Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1984, Side 154

Strandapósturinn - 01.06.1984, Side 154
vestar og ofan í Langadal en hin liggur ofan í Lágadal og var venjulega farið það áður, sérstaklega í skreiðarferðum á vorin því það er beinna að Nauteyri, en þangað var venjulega farið með flutninga á vorin um vertíðarlokin og það svo flutt þaðan á hestum norður. Þar sem veður og færð var í þetta sinn svo gott sem best var á kosið, þá var það ætlunin að fara ofan Bakkafjall sem er á milli Langadals og Lágadals og því beinni leið en fara ofan í Langadal en auðvitað mikið lengri fjallvegur að fara, þó leiðin yrði styttri í heild. Þar sem ég var svo ungur vesturferðar- maður, en pabbi nærgætinn við mig, þá fannst honum þetta of langur fjallvegur fyrir mig, þess vegna fór hann ofan í Langadal, og unglingsdrengur eitthvað tveimur árum eldri en ég og pabba kunnugur, fylgdist með okkur. Hann hét Guðmundur Jasonsson og var frá Víðidalsá, kom þangað sem smali en var ættaður úr Bolungarvík. Faðir hans var Jason Jónsson formaður og fórst í fiskiróðri þá fyrir nokkrum árum. Það gekk vel ofan heiðina því veður og færð var svo ágætt. Fyrsti bærinn sem við komum að í Langadal var Bakkasel, þá fremsti bærinn í dalnum þó áður hafi verið tveir bæir framar, Skeggjastaðir og Efraból, en árið eftir þegar við pabbi fórum vestur þá eftir páskana þá var Sigurður Þorgrímsson póstur búinn að byggja upp á Efrabóli og bjó þar í nokkur ár og var póstur frá Borðeyri til Arngerðareyrar. f Bakkaseli bjó í þetta sinn Guðmundur Hafliðason, hann var velkunnugur pabba því Guðmundur var lengi formaður í Bol- ungarvík á sexæring. Þarna fengum við kaffi og var það vel þegið. Ég man að við borðuðum af nestinu okkar þegar við vorum komnir ofan af heiðinni. Og svo var gott að hvíla sig eftir þennan langa heiðarveg. Ekki þurftum við að borga greiðann, sennilega vegna kunn- ingsskapar pabba og Guðmundar. Annars var það vani að borga fyrir sig eftir að komið var vestur yfir heiði og að okkur fannst nokkuð dýrt enda oft litlir aurar hjá mörgum þá. Aldrei vildi neinn taka fyrir næturgreiðann í Staðardalnum og það þó margir væru nótt, og það fleiri en eina, eins og komið gat fyrir ef illa viðraði og ekki fært heiðarveður þann dag sem ráðgert var að fara yfir heiðina. Þetta var venja og var það hvorttveggja að fólk 152
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.