Saga - 2012, Síða 143
„Mér fannst hún svakalega illa undirbúin. Þekkti ekki Jón Ásgeir frá
Björgólfi Thor og ég þurfti að útskýra allt.“39 Nær enginn hinna
erlendu gesta kunni íslensku og voru þeir því háðir takmörkuðum
upplýsingum á öðrum tungumálum, auk lýsinga viðmælenda sem
freistuðust jafnvel til að klæða eigin ályktanir eða fordóma í búning
órækra staðreynda. Sú mynd sem aðkomumennirnir drógu upp gat
því verið fölsk, röng og ýkt. Eina víðlesnustu frásögnina átti eflaust
verðlaunahöfundurinn Michael Lewis. Í langri grein í tímaritinu
Vanity Fair sagði hann meðal annars frá „gjaldþrota“ þjóð sem
hamstraði gjaldeyri og matvæli um leið og sumir „sprengdu upp“
Range Roverana sína „fyrir tryggingaféð“. Álfatrú kom einnig mikið
við sögu og sú „staðreynd“ að á Íslandi gæti hver sem væri stofnað
trúfélag og fengið til þess ríkisstyrk.40 Rangfærslur og ýkjur gerðu
skrifin kannski skemmtilegri aflestrar fyrir ókunnuga en þeir sem
þekktu betur til hlutu að hugsa sitt þótt greining Lewis væri að
mörgu leyti skörp.41
Einungis fjögur ár eru liðin síðan bankarnir hrundu á Íslandi.
Sjálfsagt var að fjölmiðlamenn kæmu fyrstir á vettvang að utan og
skráðu hvað fyrir augu bar. Hvorki Roger Boyes né Michael Lewis
eða aðrir fjölmiðlamenn sem skruppu til Íslands ætluðu sér þó þá
dul að telja verk sín til fræðilegra rannsókna. Afraksturinn hlýtur
samt að verða nýttur að einhverju leyti við slíka iðju og kannski
sýna efnistök blaðamannanna hvaða víti þarf þá að varast. Í fjöl -
miðlun og fræðilegum rannsóknum á liðinni tíð er helsta markmiðið
það sama, að greina frá því sem gerðist og leggja mat á það. Einn
munurinn er þó sá að fræðimenn geta að öllu jöfnu einbeitt sér að
sínu sérsviði, þeir þurfa ekki að skila sínu eins hratt og fjölmiðla-
fólkið á faraldsfæti og eiga því að skila trúverðugri rannsóknum.
Þetta veldur eflaust miklu um það að enn hefur enginn erlendur
fræðimaður samið gagngert, fræðilegt rit um bankahrunið, orsakir
þess og afleiðingar. Að því mun ugglaust koma á næstu árum.
gests augað 141
39 Vefsíða Gunnars Hjálmarssonar („Dr. Gunna“), [http://this.is/drgunni/
gerast0708.html], 14. okt. 2008.
40 Michael Lewis, „Wall Street on the Tundra“, Vanity Fair, apríl 2009. Greinin er
einnig birt í bók Lewis, Boomerang: The Meltdown Tour (London: Allen Lane
2011), bls. 1–40.
41 Bandarískur blaðamaður, búsettur á Íslandi, benti á meint mistök og rang-
færslur í grein Lewis. Jonas Moody, „Vanity Fair‘s Fishy Tales From Iceland“,
New York Magazine [http://nymag.com/daily/intel/2009/03/reality_check_
vanity_fairs_fis.html], 18. mars 2009.
Saga haust 2012_Saga haust 2004 - NOTA 27.11.2012 10:47 Page 141