Bændablaðið - 16.12.2021, Side 51

Bændablaðið - 16.12.2021, Side 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 51 Gísli Sverrir Halldórsson dýralæknir stundar blóðtökur: Erfitt að sitja undir því að vera kallaður dýraníðingur – Fagnar því að farið sé ofan í saumana á blóðmerastarfseminni „Mér þykir mjög erfitt að sitja undir því að vera kallaður dýra- níðingur. Eins og ég þekki starf- semina þá er aðbúnaður alveg til fyrirmyndar. Ég kannast ekki við þær aðferðir sem koma fram í myndbandinu og það er augljóst að þar hefur orðið einhver misbrestur. Það er mér framandi að starfsem- in fari fram með þessum hætti,“ segir Gísli Sverrir Halldórsson dýralæknir. Hann hefur stundað blóðtökur í sjö ár. Gísli segist ekki kannast við þá aðila sem uppvísir eru að harkalegri meðför dýra í myndbandi dýraverndarsamtakanna AWF/TSB og segir þá ekki dýralækna. Sjálfur þjónustar hann fimm bæi með 20-65 merum á hverjum stað. „Við kappkostum að allt sé gert í rólegheitum. Megnið af þeim hryss- um sem ég tek blóð úr eru tamdar, mismikið auðvitað. Þær temjast líka við að fara í tökubás og eru vanar þeim út af öðrum aðgerðum, s.s. þegar verið er að snyrta hófa, tagl og fax, gefa ormalyf og fangskoða. Ég fer tólf sinnum á blóðtökutímabilinu á hvern bæ, bæði til að taka sýni og blóð og fylgist með hryssunum. Blóðtakan sjálf tekur að meðaltali 5 mínútur og flestar hryssur fara 5-6 sinnum í blóðtökur. Sumar fara kannski þrisvar og nokkrar átta sinnum. Samanlagt erum við að tala um að hryssa sé í tökubásnum í 30-40 mínútur á ári að meðaltali. Þess á milli eru þær úti í náttúrunni og í haganum með folöldin sín.“ Annar raunveruleiki en myndbandið sýnir Að sögn Gísla á búgreinin og starfsemin hér á landi ekkert skylt við suður-amerískar aðferðir. „Í sumar fylgdust erlendir gestir sem voru að kynna sér starfsemina með blóðtökum hjá mér og þeir voru gáttaðir á hvað hryssurnar voru rólegar og yfirvegaðar. Mér þótti vænt um að heyra það enda er það þvert á þá ímynd sem myndbandið bregður upp af þessari atvinnugrein. Það yrði enginn vandi að klippa saman myndbönd sem endurspegla allt annan raunveruleika. Samkvæmt minni reynslu fer blóðtaka fram í rólegheitum, við erum ekki í neinu kapphlaupi við tímann. Ég nota 1-2 tökubása á hverjum stað og stend við hlið hryssunnar og held við nálina meðan blóðtakan fer fram. Hryssurnar eru auðvitað misjafnar eins og reiðhrossin. Sumar kæra sig ekkert um mann á meðan aðrar lygna augunum og bíða.“ Eftirlitið telur hann gott en tekur því fagnandi verði það aukið. „Fyrir utan eftirlit okkar dýralækna með hryssunum og aðbúnaðinum á meðan við erum að störfum þá koma eftirlitsaðilar bæði frá MAST og Ísteka. Í mínu tilfelli hef ég fengið eftirlitsheimsóknir á alla bæina frá báðum aðilum á síðastliðnum tveimur árum. Það má vel auka það, til dæmis með myndatökum eða stikkprufum,“ segir Gísli. Mögulegt bann ekki boðlegt „Hesturinn er eina dýrategundin á Íslandi sem er bæði gæludýr og húsdýr. Aðeins hér á landi þekkist það að vera með hross í stóðum. Þú finnur ekki hjarðir á Norðurlöndum eða Evrópu. Þetta er sérfyrirbrigði á Íslandi, sér í lagi því við höfum land- rýmið fyrir fjölda hrossa. Þess vegna er þessi starfsemi hér. Stóðbændur höfðu framan af tvo kosti til að afla tekna; annars vegar að selja til lífs og tamninga og hins vegar til manneldis. Svo bætist blóðmerarbúgreinin við fyrir rúmum 