Bændablaðið - 13.01.2022, Síða 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 2022 37
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
LOFTPRESSUR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar
í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika.
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hjóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga og leggjum mikla áherslu
á að veita góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502HECHT
Rafmagnsfjórhjól
Götuskráð verð 650.000 kr.
HECHT 9666
Snjóblásari á beltum
Verð 319.000 kr.
FLIEGL ADS
Skítadreifari frá
6 til 20 tonna
Stimpilvagn /PUSH-OFF
Þar sem fyrirtækið Goodyear
virðist ávallt vera feti framar en
aðrir er rétt að kynna til sögu
uppfinningu sem er gaman að
fylgjast með.
Eagle-360 dekkin voru valin
ein besta uppfinning ársins 2016
af forsvarsmönnum fréttamiðilsins
Time og var hún kynnt á eftirfarandi
hátt: „Á meðan fyrirtæki bílaiðnaðar
keppast við að þróa sjálfkeyrandi
bíla þróar fyrirtæki Goodyear dekk-
in sín.
Stærsta, eða að minnsta kosti
augljósasta, breytingin er sú að í
stað hefðbundins dekkja-
forms eru þau nú
kúlulaga. Að auki,
með aðstoð
gervigreindar,
er bílnum til
dæmis kleift
að aka til
hliðar inn
í samhliða
bílastæði,
s n ú a s t
í hvaða
gráðu að
vild og geta
aukið eða
minnkað hraða
til að vinna gegn
torfæru yfirborði.
Segulsveifla kúlulaga dekkja
Lykillinn, sagði Sebastien Fontaine,
iðnhönnuður hjá Goodyear, er seg-
ulsveifla: á meðan hefðbundin dekk
eru boltuð á bíla, sveima kúlulaga
Eagle-360 dekkin undir þeim, laus
við takmörk [hefðbundins] stýris.
Vissulega munu þessi dekk ekki
fara í sölu nærri því strax, þau eru
ætluð sjálfkeyrandi bílum sem lík-
lega eru að minnsta kosti fimm ár í
burtu. Til þess að breyta stöðunni,
segir Fontaine, „þurfum við mis-
munandi fyrirtæki í lið með okkur
með það fyrir augum að vinna að
þessu saman“.
En þetta var árið 2016.
Samkvæmt vefsíðu Goodyear hefur
nú fyrirtækið í samvinnu við franska
framleiðanda Citroën-bifreiða þróað
það sem mun að öllum líkindum
vera forveri framtíðarfarartækja.
Autonomous Mobility Vision
er hugmynd Citroën-fyrirtækisins
um þróun hreyfanleika er kemur
að farartækjum. Byggir hún á farar-
tæki – enn sem komið er í raun
undirlagi eða grind – sem kallast
Citroën Skate – sem með ásettum
dekkjunum Eagle-360, er afar lipurt
í meðförum og lætur auðveldlega
að stjórn.
Fjórfalt stærri slitlagsflötur
Hans Vrijsen, einn
framkvæmdastjóra
Goodyear, tekur
fram að vegna
kúlulögunar
dekk janna
er slitlags-
f l ö t u r
þeirra fjór-
falt stærri
en venju-
legt er,
auk þess
að njóta
a u k i n n a r
drægni og
stöðugs grips
allra akstursátta.
Eagle-360 dekkin
hafa einnig þann eigin-
leika að haldast stíf á meðan veður
er þurrt, en sexhyrnt mynstur þeirra
dregur í sig vatn í rökum aðstæðum,
mýkist og veitir þannig betra grip
í bleytu. Með aðstoð gervigreind-
ar les dekkið sem sé í aðstæður og
lagar sig að þeim.
„Þróun þessara dekkja er meðal
þess sem við hjá Goodyear teljum
grundvöll nýsköpunarfyrirtækis
eins og okkar, en við höfum ætíð
haft það í fyrirrúmi að vera fram-
arlega í þróun nýrrar, byltingar-
kenndrar þjónustu,“ sagði Vrijsen
að lokum. „Okkur er heiður að hafa
átt í samstarfi við Citroën um þetta
einstaka verkefni, hafa þannig tekið
fleiri skref í hugmyndavinnu okkar
varðandi dekkjahönnun framtíðar-
innar og sjáum fyrir okkur að halda
ótrauðir áfram.“ /SP
Eagle-360 dekk Goodyear:
Að finna upp hjólið
Goodyear í samvinnu við franska fyrirtækið Citroën þróaði það sem kallast
Autonomous Mobility Vision og er forveri farartækja framtíðarinnar.