Bændablaðið - 16.12.2021, Page 36

Bændablaðið - 16.12.2021, Page 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202136 Geirmundur Valtýsson hefur sungið fyrir þjóðina í 65 ár og þar af með hljómsveit Geirmundar Valtýssonar í 50 ár, eða hálfa öld. Í tengslum við ritun bókar sinnar, Guðni á ferð og flugi, heimsótti Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, Geirmund í sumar á Geirmundarstaði þar sem hann rekur bú. Þar áttu þeir hressilegt spjall líkt og lesa má í bók Guðna. Í máli Geirmundar kom fram að hann vildi eignast hryssu undan stóðhestinum Glaumi sem áður var í hans eigu. Nú ætti hann enga meri undan Glaumi. Geirmundur taldi mikilvægt að Glaumsgenin kæmu aftur heim. Guðna þótti við hæfi að Skagfirðingar myndu heiðra söngva- skáldið sitt. Þegar hann hélt sæll og saddur frá Geirmundarstöðum hét hann því að fá héraðsmenn í lið með sér og gefa Geirmundi hryssu undan Glaumi. Kom sveiflukónginum rækilega á óvart Guðni sætti lagi í útgáfuhófi sem hann hélt í Kakalaskála í Skagafirði vegna útgáfu nýju bókarinnar. Hann fékk sveiflukónginn til að taka nokkur lög á nikkuna, en kom honum síðan rækilega á óvart þegar þeir feðgar, Bjarni Maronsson og Kolbeinn sonur hans, leiddu hryssuna Sóleyju frá Búðardal inn á gólfið í Kakalaskála, en hryssan er undan áðurnefndum Glaumi. Með gjöfinni vildu vinir Geirmundar þakka sveiflukónginum fyrir að hafa haldið uppi fjöri hjá þjóðinni með spili og söng öll þessi ár. Í ávarpi sínu þakkaði Guðni sérstaklega Mínervu Björnsdóttur, eiginkonu Geirmundar, fyrir að hafa gefið þjóðinni svo stóran hlut í Geirmundi enda væri hann flestar helgar af bæ þar sem hann þeyttist um og skemmti landanum. Nefndi Guðni einnig í ávarpinu að Geirmundur hefði með blíðum söng sínum leitt varir að vörum og vanga að vanga hjá hinum ástföngnu, og þúsundir hjónabanda hefðu orðið til undir seiðandi tónlist söngva- skáldsins. Gleði og glaumur glumdu í Kakalaskálanum og vísur flugu óspart af vörum gesta. Ein varð þó til daginn áður er séra Hjálmar Jónsson lagði niður störf við að elta golfkúlu á Spáni. Hann orti þetta þakklætis- ljóð til Geirmundar sem Guðni flutti í Kakalaskála: Hann þreytist ei böll á að bruna, bestur með harmonikkuna, og hefur með drift síðpilsum svipt lengur en elstu menn muna. Við hrífumst af hljómþýðum dyni frá heiðruðum félaga og vini. Hún er glæst, þessi höll. Hér gleðjumst við öll með Geirmundi Valtýssyni. Það fer ekki á milli mála að mæti hver einasta sála því Guðni og Geiri og gæðingar fleiri nú skemmta í Kakalaskála. Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum í Húnaþingi flutti svo Geirmundi svohljóðandi kveðju: Ungur steigstu upp á svið. Urðu dansar fleiri. Ástir kvikna ólgum við, enda rómó Geiri. Ávallt fjörið er við völd, atlot ná að beði. Hartnær muntu í heila öld halda uppi gleði. Unaðsstundir þökkum þér, því af Glaumsins kyni, gæðahryssu gefum vér Geira Valtýssyni. Geirmundur var mjög glaður með gjöfina og aðspurður sagði hann nú á dögunum að Sóley yndi hag sínum vel á Geirmundarstöðum en þar reka þau hjónin bú og halda um hundrað ær og nokkur hross. Magnús Eiríksson tónlistarmaður sagði í frægu lagi sínu að sérhver vegur að heiman væri vegurinn heim. Ljóst er því að ættbogi Glaums er kominn aftur á Geirmundarstaði. /GRJ/HKR LÍF&STARF HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, kom skagfirskum sveiflukóngi rækilega á óvart: Vinir Geirmundar þökkuðu gleðigjafanum fyrir áratuga spilamennsku með hryssunni Sóleyju Ferðalag Guðna Ágústssonar um sveitir landsins við að kynna nýja bók sína, kveikti hugmynd að merkilegri uppákomu í Kakalaskála. Þar var sveiflukónginum Geirmundi Valtýs­ syni þakkað fyrir alla þá gleði sem hann hefur veitt þjóðinni í gegnum áratugina með spilamennsku sinni, söng og samningu mikils fjölda stuðlaga sem notið hafa gríðarlegra vinsælda. Guðni Ágústsson og Geirmundur Valtýsson í Kakalaskála með hryssuna Sóleyju frá Búðardal sem Guðni færði sveiflukónginum að gjöf frá vinum hans. Mynd / Árni Gunnarsson Óskum lesendum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs Kemur næst út 13. janúar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.