Bændablaðið - 16.12.2021, Page 95
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 95
Þann 1. desember síðastliðinn
var dagur reykskynjarans, á
þeim degi er mælst til þess að
farið sé yfir hvort reykskynjarar
heimilisins virka og séu í lagi.
Til að kanna hvort reykskynjari
sé í lagi er á þeim lítill hnappur sem
maður ýtir á og á þá reykskynjarinn
að gefa frá sér hljóð. Í öllum
hefðbundnum reykskynjurum á
að skipta um rafhlöðu einu sinni á
ári (á mínu heimili er það ákveðinn
dagur sem hefur hingað til ekki
gleymst). Hins vegar eru líka
komnir á markað reykskynjarar
sem eru með innbyggða rafhlöðu
sem á að endast í tíu ár. Að þeim
tíma loknum er einfaldlega skipt
um reykskynjara.
Svo eru það slökkvitækin, en
utan á öllum slökkvitækjum er lít-
ill límmiði sem segir til um hvenær
á að yfirfara slökkvitækið næst,
en flest lítil slökkvitæki sem eru
á heimilum á að yfirfara árlega.
Ljósaseríur utandyra eru
almennt mikið augnayndi. Þeir
sem eru með margar seríur þurfa
að gæta vel af tengingum, fram-
lengingarsnúrum, því ef of mikið
álag er í rafmagninu getur það
myndað hita og að endingu elds-
voða. Síðan er það vatnsveðrið
og vindurinn sem getur myndað
skammhlaup og útslátt af rafmagni
sem oft getur verið erfitt að finna.
Margir eldsvoðar hafa orsakast
af kertaskreytingum
Desember er sá mánuður sem oftast
er kveikt á kertum, en við notkun
kertaljósa er margt að varast. Þegar
kveikt er á kertum er ágætt að hugsa
um hvað getur hugsanlega eða í
versta falli orðið til þess að þetta
kerti valdi eldsvoða?
Eitt atriði er vanmetið og sjaldan
hugsað út í þegar kveikt er á kertum,
en það eru heimilisdýrin, hundar og
kettir. Heimilisdýrin eru ekki alltaf
meðvituð um hættuna og köttum er
gjarnt að nudda sér utan í hluti og
ef það er kerti sem fellur á hliðina
á eitthvað auðbrennanlegt þarf ekki
að líða langur tími þar til að eldurinn
verður óviðráðanlegur.
Hundar eru meiri varðdýr og ef
dyrabjallan hringir eða bankað er
á útihurð sprettur hundur stundum
upp úr sínu bæli með svo miklum
látum í átt að útihurð að gusturinn
af honum getur hæglega hent niður
logandi kerti.
Alltaf að byrja á að hringja í 112
Allir á heimilinu ættu að hafa ákveðið
hlutverk ef upp kemur eldur. Börnum
allt niður í 4-5 ára er hægt að kenna
brunavarnir, en númer eitt, alltaf
byrja á að hringja í 112 og síðan að
forða sér út eins fljótt og hægt er.
Á veraldarvefnum er mikið til af
kennslumyndböndum hvernig eigi
að bregðast við eldsvoða. Svona
myndbönd er gott að sýna börnunum
sínum og að lokinni sýningu segja
frá hvernig þau eigi að bregðast við
á þínu heimili.
Sorgleitt að heyra brunafréttir
rétt fyrir jól
Fátt finnst mér dapurlegra en að heyra
fréttir af fjölskyldum sem missa allt
sitt í bruna rétt fyrir jól. Jólin er sá
tími sem nánast allir hlakka til, en
til að forðast bruna út frá jólatré,
aðventuskreytingum eða einhverju
öðru, farið varlega með eld.
Það tekur ekki nema um 30 sek.
fyrir þurrt jólatré að verða alelda (sjá
skjáskot úr forvarnarmyndbandi á
22. sek. á mynd). Fyrir nokkru
horfði ég á forvarnarmyndband á
fréttasíðunni www.ladbible.com, en
þar var sett skeiðklukka í hornið á
myndbandinu og eftir 30 sek. var
tréð brunnið og það sem var næst
trénu byrjað að brenna.
Þar sem að þetta er síðasta
Bændablaðið fyrir jól vil ég misnota
aðstöðu mína hér og óska lesendum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • Vefverslun: www.skorri.is
Öll hleðslutæki með afslætti fram að jólum
Hleðslutæki
20%
Afsláttu
r
Jólatilboð!
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA
Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
ILLFYGLI
BURÐAST
ÁLAG FÉLAGI L SLAGA ARMA UMBER VEISLA
HMANG R O S S A K A U P
RHVIÐA O K A ÁLÍTA G R U N A
ÆKK NAFN G I
EIN-
HVERJIR
TUNGUMÁL S U M I R
A ÆÐA
DÁLKAR G E I S A SYNJA T
VÆTA
GLÖGG
Í RÖÐ G I S K I N ÁLITINN S SKÓLI
HINDRA H Í
SKRAPIÓ
SÁTT
LEIÐ
MÖGLA
R
U R R A Í RÖÐ
GAGN T U HÖKTA S T A M A INN-
PRENTAK
N E S T A HIRÐA
RÓTLEYSI T A K A ÓVISSA
LOK E F IVISTA
G G ÁVINNA
FLEKKUR A F L A EINSAMALL
REYTA A L E I N NTVEIR EINS
SKYNSEMI
A N S HÍM
LANGAR N O R P ÚT
FJÁÐ I N N A NS
H DÆLD
MEST K V O S JARÐEIGN
KVK NAFN L E N D A TÓNLIST R
Ó B E I T FÖLNI
ÞREYTA D O F N I BÝLI
SMÁBITI B ÆANDÚÐ
SKAÐI
P E L L HJÁLP
TVEIR EINS L Í K N VAPP
NÓTA R Ö L TS
U
R
S
T
L
A
BRÚSKUR
N
D
D
Ú
I
S
EINUNGIS
K
A
U
Ð
R
E
HAFGOLA
I
G
N
Ú
S
A
ÓREIÐA
ERGI-
LEGUR
E
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
165
Desember ljósaskreytinga
Fuglafælurnar frá Scarecrow eru
mannúðleg og vistvæn lausn sem
halda fuglum varanlega frá.
Nánari upplýsingar
www.fuglavarnir.is
sala@fuglavarnir.is
Sími 896 1013
Þarftu að
halda fuglum frá?
Hentar m.a.
fyrir fiskiskip,
löndunarbryggjur
og fiskeldi
Það tekur ekki nema um 30 sek. fyrir þurrt jólatré að verða alelda.
Til að kanna hvort reykskynjari sé í lagi er á þeim lítill hnappur sem maður
ýtir á og á þá reykskynjarinn að gefa frá sér hljóð. Í öllum hefðbundnum
reykskynjurum á að skipta um rafhlöðu einu sinni á ári.
Slökkvitæki eiga að vera til á hverju
heimili og staðsett þar sem gott
aðgengi er að þeim. Margar gerðir
slökkvitækja eru til, þ.e. duft-, kvoðu-,
vatns- og kolsýrutæki. Best er að fá
ráðleggingar frá sérfræðingum um
hvaða slökkvitæki séu heppilegust
á hverjum stað. Slökkviteppi er líka
mikilvægt að hafa við höndina þegar
verið er að steikja upp úr feiti.