Saga - 2012, Síða 140
íslensk stjórnvöld hafi ætíð verið í fullum rétti, einhugur hafi ríkt
um þá heilögu skyldu að vernda fiskistofnana og ráðamenn í
Washington hafi oftast haft miklar áhyggjur af gangi mála í þorska-
stríðunum. Þótt gagnrýni á þá söguskoðun hafi gætt undanfarin ár
má hún enn heita ríkjandi í huga ráðamanna, almennings og ekki
síst þeirra sem tóku þátt í átökunum á sínum tíma.29
Það liggur í hlutarins eðli að að höfundur doktorsritgerðar glími
við og gagnrýni ráðandi sjónarmið ef þurfa þykir. Krafan um
„nýnæmi“ er rík þegar slík skrif eru annars vegar.30 Á hinn bóginn
verður ekki séð að Rupprecht hafi í rannsókn sinni tekið afstöðu til
ólíkra sjónarmiða á Íslandi um sögu þorskastríðanna enda er það
illmögulegt án kunnáttu í íslensku. Mun fremur var hún einfald-
lega að bergmála þær skoðanir þýskra stjórnarerindreka og
ráðamanna sem komu fram í skjölunum sem hún gaumgæfði. Í því
ljósi verða túlkanir hennar ekki eins róttækar og ferskar. Þær verða
þó ekki verri fyrir vikið og ættu að ögra íslenskum fræðimönnum
á sviði þorskastríðanna, hvetja þá til að vera ekki aðeins á „eigin
hunda þúfu“ svo vitnað sé til fyrri orða Guðmundar J. Guðmunds -
sonar.
Einn þeirra bresku blaðamanna sem flaug til Íslands og flutti
fréttir úr þorskastríði var Roger Boyes. Síðar var hann meðal annars
fréttaritari í Bonn og Berlín. „Ég vinn eiginlega við að selja klisjur
um Þýskaland,“ sagði hann sjálfur um þá iðju, líklega bæði í gamni
og alvöru.31 Síðsumars 2009 kom út Meltdown Iceland, 244 blaðsíðna
löng bók hans um bankahrunið á Íslandi tæpu ári fyrr og aðdrag-
anda þess. Hún var rituð í hraði eins og gefur að skilja og ber þess
merki eins og önnur rit um hrunið sem birtust fyrst eftir það.
Hættan á mistökum eykst því hraðar sem menn þurfa að vinna.
Þetta gildir líka um mitt verk um atburðina, einkum þar sem sagan
snerist um hagfræði og fjármál, og rit Ásgeirs Jónssonar hagfræð -
guðni th. jóhannesson138
29 Um söguskoðun þorskastríðanna sjá Karl Ágústsson, „Sögu kennsla og
söguviðhorf. Um þjóðernisleg viðhorf og fræðilegan samanburð í sögukennslu
í framhaldsskólum, almennum viðhorfum og opinberri um ræðu.“ MA-ritgerð
í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akur eyri 2010, bls. 60–61 og 67–72. Sjá
einnig sjá Guðni Th. Jóhannesson, „Þorska stríðin“, bls. 69–71.
30 Sjá t.d. Frank Ankersmit, Narrative Logic. A Semantic Analysis of the Historian‘s
Language. Martinus Nijhoff Philosophy Library 7 (Haag: Nijhoff 1983), bls. 239,
og Richard J. Evans, In Defence of History (London: Granta 1997), bls. 21.
31 Sigurbjörg Þrastardóttir, „Vinsamlegast breyttu bókinni“, Lesbók Morgun -
blaðsins 28. apríl 2007.
Saga haust 2012_Saga haust 2004 - NOTA 27.11.2012 10:47 Page 138