Saga - 2012, Page 16
manna, drepi kristna menn og berjist gegn trúnni. Oft segir frá
aftökum heiðingja sem vilja ekki taka trú. Lýsingar á „fögrum sigri“
í bardögum kristinna manna við heiðingja voru í anda þess sem
boðað var sem markmið heilags stríðs, að drepa sem flesta af mót-
herjunum sem síðan færu beina leið til helvítis.7 Þó er ekki víst að
allir hafi fallist á þetta markmið; t.d. er Eysteinn Noregskonungur
sagður hafa lýst efasemdum um gildi þess að brytja „blámenn fyrir
inn raga karl“ og hraða „þeim svá í helvíti“, eins og Sigurður
Jórsalafari hafi gert.8 Með því að stunda fjöldamorð á heiðnum óvin-
um gátu menn eflt liðstyrk skrattans í baráttu við kristna menn í
öðru lífi.
Óttinn við óvininn átti að þjappa kristnum mönnum saman, gera
þá einhuga og samhentan hóp, eins og segir í upphafi Agulando
þáttar Karlamagnús sögu. Í stríði við heiðingja gleymdist stétta-
munur og ágreiningur. Þá er ákveðið
að allir þrælar og þjónustumenn í Franz skulu frjálsast meður sínu
hyski af öllum þrældómi og þeir sem í höftum haldast eða myrkva-
stofum væri leystir og liðugir gervir en þeir sem áður höfðu í gengið
keisarans misþykt og óblíðu fyrir gnógar sakir bauð hann nú afturkall-
ast í sína vináttu. Þar með skyldu allir spellvirkjar og ránsmenn ganga
aftur í frið og náðir ef þeir vildi fyrirláta sína framferð og ráðast í fylgd
guðs riddara, heitandi þeim að gjalda aftur sínar eignir er áður höfðu
mist en gera fátæka ríka.9
Þessi boðskapur virðist vera í góðu samræmi við hugmyndafræði
klerka, enda höfðu þeir sem voru læsir og skrifandi mestan skilning
á nauðsyn þess að þjappa sundurleitum samfélögum saman and-
spænis sameiginlegum ytri óvini.10 En jafnframt er boðað að þeir
sem gleymi trúarlegu markmiði stríðsins vegna fégræðgi muni bíða
ósigur fyrir Serkjum. Ef hið fagra markmið gleymist er ósigurinn
vís.11
sverrir jakobsson14
7 Karlamagnus saga ok kappa hans. Fortællinger om kejser Karl Magnus og hans hævn-
inger i norsk be arbeidelse fra det trettende aarhundrede. Útg. Carl Rikard Unger
(Christiania: H.J. Jensen 1860) bls. 144; 155
8 Morkinskinna II. Útg. Ármann Jakobsson og Þórður Ingi Guðjónsson. Íslenzk
fornrit 23–24 (Reykjavík: Hið íslenzka fornritafélag 2011), bls. 134.
9 Karlamagnus saga ok kappa hans, bls. 153.
10 Robert I. Moore, The Formation of a Persecuting Society. Power and Deviance in
Western Europe, 950–1250 (Oxford: Blackwell 1987), bls. 135–136.
11 Karlamagnus saga ok kappa hans, bls. 155.
Saga haust 2012_Saga haust 2004 - NOTA 27.11.2012 10:46 Page 14