Saga - 2012, Síða 205
útgáfuna sem lýtur að dómum og skjölum áranna 1690–1710. Al -
þingi styrkti gerð verksins og er ætlunin að annað bindi komi út á
næstu árum, fáist til þess nauðsynlegt fé. Gera má ráð fyrir að gögn
Yfirréttarins á Íslandi, sem var við lýði árin 1563–1800, komi út í
samtals átta bindum.
Laust fyrir síðustu jól kom svo út hjá Sögufélagi bók Páls Björns -
sonar, Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar.
Bókin er ríkulega myndskreytt, 321 blaðsíða, og gefin út með styrk
frá Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Ekki er að orðlengja að bókin
er glæsileg í alla staði og var lofuð eftir því. Hér skal aðeins tilgreint
eitt dæmi, úr ritdómi Egils Ólafssonar, blaðamanns Morgunblaðsins,
en þar segir meðal annars:
Bókin er efnismikil og vitnað er til gríðarlega margra heimilda, en frá-
sögnin verður aldrei langdregin eða leiðinleg. … Páll hefur leyst þetta
verk einstaklega vel af hendi. Fyrir alla þá sem áhuga hafa á þjóðerni
og því hvernig sjálfsmynd Íslendinga varð til er bókin skyldulesning.
Kostir hennar eru ekki síst að í henni er góð sagnfræði en jafnframt
tekst Páli að skrifa aðgengilega bók fyrir allan almenning.
Enn fengust kostir bókarinnar staðfestir í byrjun þessa árs þegar
höfundurinn hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita
og bóka almenns efnis. Var Páll Björnsson vel að þeim heiðri kom-
inn og Sögufélag fagnaði því um leið að þetta var í fyrsta sinn sem
höfundur á vegum þess varð hins mikla heiðurs aðnjótandi.
Öll þau rit, sem hér hafa verið nefnd, voru undirbúin í tíð fyrri
forseta Sögufélags og voru nánast tilbúin þegar forsetaskipti urðu.
Var gerð þeirra rakin nánar í skýrslu Önnu Agnarsdóttur á síðasta
aðalfundi og vísast til hennar um frekari upplýsingar.
Sagan af klaustrinu á Skriðu. Það sem af er þessu ári hefur ein bók
komið út hjá Sögufélagi. Eitt fyrsta verk nýs forseta var að svara
þeirri fyrirspurn Steinunnar Kristjánsdóttur fornleifafræðings hvort
félagið vildi gefa út rit hennar um fornleifauppgröftinn á Skriðu í
Fljótsdal. Eftir samráð við stjórn var Steinunni svarað að til þess
væri ríkur vilji og reyndist það gæfuspor. Sunnudaginn 19. ágúst
síðastliðinn, réttum fimm öldum eftir að Stefán Jónsson Skálholts -
biskup vígði klausturkirkjuna á Skriðu, kom út bókin Sagan af
klaustrinu á Skriðu. Verkið er veglegt í alla staði, 375 blaðsíður með
kortum, teikningum og myndum. Þakkarverð framlög til verksins
fengust frá Bókmenntasjóði, Rannís, Þjóðminjasafni Íslands og
Skriðuklaustursrannsóknum. Bók Steinunnar hefur verið vel tekið.
af aðalfundi sögufélags 2011 203
Saga haust 2012_Saga haust 2004 - NOTA 27.11.2012 10:47 Page 203