Bændablaðið - 16.12.2021, Side 95

Bændablaðið - 16.12.2021, Side 95
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 95 Þann 1. desember síðastliðinn var dagur reykskynjarans, á þeim degi er mælst til þess að farið sé yfir hvort reykskynjarar heimilisins virka og séu í lagi. Til að kanna hvort reykskynjari sé í lagi er á þeim lítill hnappur sem maður ýtir á og á þá reykskynjarinn að gefa frá sér hljóð. Í öllum hefðbundnum reykskynjurum á að skipta um rafhlöðu einu sinni á ári (á mínu heimili er það ákveðinn dagur sem hefur hingað til ekki gleymst). Hins vegar eru líka komnir á markað reykskynjarar sem eru með innbyggða rafhlöðu sem á að endast í tíu ár. Að þeim tíma loknum er einfaldlega skipt um reykskynjara. Svo eru það slökkvitækin, en utan á öllum slökkvitækjum er lít- ill límmiði sem segir til um hvenær á að yfirfara slökkvitækið næst, en flest lítil slökkvitæki sem eru á heimilum á að yfirfara árlega. Ljósaseríur utandyra eru almennt mikið augnayndi. Þeir sem eru með margar seríur þurfa að gæta vel af tengingum, fram- lengingarsnúrum, því ef of mikið álag er í rafmagninu getur það myndað hita og að endingu elds- voða. Síðan er það vatnsveðrið og vindurinn sem getur myndað skammhlaup og útslátt af rafmagni sem oft getur verið erfitt að finna. Margir eldsvoðar hafa orsakast af kertaskreytingum Desember er sá mánuður sem oftast er kveikt á kertum, en við notkun kertaljósa er margt að varast. Þegar kveikt er á kertum er ágætt að hugsa um hvað getur hugsanlega eða í versta falli orðið til þess að þetta kerti valdi eldsvoða? Eitt atriði er vanmetið og sjaldan hugsað út í þegar kveikt er á kertum, en það eru heimilisdýrin, hundar og kettir. Heimilisdýrin eru ekki alltaf meðvituð um hættuna og köttum er gjarnt að nudda sér utan í hluti og ef það er kerti sem fellur á hliðina á eitthvað auðbrennanlegt þarf ekki að líða langur tími þar til að eldurinn verður óviðráðanlegur. Hundar eru meiri varðdýr og ef dyrabjallan hringir eða bankað er á útihurð sprettur hundur stundum upp úr sínu bæli með svo miklum látum í átt að útihurð að gusturinn af honum getur hæglega hent niður logandi kerti. Alltaf að byrja á að hringja í 112 Allir á heimilinu ættu að hafa ákveðið hlutverk ef upp kemur eldur. Börnum allt niður í 4-5 ára er hægt að kenna brunavarnir, en númer eitt, alltaf byrja á að hringja í 112 og síðan að forða sér út eins fljótt og hægt er. Á veraldarvefnum er mikið til af kennslumyndböndum hvernig eigi að bregðast við eldsvoða. Svona myndbönd er gott að sýna börnunum sínum og að lokinni sýningu segja frá hvernig þau eigi að bregðast við á þínu heimili. Sorgleitt að heyra brunafréttir rétt fyrir jól Fátt finnst mér dapurlegra en að heyra fréttir af fjölskyldum sem missa allt sitt í bruna rétt fyrir jól. Jólin er sá tími sem nánast allir hlakka til, en til að forðast bruna út frá jólatré, aðventuskreytingum eða einhverju öðru, farið varlega með eld. Það tekur ekki nema um 30 sek. fyrir þurrt jólatré að verða alelda (sjá skjáskot úr forvarnarmyndbandi á 22. sek. á mynd). Fyrir nokkru horfði ég á forvarnarmyndband á fréttasíðunni www.ladbible.com, en þar var sett skeiðklukka í hornið á myndbandinu og eftir 30 sek. var tréð brunnið og það sem var næst trénu byrjað að brenna. Þar sem að þetta er síðasta Bændablaðið fyrir jól vil ég misnota aðstöðu mína hér og óska lesendum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • Vefverslun: www.skorri.is Öll hleðslutæki með afslætti fram að jólum Hleðslutæki 20% Afsláttu r Jólatilboð! ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is ILLFYGLI BURÐAST ÁLAG FÉLAGI L SLAGA ARMA UMBER VEISLA HMANG R O S S A K A U P RHVIÐA O K A ÁLÍTA G R U N A ÆKK NAFN G I EIN- HVERJIR TUNGUMÁL S U M I R A ÆÐA DÁLKAR G E I S A SYNJA T VÆTA GLÖGG Í RÖÐ G I S K I N ÁLITINN S SKÓLI HINDRA H Í SKRAPIÓ SÁTT LEIÐ MÖGLA R U R R A Í RÖÐ GAGN T U HÖKTA S T A M A INN- PRENTAK N E S T A HIRÐA RÓTLEYSI T A K A ÓVISSA LOK E F IVISTA G G ÁVINNA FLEKKUR A F L A EINSAMALL REYTA A L E I N NTVEIR EINS SKYNSEMI A N S HÍM LANGAR N O R P ÚT FJÁÐ I N N A NS H DÆLD MEST K V O S JARÐEIGN KVK NAFN L E N D A TÓNLIST R Ó B E I T FÖLNI ÞREYTA D O F N I BÝLI SMÁBITI B ÆANDÚÐ SKAÐI P E L L HJÁLP TVEIR EINS L Í K N VAPP NÓTA R Ö L TS U R S T L A BRÚSKUR N D D Ú I S EINUNGIS K A U Ð R E HAFGOLA I G N Ú S A ÓREIÐA ERGI- LEGUR E H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 165 Desember ljósaskreytinga Fuglafælurnar frá Scarecrow eru mannúðleg og vistvæn lausn sem halda fuglum varanlega frá. Nánari upplýsingar www.fuglavarnir.is sala@fuglavarnir.is Sími 896 1013 Þarftu að halda fuglum frá? Hentar m.a. fyrir fiskiskip, löndunarbryggjur og fiskeldi Það tekur ekki nema um 30 sek. fyrir þurrt jólatré að verða alelda. Til að kanna hvort reykskynjari sé í lagi er á þeim lítill hnappur sem maður ýtir á og á þá reykskynjarinn að gefa frá sér hljóð. Í öllum hefðbundnum reykskynjurum á að skipta um rafhlöðu einu sinni á ári. Slökkvitæki eiga að vera til á hverju heimili og staðsett þar sem gott aðgengi er að þeim. Margar gerðir slökkvitækja eru til, þ.e. duft-, kvoðu-, vatns- og kolsýrutæki. Best er að fá ráðleggingar frá sérfræðingum um hvaða slökkvitæki séu heppilegust á hverjum stað. Slökkviteppi er líka mikilvægt að hafa við höndina þegar verið er að steikja upp úr feiti.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.