Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 48
Ragna Björg Ársælsdóttir,
verkefnastjóri, matgæðingur
og söngkona með meiru,
er mikið jólabarn og segist
alltaf reyna að vera með
eitthvað nýtt og spennandi í
desert á aðfangadag.
johannamaria@frettabladid.is
Það er nóg að gera hjá Rögnu í
aðdraganda jólanna og þann 11. og
12. desember syngur hún með Guð-
rúnu Árnýju á innilegum jólatón-
leikum í Víðistaðakirkju. Einnig sér
hún um söng á fyrirtækjaskemmt-
unum og jólahlaðborðum.
Ragna segir að eftirrétturinn
á jólum æsku hennar hafi verið
sérrí-rjóma-triff li, en sjálf er
hún hrifin af því að gera ýmiss
konar búðinga eins og creme
brulee, panna cotta, pavlovu eða
sítrónutertu. Hér birtir hún girni-
lega uppskrift af silkimjúkum
eftirréttarbúðingi með karamellu-
og vanillubragði. Svo leynast
óvæntir bananar í botninum sem
gera gæfumuninn. Þessi búðingur
er eins og eitthvað sem maður fær
á veitingastöðunum! „Psst. þetta
slær alltaf í gegn í matarboðum,“
segir hún og hlær.
Banana- og
karamellubúðingur
Fyrir 4 glös eða eftirréttaskálar
Í botninn:
150 g mulið digestive kex
3 msk. sykur
4 msk. bráðið smjör
Blandið saman kurluðu kexinu,
sykri og smjöri og þrýstið blönd-
unni í botninn og örlítið upp í
hliðar á fjórum desertskálum eða
glösum. Kælið í 30 mínútur
Í fyllinguna:
215 g púðursykur
30 g smjör
3 msk. (30 g) maizenamjöl
350 ml nýmjólk
1/2 tsk. salt
4 eggjarauður
1/2 tsk. vanillu extrakt
2-3 þroskaðir bananar
Bræðið smjör og blandið því
saman við púðursykur, setjið í skál.
Setjið þetta svo til hliðar.
Í bolla, hrærið maizenamjölið
út í smá af mjólkinni. Í potti, hitið
restina af mjólkinni með saltinu
þangað til blandan er við suðu
og hellið þá maizenamjölsblönd-
unni út í. Sjóðið þar til blandan
þykknar.
Hrærið eggjarauðurnar saman
í skál og hellið smá af heitri
mjólkurblöndunni út í eggin.
Hellið svo þeirri blöndu aftur út
í heita mjólkina og hrærið þar
til blandan þykknar enn frekar
(áferðin endar á að verða soldið
eins og hrært majones).
Hellið/þrýstið blöndunni í
gegnum sigti (ef ykkur kann að
finnast þetta eitthvað kekkjótt)
ofan í púðursykurblönduna, bætið
vanillu extrakt við og hrærið vel
saman uns sykurinn bráðnar.
Skerið bananana niður í 5-6
mm sneiðar og dreifið yfir kex-
botninn (ég notaði aðeins rúmlega
2 banana en það fer eftir smekk).
Hellið blöndunni yfir bananana,
geymið þetta í kæli í a.m.k. 2 klst.
áður en rjóminn er settur ofan á og
borið er á borð.
Aukapunktar:
n Það er dásamlegt að setja kara-
mellukúlukurl ofan á.
n Það er líka æðislegt að setja
smá vanillusykur út í rjómann
þegar þið þeytið hann.
n Búðingurinn geymist í ísskáp í
2-3 daga ef þið setjið plastfilmu
yfir og sleppið að setja rjómann
á.
n Það er hægt að hægelda epla-
bita upp úr smjöri, sykri, smá
vanillu og kanil og setja í botn-
inn í staðinn fyrir banana. n
Hátíðlegur búðingur með glaðningi í botninum
Ragna Björg starfar sem verkefna-
stjóri hjá Kerecis. Hún er að eigin
sögn mikið jólabarn og finnst gaman
að dúlla sér við jólaundirbúninginn.
Fréttablaðið/Ernir
Karamellumús með bönunum slær alltaf í gegn í matarboðum og sómir
sér vel yfir hátíðirnar. Mynd/aðsEnd
FÆST Í ÖLLUM BETRI VERSLUNUM @ GOODGOODBRAND | GOODGOOD.NET
Hafðu það
GOTT GOTT
um jólin
Án viðbætts sykurs • Lágkolvetna • Gómsætt
19. nóvember 2021 jól 2021 28 fréttablaðið