Saga


Saga - 2012, Blaðsíða 159

Saga - 2012, Blaðsíða 159
og kvenfrelsis. Lögð var áhersla á hlutverk kvenna, þá sérstaklega móður og húsmóður, í varðveislu menningararfsins og þar með þjóð frelsisins. Halldóra Bjarnadóttir giftist aldrei, og gaf hún þá skýringu í ævisögu sinni að hún hafi kosið að vera sinn eigin herra. Þar vísar hún til þess að kona sem vildi vera sjálfstæð, ráða sínu lífi, varð á þessum tímum að taka sér hlutverk sem í raun var líkara karlhlutverki en hlutverki kynsystra hennar. Til þess að vera efna- lega sjálfstæð varð hún að menntast og taka að sér starf, sem aftur var frem- ur hlutskipti karla en kvenna. Halldóra þurfti aldrei að standa fyrir búi; hennar hlutverk var utan heimilis, á opinberum vettvangi. Það voru á unglingsárum Halldóru ekki mörg störf sem tryggðu konum það sjálfstæði sem hún sóttist eftir. Kennarastarfið var eitt af þessum fáu störf- um, og 1896 hélt Halldóra Bjarnadóttir utan til kennaranáms og varð sam- skipa til Kaupmannahafnar sex ungum mönnum sem einnig voru á leið til náms. Meðal þeirra var Guðmundur Finnbogason, einn helsti frumkvöðull á sviði íslenskra menntamála. Halldóra hélt til Óslóar, innritaðist þar á kenn- araskóla og lauk þaðan námi með góðum árangri vorið 1899. Þar með var hún komin í hóp þeirra fáu fullmenntuðu kennara sem Ísland hafði á að skipa um aldamótin. Um vorið sótti hún um að fá fast starf við Barnaskóla Reykjavíkur, með sama kaup og þeir kennarar skólans aðrir sem höfðu kennarapróf. Kröfu Halldóru var synjað. Því undi hún ekki en hélt aftur til Noregs þar sem hún starfaði sem kennari til 1908, er hún var skipuð skólastjóri Barnaskólans á Akureyri. Röggsemi stjórnandans Hall dóru var við brugðið þannig að hún hlaut af því mótbyr, og svo fór að Halldóra sagði starfi sínu upp eftir 10 ár þegar skólanefndarmenn vörðu hana ekki allir með tölu sem hún vildi eftir að nafnlaust skammarbréf birtist í bæjarblaði. Í ljósi þessarar forsögu konu, sem vildi vera sinn eigin herra með sjálf - stæðan efnahag, er áhugavert að skoða hvaða viðtökur það fær að Halldóru tekst að fá starf sitt að framgangi heimilisiðnaðar launað. Er sú óánægja sem það vakti öðrum þræði vegna þess að kona hefur þar gengið inn á opinber- an vettvang og þegið laun fyrir störf sem kvenhlutverkið skilgreindi sem ólaunuð? Að lokum má velta vöngum yfir því hvernig ýmsar hugmyndir hand- verkshreyfinganna hafa staðist tímans tönn, þ.e. hvort þær eigi sér sam- svörun í orðræðu okkar tíma? Þarna hef ég í huga ólíkar skoðanir á hand- verki um aldamótin 1900, sem eru raktar á bls. 190 og sömuleiðis á bls. 193. Þetta eru leiðarstef sem ég held að allt áhugafólk um handverk þekki úr samtímanum, og væri ástæða til að draga fram að hugmyndir sem eru á kreiki í dag eiga sér þannig langa sögu. Ég þakka Áslaugu Sverrisdóttur fyrir það ágæta framlag til íslenskrar menningarsögu sem Mótun hugmynda um íslenskt handverk 1850–1930. Áhrif fjölþjóðlegra hugmyndahreyfinga er. Verkið er áhugavert og eins og góðu fræðiriti sæmir vekur það margar spurningar, sem ég vona að verði til þess að fleira fræðafólk veiti þessu fræðasviði þá athygli sem það verðskuldar. andmæli 157 Saga haust 2012_Saga haust 2004 - NOTA 27.11.2012 10:47 Page 157
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212

x

Saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Saga
https://timarit.is/publication/775

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.