Bændablaðið - 16.12.2021, Qupperneq 94
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202194
Laugardaginn 4. desember kynnti
Hekla h/f við Laugaveg nýjan
Mitsubishi Eclipse Cross, raf-
magns/bensínbíl sem er aðeins
minni og styttri en Mitsubishi
Outlander sem hér í þessum próf-
unarpistlum var tvisvar kosinn bíll
ársins.
Eftir kynninguna fékk ég eina
útgáfuna af þremur Mitsubishi
Eclipse Cross til prufu.
Gafst upp vegna veðurs
í miðjum prufuakstri
Veðrið á laugardeginum var
eins fallegt og hugsast getur á
desemberdegi og keyrði ég bílinn
aðeins innanbæjar og lofaði aksturinn
góðu. Daginn eftir var veðrið eins
vont og hugsast gat til prufuaksturs,
yfir 20 metra vindur, rigning og ef
farnir voru fáfarnir vegir var hálkan
þar of mikil fyrir ónegld vetrardekkin
sem undir bílnum var.
Eftir rúman 90 km akstur varð
ég að játa mig sigraðan, veðrið var
einfaldlega ekki með mér þennan
dag, náði ekki að prófa eyðsluna
í langkeyrslu og ekki á holóttum
malarvegi.
Þrátt fyrir vont veður náði ég að
taka hávaðamælingu, en því miður
var ég búinn með rafmagnið fyrir
mælinguna og því eingöngu hægt
að mæla bílinn á 90 km hraða
á bensínmótornum sem mældist vera
67,3db.
Kraftmikil vél, en fljótur
að klára rafmagnið
Mitsubishi Eclipse Cross eru boðnir
í þremur mismunandi útgáfum,
Invite, Intense og Instyle. Verðið
er frá 5.490.000 upp í 6.290.000,
en eftir næstu áramót munu þessir
bílar hækka um yfir 900.000 vegna
breytinga á virðisauka.
Allir bílarnir eru með sama vél-
búnaðinn, bensínvél og rafmagn sem
skilar 204 hestöflum, eingöngu er
sjálfskipting í boði.
Uppgefin bensíneyðsla er 1,7
lítrar á hundraðið miðað við bestu
aðstæður og fullhlaðna rafhlöðu
fyrstu 100 km.
Það tók mig ekki langa stund að
klára endanlega drægnina í rafmagn-
inu. Þegar ég fékk bílinn eftir að ein-
hverjir viðskiptavinir Heklu höfðu
prófað bílinn yfir daginn var uppgefin
drægni á rafmagninu 11 km, en upp-
gefin hámarksdrægni á rafmagninu
einu er 45 km við bestu aðstæður.
Því fór nánast allur aksturinn fram á
bensínmótornum.
Eins og áður sagði var ekki boð-
legt veður til að fara út fyrir bæinn
og því fór allur aksturinn fram innan-
bæjar, en í lokin sagði aksturstölvan
að ég hefði verið að eyða 11,6 lítrum
á hundraðið í rokinu og vatnsveðrinu
sunnudaginn 5. desember.
Lofar góðu þrátt fyrir vont veður í
prufuakstrinum
Að keyra bílinn er fínt, kraftur
góður og snerpan í bílnum mjög
góð (næstum of góð því ég stóð mig
nokkrum sinnum að því að vera kom-
inn á ólöglegan hraða eftir start eða
beygju).
Bíllinn var fljótur að hitna að
innan og ef sætishitarinn er settur
á hærri styrkinn er hann innan við
mínútu að hita sætið of mikið fyrir
minn smekk.
Sætin eru góð og gott að ná til
allra stjórntækja. Hægt er að velja á
milli fimm mismunandi stillinga til
að keyra bílinn í, Tarmac, Gravel,
Snow, Normal og Eco. Mér fannst
skemmtilegasta snerpan í bílnum
þegar stillt var á Tarmac, en raf-
magnsmótorinn hélst lengst á ef stillt
var á Normal eða Eco.
Eins og í flestum rafmagns/bens-
ínbílum er ekkert varadekk í bílnum,
en það er þó rafmagnspumpa, felgu-
lykill og tjakkur í þessum bíl.
Ekki var hægt að prófa hvernig
hann var á malarvegi vegna veðurs og
klaka, en fjöðrunin er ágæt sé tekið
mið af fjölmörgum hraðahindrunum
á götum Reykjavíkur.
Breyting á virðisaukaskatti
væntanleg
Lokaorðin frá mér er að þetta sé
ágætis bíll, hefði þó viljað prófa
hann betur.
Eins og áður sagði þá er vænt-
anleg hækkun á virðisaukaskatti á
hybrid bílum, en Hekla á nokkra bíla
sem eru tilbúnir til afgreiðslu strax og
fást þá á rúmlega 900.000 lægra verði
en þeir verða á eftir áramót.
Annars var ég sáttur við bílinn
í alla staði fyrir utan að mér finnst
nauðsynlegt að vera með varadekk,
verðið er gott, bíllinn kraftmikill og
þægilegur í akstri.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Nýr Mitsubishi Eclipse Cross
Mitsubishi Eclipse Cross Intense. Myndir / HLJ
Þurfti ekki að hugsa um afturljósin, þau voru alltaf kveikt.
Í dýrasta bílnum er 220 volta tengill
aftur í bílnum.
Á rafmagninu byrjaði ég sem var fljótt að klárast.
Í vali eru fimm mismunandi akstursstillingar.
Ekkert varadekk, en pumpa, felgulykill og tjakkur.
Lengd 4.545 mm
Hæð 1.685 mm
Breidd 1.805 mm
Helstu mál og upplýsingar