Saga - 2012, Side 45
„ánægja með það sem er … 43
andi bálköstu dregin“.26 Í seinni árgangi blaðsins má sjá skrif í anda
marxískrar stéttagreiningar. Sagt er að í samfélaginu sé stéttastríð
milli auðvaldsins og jafnréttismanna „þegar byrjað“ og verkalýður-
inn verði að berjast „við sína hagfræðislegu óvini“.27
Það var íslenskum jafnaðarmönnum í Winnipeg þó ákaflega
mikilvægt að sýna fram á það sem í þeirra augum var almenn skyn-
semi og hófsemd sósíalismans. Hvergi kom það jafnskýrt fram og í
umræðum þeirra um anarkisma, en þegar tilvist félagsins spurðist
út úthrópuðu ýmsir áhrifamenn í samfélagi Vestur-Íslendinga
félagið sem „stjórnleysingja-félag undir fölsku nafni.“28 Slíkt var
alvarleg ásökun aðeins örfáum dögum eftir að William McKinley
Bandaríkjaforseti var ráðinn af dögum af anarkistanum Leon
Czolgosz, en sá atburður hleypti af stað miklu nornafári um „anark-
istaógnina“.29 Magnús Poulson ritstjóri Lögbergs gekk svo langt að
vara við hverjum þeim félagsskap „að sósíalistum meðtöldum …
[sem] í ræðu og riti æsa fólkið gegn þeim mönnum, sem vegna auðs
og valda standa því ofar í mannfélaginu“ og beindi orðum sínum
sérstaklega að Jafnaðarmannafélaginu.30
Í andsvörum sínum lögðu liðsmenn Jafnaðarmannafélagsins
áherslu á að aðgreina sig frá þessari pólitísku grýlu — anarkisman-
um — en tengdu sósíalisma við skynsemi og almennar framfarir.
Sósíalismi og anarkismi væru andstæður, anarkismi þrifist best þar
sem harðstjórn ríkti og menntun væri léleg, en „þau öfl, sem fram-
leiða sósíalismus, n.l. frelsi og mentun, [séu] bezta vernd gegn
anarkismus“ líkt og sannaðist á því að í þeim löndum sem byggju
við mestan jöfnuð ætti anarkismi erfitt uppdráttar. Sósíalismi væri
því í raun samfélagsleg vörn gegn anarkisma.31 Þannig byggðist
skilgreining Jafnaðarmannafélagsins á hugmyndafræði sinni síst
26 S.J.J., „‘Sjáið manninn‘ eða: Auðvaldskúgarinn og framleiðandinn“, Dagskrá II
29. ágúst 1902, bls. 1.
27 Fyrri tilvitnun er úr: „Kirkjan“, Dagskrá II 10. nóvember 1902, bls. 2. Seinni til-
vitnun er úr: „Sigur pyngjunnar“, Dagskrá II 12. mars 1903, bls. 1.
28 „Winnipeg“, Dagskrá II 21. september 1901, bls. 4.
29 Sjá Sidney Fine, „Anarchism and the Assassination of McKinley“, American
Historical Review 60:4 (1955), bls. 777–799.
30 M. Paulson, „Jafnaðarmenn“, Lögberg 10. október 1901, bls. 2.
31 Stephan Thorson, „Hverjar eru orsakir til anarkismus?“ Lögberg 17. október
1901, bls. 7. Sjá einnig Stephan Thorson, „athugasemd“, Lögberg 9. ágúst 1900,
bls. 1; Stephan Thorson, „Sósíalistar og anarkistar“, Heimskringla 26. septem-
ber 1901, bls. 3.
Saga haust 2012_Saga haust 2004 - NOTA 27.11.2012 10:46 Page 43