Fréttablaðið - 19.11.2021, Síða 56
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Hlín Ósk skartgripahönnuð-
ur hefur alla tíð haft mikla
þörf fyrir að skapa. Það
kemur ekki síst fram fyrir
jólin því hún byrjar snemma
að undirbúa og skreyta.
Hlín sem rekur verslun og net
verslunina Óskabönd segir að
desember sé annasamur á vinnu
stofunni hjá henni. „Jólastemm
ingin byrjar með því að skera
út laufabrauðið, baka nokkrar
smákökutegundir, setja upp jólatré
og skreytingar. Síðan er það ómiss
andi hluti af jólahaldinu að fara í
kirkju á aðfangadag,“ segir hún.
„Samverustundir með fjöl
skyldunni eru svo skemmtilegar,
góður matur og kósíheit. Yngsta
dóttir mín er mikið jólabarn og
hún heldur mér alveg við efnið
þegar kemur að skreytingum. Það
bætist alltaf smávegis við af jóla
skrauti á hverju ári, ég er veik fyrir
hreindýrastyttum og á orðið gott
safn af þeim. Hreindýr eru í miklu
Dásamlegt
að lýsa upp
skammdegið
Hlín Ósk reynir að skreyta heimilið á
milli anna á vinnustofu sinni.
FÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Desember er annatími í versluninni Óskaböndum. Hlín
Ósk gerir margvíslega fallega skartgripi.
Þessi fallegi
hnotubrjótur
stendur vaktina
hjá Hlín Ósk til
jóla.
Hlín er mikill
aðdáandi hrein-
dýra og á orðið
dágott safn af
þeim.
Kertaljós eru
ómissandi þeg-
ar jólin nálgast
og skammdegið
ræður ríkjum.
Nammikrukkurnar eru líka með
hreindýraskrauti og sóma sér vel.
uppáhaldi og mér finnst þau mjög
falleg.
Ég var alltaf mjög dugleg að
baka fyrir jólin en nú hefur dóttir
mín eiginlega tekið við keflinu á
heimilinu. Nóvember og desember
eru orðnir annasamir hjá mér í
skartinu. Við bökum samt alltaf
lakkrístoppa og skinkuhorn. Yfir
leitt þurfum við að baka lakkrís
toppana nokkrum sinnum því þeir
klárast alltaf strax. Ikeakökurnar
hafa líka verið vinsælar á heimil
inu, það er einfalt og þægilegt að
baka þær og húsið ilmar,“ segir
Hlín Ósk sem hannar allt sjálf og
býr til stærsta hlutann af skartinu.
„Smávegis læt ég framleiða fyrir
mig,“ segir hún.
„Það er mjög misjafnt hvað er
vinsælast til gjafa en orkusteina
festarnar og orkusteinaarmböndin
eru vinsæl ásamt fíngerðum
keðjum og armböndum í stíl.
Eyrnalokkar og hringir eru alltaf
vinsæl gjöf.“
Hlín Ósk er með vinnustofu og
verslun í Þrúðsölum 17 í Kópavogi
og vefverslunina oskabond.is. „Ég
var áður bara í einu herbergi sem
var orðið ansi þröngt fyrir starf
semina, núna njóta gersemarnar
sín svo vel og það fer mjög vel um
mig í nýja rýminu, einnig er gaman
að taka á móti fólki þegar það
er nóg pláss, og ég er orðin mjög
spennt að hitta sem flesta við
skiptavini fyrir jólin, en bóka má
tíma á oskabond@oskabond.is,“
segir hún.
„Mér finnst jólin vera yndislegur
tími og það er mikið skreytt í mínu
hverfi utanhúss. Það er svo frábært
og fallegt að lífga upp skamm
degið með jólaljósum. Síðan leggur
maður mikið upp úr jólunum.
Síðustu ár hef ég haft smjörfyllt
kalkúnaskip á aðfangadag og
krakkarnir mínar vilja alls ekki
breyta því, en annars er ég sjálf alin
upp við rjúpur.“ n
19. nóvember 2021 jól 2021 36 fréttablaðið