Bændablaðið - 16.12.2021, Side 94

Bændablaðið - 16.12.2021, Side 94
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202194 Laugardaginn 4. desember kynnti Hekla h/f við Laugaveg nýjan Mitsubishi Eclipse Cross, raf- magns/bensínbíl sem er aðeins minni og styttri en Mitsubishi Outlander sem hér í þessum próf- unarpistlum var tvisvar kosinn bíll ársins. Eftir kynninguna fékk ég eina útgáfuna af þremur Mitsubishi Eclipse Cross til prufu. Gafst upp vegna veðurs í miðjum prufuakstri Veðrið á laugardeginum var eins fallegt og hugsast getur á desemberdegi og keyrði ég bílinn aðeins innanbæjar og lofaði aksturinn góðu. Daginn eftir var veðrið eins vont og hugsast gat til prufuaksturs, yfir 20 metra vindur, rigning og ef farnir voru fáfarnir vegir var hálkan þar of mikil fyrir ónegld vetrardekkin sem undir bílnum var. Eftir rúman 90 km akstur varð ég að játa mig sigraðan, veðrið var einfaldlega ekki með mér þennan dag, náði ekki að prófa eyðsluna í langkeyrslu og ekki á holóttum malarvegi. Þrátt fyrir vont veður náði ég að taka hávaðamælingu, en því miður var ég búinn með rafmagnið fyrir mælinguna og því eingöngu hægt að mæla bílinn á 90 km hraða á bensínmótornum sem mældist vera 67,3db. Kraftmikil vél, en fljótur að klára rafmagnið Mitsubishi Eclipse Cross eru boðnir í þremur mismunandi útgáfum, Invite, Intense og Instyle. Verðið er frá 5.490.000 upp í 6.290.000, en eftir næstu áramót munu þessir bílar hækka um yfir 900.000 vegna breytinga á virðisauka. Allir bílarnir eru með sama vél- búnaðinn, bensínvél og rafmagn sem skilar 204 hestöflum, eingöngu er sjálfskipting í boði. Uppgefin bensíneyðsla er 1,7 lítrar á hundraðið miðað við bestu aðstæður og fullhlaðna rafhlöðu fyrstu 100 km. Það tók mig ekki langa stund að klára endanlega drægnina í rafmagn- inu. Þegar ég fékk bílinn eftir að ein- hverjir viðskiptavinir Heklu höfðu prófað bílinn yfir daginn var uppgefin drægni á rafmagninu 11 km, en upp- gefin hámarksdrægni á rafmagninu einu er 45 km við bestu aðstæður. Því fór nánast allur aksturinn fram á bensínmótornum. Eins og áður sagði var ekki boð- legt veður til að fara út fyrir bæinn og því fór allur aksturinn fram innan- bæjar, en í lokin sagði aksturstölvan að ég hefði verið að eyða 11,6 lítrum á hundraðið í rokinu og vatnsveðrinu sunnudaginn 5. desember. Lofar góðu þrátt fyrir vont veður í prufuakstrinum Að keyra bílinn er fínt, kraftur góður og snerpan í bílnum mjög góð (næstum of góð því ég stóð mig nokkrum sinnum að því að vera kom- inn á ólöglegan hraða eftir start eða beygju). Bíllinn var fljótur að hitna að innan og ef sætishitarinn er settur á hærri styrkinn er hann innan við mínútu að hita sætið of mikið fyrir minn smekk. Sætin eru góð og gott að ná til allra stjórntækja. Hægt er að velja á milli fimm mismunandi stillinga til að keyra bílinn í, Tarmac, Gravel, Snow, Normal og Eco. Mér fannst skemmtilegasta snerpan í bílnum þegar stillt var á Tarmac, en raf- magnsmótorinn hélst lengst á ef stillt var á Normal eða Eco. Eins og í flestum rafmagns/bens- ínbílum er ekkert varadekk í bílnum, en það er þó rafmagnspumpa, felgu- lykill og tjakkur í þessum bíl. Ekki var hægt að prófa hvernig hann var á malarvegi vegna veðurs og klaka, en fjöðrunin er ágæt sé tekið mið af fjölmörgum hraðahindrunum á götum Reykjavíkur. Breyting á virðisaukaskatti væntanleg Lokaorðin frá mér er að þetta sé ágætis bíll, hefði þó viljað prófa hann betur. Eins og áður sagði þá er vænt- anleg hækkun á virðisaukaskatti á hybrid bílum, en Hekla á nokkra bíla sem eru tilbúnir til afgreiðslu strax og fást þá á rúmlega 900.000 lægra verði en þeir verða á eftir áramót. Annars var ég sáttur við bílinn í alla staði fyrir utan að mér finnst nauðsynlegt að vera með varadekk, verðið er gott, bíllinn kraftmikill og þægilegur í akstri. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Nýr Mitsubishi Eclipse Cross Mitsubishi Eclipse Cross Intense. Myndir / HLJ Þurfti ekki að hugsa um afturljósin, þau voru alltaf kveikt. Í dýrasta bílnum er 220 volta tengill aftur í bílnum. Á rafmagninu byrjaði ég sem var fljótt að klárast. Í vali eru fimm mismunandi akstursstillingar. Ekkert varadekk, en pumpa, felgulykill og tjakkur. Lengd 4.545 mm Hæð 1.685 mm Breidd 1.805 mm Helstu mál og upplýsingar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.