Morgunblaðið - 12.05.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 12.05.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2022 Orkídean Samkeppni um bestu erótísku skáldsöguna 2024 Hringaná auglýsir eftir handritum í samkeppni um bestu erótísku skáldsöguna árið 2024. Þeim sem vilja taka þátt er bent á að senda handrit í rafrænu formi. Netfangið er: ari@hringana.is. Öllum nema áður útgefnum höfundum hjá Hringaná er heimil þátttaka. Frumsömdum handritum á íslensku skal skilað inn í samkeppnina fyrir 1. júlí 2023. Í verðlaun er útgáfusamningur við Hringaná og mun verðlaunahandritið verða gefið út á bók snemma árs 2024. Byrjið því að skrifa! Dómnefndina skipa: Ari Blöndal Eggertsson, Hlíf Una Bárudóttir og Ragnar H. Blöndal. Nánari upplýsingar er að finna á www.hringana.is/frettir Undirbúningur fyrir hvalveiðar sumarsins eru í fullum gangi. Hvalur 8 og Hvalur 9 hafa verið teknir upp í Slippinn í Reykjavík þar sem bátarnir voru botnhreins- aðir og málaðir. Þeir eru núna eins og nýir. Ekki veitti af, því þeir hafa legið óhreyfðir í höfn síðan 2018. Hvalvertíðin hefst í júní og stendur fram í september, allt eft- ir því sem birta leyfir. Reiknað er með að um 150 manns starfi á hvalveiðibátunum, í hvalstöðinni í Hvalfirði og í vinnslu fyrirtækisins í Hafnarfirði. Samkvæmt ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar má veiða 161 lang- reyði á ári frá 2018 til 2025 á veiðisvæðinu Austur-Grænland/Vestur- Ísland og 48 langreyðar á svæðinu Aust- ur-Ísland/Færeyjar. Samtals 209 hvali. Flytja má 20% af óveiddum kvóta fyrra árs til yfirstandandi árs. Ekkert var veitt í fyrra og því má bæta við samtals 42 hvölum fyrir bæði veiðisvæðin. Hvalur hf. sendi skip sín síðast til veiða sumarið 2018. Það ár hóf- ust veiðarnar 19. júní og stóðu til 23. september. Alls veiddust 146 langreyðar á vertíðinni það ár, en af þeim greindust tveir blendingar langreyðar og steypireyðar. Stærsti hluti afurðanna fer á markað í Japan. sisi@mbl.is Hvalbátarnir halda brátt til veiða - Hvalur 8 og Hvalur 9 komnir úr slipp og bíða þess að vertíðin hefjist í júní Morgunblaðið/sisi Bíða vertíðar Hvalbátarnir liggja nú við Ægisgarð eftir slipptökuna. Lokaundirbúningur veiðanna er eftir, svo sem að koma fyrir skutulbyssunum fremst. Starfsmenn Reykjavíkurborgar og undirverktaka hafa verið önnum kafnir við hreinsun gatna og göngustíga síðustu daga og vikur. Enn má sjá stíga sem eru þaktir sandi eftir hálkuvarnir vetrarins. Meðal þeirra er stígur í Grafarvogi, samanber meðfylgjandi mynd, sem tekin var við götuna Hamravík. Þegar leitað var upplýsinga hjá borginni fengust þau svör að Vík- urhverfið ætti að vera búið að taka, samkvæmt verkáætlun. Þarna hefði verktakinn greinilega ekki komist yfir allt svæðið á réttum tíma og ekki verið tekið út af eftirliti borg- arinnar. „Enn er unnið í Grafarvogi og verður unnið í því hverfi út þessa viku. Að öðru leyti er áætlað að vorhreinsun ljúki í Reykjavík í fyrstu viku júnímánaðar,“ segir í svörum til blaðsins frá umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar. Morgunblaðið/Ingó Grafarvogur Göngustígur við Hamravík hlaðinn sandi. Sandur enn á stígunum - Vorhreinsun á að ljúka í byrjun júní

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.