hún var í viðtali og margar bárust. „Meira að segja sendi ein yndis- leg kona mér uppskrift sem hún hafði fengið hjá Elly sjálfri, eða skrifað upp eftir henni í út- varpinu.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Jólasnjókorn Katrínar Fullt nafn: Katrín Halldóra Sigurðardóttir. Maki: Hallgrímur Jón Hallgrímsson. Börn: Óðinn Ívar Hallgrímsson og Stígur Hallgrímsson. Áhugamál: Að grúska í tónlist og leiklist, taka ljósmyndir, elda góðan mat og myndlist. Uppáhaldsjólamyndin: Love Actually. Upphaldsjólalagið: The Christmas song. Uppáhaldsjólasmákökurnar: Vanilluhringirnir og sörurnar hennar mömmu. Jólamaturinn: Kalkúnn með hnetufyllingu, brún sósa, Waldorfsalat og sætkartöflumús. bættum rjóma eins og amma Kata gerði alltaf.“ Katrín segir að þau fari ekki í mörg jólaboð og það sé hið besta mál. „Við fáum allavega daga inni á milli í ró og næði, bara til að slappa af, sem er yndislegt.“ Lyktin af barrnálunum jólaleg „Ég er svo heppin að eiga mann sem vinnur sem skógarhöggsmaður. Hann kemur alltaf með lifandi jólatré handa mér sem hann hefur þurft að grisja í skóginum. Það er eitthvað við lyktina af barrnálun­ um sem gerir allt svo jólalegt. Ég set jólatréð upp snemma, eða í byrjun desember. Ég safna jólaskrauti á tréð, einhverju skrítnu og skemmti­ legu, og er komin með alls konar skemmtilegt og erfitt að koma því fyrir á tréð, glitrandi brokkolí, jólamótorhjól, pylsuhund í engla­ búningi og jólalegan geimfara.“ Katrín er á því að þetta verði jólaleg jól og öllu verði tjaldað til. „Ég elska jólin og ég hlakka svo til að upplifa þau í gegnum litla eins og hálfs árs gamla son minn, það er svo gaman að njóta jólanna með sínum nánustu.“ n Lagkaka langömmu Kristrúnar „Ég baka lagkökuna í miklu magni og ég hef það fyrir sið að gefa vinum og vandamönnum bita fyrir hver jól. Það vekur alltaf mikla lukku og er orðið partur af jóla­ hefðinni hjá mér.“ 1 kg hveiti 500 g mjúkt smjör 500 g sykur 4 egg 4 msk. síróp (rúmlega) 2 tsk. negull 4 tsk. kanill 4 tsk. kakó 2 tsk. matarsódi 1 msk. soðið vatn Setjið allt hráefnið í skál og hnoðið vel saman. Eftir að deigið hefur verið hnoðað er það kælt. Geymið í kæli, í einhvern tíma, t.d. yfir nótt, síðan skiptið þið því í fjóra hluta og fletjið út. Loks er því skipt niður á fjórar plötur og mikilvægt að passa að baka ekki of lengi við 145°C (fer eftir ofnum). Kökurnar eiga að vera mjúkar þegar þær eru teknar út. Krem 400 g mjúkt smjör 800 g flórsykur 3 egg Vanilludropar eftir smekk Örlítið salt Byrjið á því að setja saman smjör og flórsykur og hrærið vel saman. Bætið síðan við einu og einu eggi í einu. Fyrir þá sem vilja hafa mikið krem má bæta helmingi meira við. Setjið kremið á milli þegar kökurnar hafa kólnað. Setjið kremið ofan á, lag fyrir lag fyrir lag. Síðan er lag að skera hverja köku í 4 til 6 kubba og pakka þeim inn í bökunarpappír og plastpoka og geyma í kæli fyrir notkun. Þetta eru æðislegar sælkeragjafir. n krakkana þegar við vorum lítil. Þegar við urðum stærri sendi hún okkur góðan bita og þetta sparaði maður yfir alla aðventuna fram að jólum. Hún er hnoðuð og nú hef ég tekið upp á því að baka þessa köku sjálf, en beit í mig að mig langaði mikið til að reyna að ná að gera hrærða lagköku sem ég á minningu um frá því ég var lítil að hafa smakkað. Ég auglýsti meira að segja einu sinni í viðtali eftir þessari lagkökuuppskrift: „Ég er að leita að hrærðri uppskrift að lagköku sem er frekar dökk, þétt en alls ekki þurr, með hvítu kremi.“ Ég fékk nokkrar æðislegar upp­ skriftir sendar og ég prófaði að baka þær allar. Lagkakaði yfir mig þau jólin og ég var í vandræðum með að koma þessu út. Meira að segja sendi ein yndisleg kona mér upp­ skrift sem hún hafði fengið hjá Elly sjálfri, eða skrifað upp eftir henni í útvarpinu. Mér fannst þetta æðis­ lega gaman, að leita að einu sönnu uppskriftinni en allt kom fyrir ekki og ég hef ekki enn fundið þessa köku sem ég leita að. En ég held mig við hnoðuðu lagkökuna hennar mömmu. Dásamlegt jólabragð með réttu kryddblöndunni og jólin koma ekki fyrr en hún er bökuð.“ Möndlugrauturinn ómissandi Katrín segist eiga margar fallegar jólaminningar en ein þeirra standi þó upp úr. „Þegar við systur vorum inni í eldhúsi hjá mömmu að máta kjólana sem hún var að sauma á okkur. Hún saumaði æðislega fal­ lega kjóla hver jól og þeir voru hver öðrum flottari, minningin ljóslif­ andi í huga mér.“ Er einhver jólasiður sem þið viljið ekki sleppa? „Já, það er ómissandi að fá möndlugrautinn á aðfangadag áður en við opnum pakkana, með léttþeyttum karamellubragð­ Ég er svo heppin að eiga mann sem vinnur sem skógar- höggsmaður. Hann kemur alltaf með lif- andi jólatré handa mér sem hann hefur þurft að grisja í skóginum. 19. nóvember 2021 jól 2021 12 fréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.