Fréttablaðið - 19.11.2021, Síða 36
Hjálparsími Rauða krossins,
1717, verður opinn allan sól-
arhringinn yfir öll jólin. Jólin
eru erfiður tími fyrir marga
og það er algengt að fólk finni
fyrir erfiðum tilfinningum,
svo það getur verið gott að
geta talað við einhvern sem
hlustar í trúnaði.
oddurfreyr@frettabladid.is
„Hjálparsími Rauða krossins, 1717,
er hjálparlína og netspjall sem
er opið allan sólarhringinn, alla
daga ársins. Hlutverk 1717 er að
veita sálrænan stuðning og vera
til að staðar fyrir þá sem þurfa að
ræða við einhvern í trúnaði,“ segir
Hanna Ruth Ólafsdóttir, verkefna-
stjóri hjá hjálparsímanum. „Það
kostar ekkert að hringja og sím-
talið kemur ekki fram á símareikn-
ingnum. Við notumst við virka
hlustun og bendum fólki á úrræði
sem gætu hentað viðkomandi,
þurfi þeir á frekari stuðningi að
halda. Þetta er í rauninni nokkurs
konar sálræn fyrsta hjálp. Starfs-
fólkið sem svarar er sjálfboðaliðar
með mjög fjölbreyttan bakgrunn,
en allir fá viðeigandi fræðslu og
menntun til að sinna starfinu.“
Einmanaleiki, sorg, og söknuður
Álagið er mjög misjafnt eftir
dögum, en almennt tökum við á
móti 15-20 þúsund samtölum á ári.
Þeim fjölgaði mikið í faraldrinum
og ég myndi segja að við séum
ennþá að fá inn fleiri samtöl að
meðaltali núna en fyrir hann,“
segir Hanna. „Almennt helst álagið
svo nokkuð jafnt yfir jól og áramót
og ef eitthvað er þá fjölgar þeim
kannski frekar í janúar, þegar
hátíðarhöldin eru yfirstaðin. En
eðli símtalanna breytist þegar
jólin nálgast.
Þegar nær dregur jólum fer fólk
sem hefur kannski misst ástvin
eða upplifað missi og sorg að finna
meira fyrir söknuði og að fá ekki
að upplifa jólin með sínum ástvini.
Í desember talar fólk mikið um
einmanaleika, sorg, söknuð og fjár-
hagsáhyggjur,“ útskýrir Hanna.
„Við fáum samt mjög fjölbreytt
mál til okkar og mottóið okkar er
að það er ekkert vandamál of lítið
og ekkert vandamál of stórt,“ segir
Hanna. „Algengustu ástæðurnar
fyrir því að fólk hefur samband eru
líklega kvíði og einmanaleiki og svo
líka þegar fólk er komið í svo mikla
vanlíðan að það er farið að upplifa
sjálfsvígshugsanir.
En fólk hringir líka bara til að
tala um daginn og veginn og það
getur stundum verið mjög mikil-
vægt að geta talað við einhvern
um veðrið eða hvað á að fá sér í
kvöldmat,“ segir Hanna. „Það þarf
alls ekki að vera þannig að fólki
líði mjög illa til að hafa samband.
Við hvetjum alla sem vilja tala við
einhvern hlutlausan í trúnaði til að
hafa samband, annað hvort í síma
eða gegnum netspjallið okkar. Það
er alltaf að verða meira um að fólk
nýti net spjallið, sérstaklega ungt
fólk, en við höfum fundið mikla
fjölgun meðal barna og unglinga
sem hafa samband eftir að faraldur-
inn hófst, sem er áhugavert.“
Full þjónusta öll jólin
„Við erum með góðan, öflugan og
fjölbreyttan hóp sjálfboðaliða sem
eiga það sameiginlegt að vilja vera
til staðar fyrir aðra, meðal annars
á aðfangadagskvöld,“ segir Hanna.
„Það er eiginlega furðu auðvelt að
manna símann yfir þennan tíma.
Fólk sem velst inn í svona verkefni
er svo tilbúið að gefa af sér og vera
til staðar og er meðvitað um að
þetta geti verið erfiður tími fyrir
marga og því sé mikilvægt að ein-
hver sé til staðar. Það er opið alla
hátíðisdaga eins og áður hjá 1717
yfir jólin.
Við erum þarna til að hlusta
og vera til staðar fyrir fólk sem
þarf á einhverjum að halda,“ segir
Hanna. „Það er oft gott að geta
talað um sín mál við einhvern sem
dæmir mann ekki og þekkir mann
ekkert.“
Mikilvægt að rækta geðheilsuna
„Það hafa orðið ýmsar jákvæðar
breytingar varðandi geðheil-
brigðisþjónustu að undanförnu,
til dæmis eru sálfræðingar og
geðteymi komin á heilsugæslur,
en það mætti alltaf gera meira
til að hjálpa fólki sem líður illa,“
segir Hanna. „Það mætti til dæmis
kannski leggja áherslu á geðrækt
strax í grunnskólum. Það ætti
að leggja jafn mikla áherslu á að
rækta geðið eins og líkamann. Fólk
þarf að huga vel að sinni geðheilsu,
rækta með sér þrautseigju og koma
sér upp góðum bjargráðum til að
komast í gegnum erfiða tíma.
Ég held að það sé mikilvægt
að vekja athygli á þessu og það
er einmitt það sem við höfum
verið að gera í Geðlestinni, sem er
samstarfsverkefni Hjálparsímans
1717 og Geðhjálpar, en markmið
hennar er að heimsækja alla skóla
landsins,“ segir Hanna. „Þar er lögð
áhersla á mikilvægi þess að rækta
geðið, en það eru ákveðnir þættir
sem er hægt að huga að til að koma
sér upp betri geðheilsu og meira
þoli fyrir mótlæti.
Við hvetjum fólk líka til að
huga að sínum nánustu og reyna
sérstaklega að huga að ættingjum
og ástvinum sem gætu verið ein-
mana eða liðið illa um jólin,“ segir
Hanna. „Það skiptir miklu máli
fyrir geðheilsu og geðrækt að halda
tengslum og rækta þau.“ ■
Ekkert er hjálparsímanum óviðkomandi
Hanna Ruth Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Hjálparsíma Rauða krossins, segir
að það sé ekki erfitt að manna símann yfir jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
arionbanki.is
Gjafakort Arion banka er alltaf rétta gjöfin.
Þú velur fjárhæðina, þiggjandinn velur gjöfina.
Gjafakort Arion banka er hægt að nota hvar sem er.
Þú getur nálgast gjafakort í útibúum okkar eða pantað
á arionbanki.is/gjafakort og fengið sent heim.
Gjöf sem
gleður alla
Við erum með
góðan, öflugan og
fjölbreyttan hóp sjálf-
boðaliða sem eiga það
sameiginlegt að vilja
vera til staðar fyrir aðra,
meðal annars á aðfanga-
dagskvöld.
19. nóvember 2021 jól 2021 16 fréttablaðið