40 árum síðan og hefur hún vaxið síðan. Ég sé ekkert athuga- vert við hana en með þeim fyrirvara að rétt sé staðið að henni,“ segir Gísli. Hann telur ekki vitrænt að stöðva búskapinn á grundvelli dýraníðs eins og lagt er til í frumvarpi sem nú er í meðförum Alþingis. „Ég fagna því að það sé verið að fara ofan í saumana á starfseminni. Allir sem að henni koma mega líta í eigin barm, ekki síður dýralæknar en aðrir. En ég á erfitt með að sætta mig við ef þetta verður bannað á forsend- um dýraníðs. Afleiðingin yrði slátr- un á ríflega 5.000 hryssum sem yrði einfaldlega hent.“ Kemísk efni notuð hér á landi til að samstilla búfé Gísli segir að verið sé að framleiða verðmæta afurð sem eftirspurn sé eftir. „Úr blóðinu er unnið hormón sem notað er til að samstilla gangmál hjá búfénaði. Í öllum búrekstri, einnig hér á landi, eru efni notuð til að sam- stilla bæði kýr, kindur og hross. Það er gert hér á landi með kemískum efnum, unnið í efnaverksmiðjum. Afurðin sem fæst úr merarblóði er hins vegar lífræn og það er botnlaus eftirspurn eftir henni um allan heim.“ Dýralæknar fá greitt fyrir vinnu sína miðað við fjölda hryssa í blóð- gjöf. Gísli segir að samningur milli Ísteka og dýralækna hafi verið endur- nýjaður í sumar. „Hann er mjög ítarlegur og ábyrgð dýralæknisins er skýr, við berum ábyrgð á blóðtökunni. Það vantar heldur ekki viljann hjá Ísteka og bændum til að vel að verki sé staðið og allir eru að vanda til verka að mínu mati. Því það bera allir same iginlega ábyrgð á því að gæta að velferð dýr- anna. Enda er bændum og dýralækn- um sérstaklega umhugað um hana.“ /ghp Gísli Sverrir Halldórsson. Mikilvægt hlutverk dýralækna „Dýrlæknarnir gegna mikilvægu hlutverki og leggja í raun mat á hverja hryssu við hverja blóð- töku. Þeir hafa komið með mik- ilvægar ábendingar um hvað má betur fara og þannig komið að því að móta starfsskilyrði fyrir greinina. Þrátt fyrir að alla jafna sé um reynslumikla dýralækna að ræða getur verið erfitt að hafa heildar yfirsýn eftir að blóðtaka hefst og því er þetta fyrirkomulag eitt af því sem er til skoðun- ar,“ segir Sigríður Björnsdóttir, sérgreinadýralæknir hrossa hjá Matvælastofnun. Þótt dýralæknar vinni á akkorði sé enginn ávinningur fólginn í því fyrir þá að ýta undir stress og flýti. „Hross eru viðkvæm og það versta sem þú gerir, ef þú ætlar að auka skilvirkni, er að stressa þau upp og gera þau örvingluð. Það ber öllum saman um. Eina sem þú hefur upp úr því er að allt gengur verr. Sem betur fer er langalgengast að allir sem að blóðtökunni koma gangi fum- laust til sinna verka.“ Sigríður Björnsdóttir. Jólagjöfin í ár Tækið sem allir eru að tala um! Thermomix vinnur á við 20 hefðbundin eldhústæki og áhöld og er fullkomin matreiðslu- og eldavél; saxar, maukar, þeytir, hrærir, hakkar, blandar, hnoðar, eldar, vigtar, gufusýður, hægeldar og fleira. Hentar öllum heimilum og léttir hversdagslífið. Uppskriftir fylgja en einnig hægt að nota sínar eigin. Bjóðum uppá heimakynningar og netkynningar. Gæðavara á góðu verði! ELDHÚSTÖFRAR EHF. SÍÐUMÚLI 29 108 REYKJAVÍK INFO@ELDHUSTOFRAR.IS SÍMI: 696-7186 THERMOMIXICELAND THERMOMIX Á ÍSLANDI ELDHUSTOFRAR.IS „Samanlagt erum við að tala um að hryssa sé í tökubásnum í 30-40 mínútur á ári að meðaltali. Þess á milli eru þær úti í náttúrunni og í haganum með folöldin sín,“ segir Gísli.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.