Morgunblaðið - 12.05.2022, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 12.05.2022, Qupperneq 26
26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2022 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is LÝSTU UPPMEÐ BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ný þjóðarhöll fyrir inniíþróttir skal rísa í Laugardalnum í Reykjavík. Ríki og Reykjavíkurborg undirrit- uðu viljayfirlýsingu þess efnis sl. föstudag. Stefnt er að því að fram- kvæmdum ljúki 2025 en sá tíma- rammi er augljóslega knappur. Þjóðarhöllin mun uppfylla kröfur fyrir alþjóðlega keppni í innanhúss- íþróttagreinum og stórbæta íþrótta- aðstöðu fyrir skóla og íþróttafélög í Laugardal. Horft hefur verið til stað- setningar meðfram Suðurlands- braut, nálægt Laugardalshöllinni. Skýrsla starfshóps um þjóðar- leikvang fyrir inniíþróttir var kynnt í september 2020, en í forystu hans var Guðmundur B. Ólafsson, formað- ur HSÍ. Í skýrslunni er litið til norskrar hallar, Trondheim Spek- trum, sem fyrirmyndar. Við mat á því hvort þörf væri á nýju mannvirki í stað þess að nýta þau mannvirki sem til eru var kallað eftir upplýsingum frá Handknatt- leikssambandi Íslands (HSÍ) og Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ) um hvaða kröfur eru gerðar í alþjóðlegri keppni. Í megindráttum eru gerðar svip- aðar kröfur til alþjóðakeppni í hand- knattleik og körfuknattleik. Með því að uppfylla kröfur gagnvart KKÍ og HSÍ sé öruggt að þær eru meiri en gagnvart öðrum íþróttum, t.d. blaki og futsal. Svipaðar kröfur eru gerðar til keppni í fimleikum. Hér á eftir er samantekt á helstu kröfum sem gerðar eru til að halda alþjóðakeppni á vegum HSÍ og KKÍ, en þau sambönd annast framkvæmd alþjóðlegra kappleikja hérlendis: - Flatarmál húss: 120x150 metr- ar, (18.000-20.000 fermetrar). Loft- hæð yfir keppnisvelli verði 12 metrar að lágmarki. - Anddyri: 5.000 m² lágmarks- krafa. Hér er átt við almenningsrými sem nær til allra hæða. - Áhorfendur: Svipaðar kröfur eru gerðar til HSÍ og KKÍ. Lágmark í alþjóðakeppnum er frá 2-4.000 en er mismunandi eftir mótum. Í riðla- keppni í lokamóti hjá HSÍ er miðað við 5-6.000 áhorfendur. Í Meistara- deild félagsliða er miðað við 5.000 áhorfendur. Fyrir undankeppni Ól- ympíuleika er gerð krafa um að lág- marki 8.000 áhorfendur. - Aðstaða verði fyrir 50-150 blaðamenn með góða yfirsýn yfir völlinn. Aðstaða fyrir lýsendur, 10 básar með tvö sæti í hverjum bás. Fimm stæði fyrir útsendingarbíla o.fl. Starfshópurinn skoðaði nokkra staðarvalsmöguleika í Reykjavík og ennfremur í Vetrarmýri í Garðabæ. Starfshópurinn var sammála um Laugardal sem fyrsta val fyrir stað- setningu Þjóðarleikvangs. Laugar- dalur sé ákjósanlegur fyrir mann- virki af þessari stærðargráðu. Aðgengi umferðar sé gott en fyrir- huguð borgarlína um Suðurlands- braut tengi úthverfi við Laugardal- inn. Einnig eru svæði fyrir bílastæði sem hægt væri að nýta, en bílastæði í Laugardal eru um 1.700. Þá eru í hverfinu þrír grunnskólar sem gætu nýtt mannvirkið að degi til og Knattspyrnufélagið Þróttur og Glímufélagið Ármann eru á svæðinu sem nýta myndu mannvirkið, sem gæti leyst húsnæðismál þessara fé- laga. Nálægð við önnur íþróttamann- virki sé einnig mikill kostur. Þá beri að nefna að með staðsetningu í Laugardal gefist möguleiki á að nýta mannvirkið undir almenningsíþróttir og hafa húsið opið að hluta til frjálsr- ar íþróttaiðkunar fyrir almenning. Kostnaður 10 milljarðar? Starfshópurinn fékk Verkís verk- fræðistofu til að gera úttekt á kostn- aði við þjóðarleikvang sem uppfyllir þau skilyrði sem gerð eru til alþjóð- legrar keppni. Við matið var hafður til hliðsjónar þjóðarleikvangur í Þrándheimi í Noregi (Trondheim Spektrum) sem tekinn var í notkun í janúar 2020 í Evrópukeppninni í handbolta. Húsið uppfyllir öll skil- yrði og er einnig nýtt sem tónlistar- og sýningahús. Húsið í Þrándheimi tekur 8.600 áhorfendur í sæti (3.600 í föst sæti og 5.000 í útdraganleg sæti) og 12.000 áhorfendur á tónleikum. Við mat á kostnaði var óskað eftir að metinn væri kostnaður við 5.000 áhorfenda hús en einnig þótti rétt að fá mat á kostnaði á sambærilegu húsi og byggt var í Þrándheimi. Miðað við grunnkröfur myndi stærra mannvirkið vera um 19.000 m2 að stærð og af því fara 5.100 m2 undir íþróttasal. Heildarkostnaður var metinn samtals 8,7 milljarðar króna. Miðað við grunnkröfur myndi minna mann- virkið vera um 18.240 m2 að stærð. Heildarkostnaður var metinn sam- tals 7,9 milljarðar króna. Því er lítill munur á kostnaði, eða 800 milljónir. Skýringin er sú að grunnflötur yrði sá sami og kostnaðaraukinn fælist í hækkun hússins. Kostnað þarf að uppfæra miðað við verðlag í dag. Ekki er óeðlilegt að telja kostnað fara í 10 milljarða eða þar yfir. Höll í Noregi verði fyrirmynd - Þjóðarhöll fyrir inniíþróttir rísi í Laugardalnum - Horft er til 8.600 manna hallar í Þrándheimi Morgunblaðið/sisi Laugardalur Helst er hoft til þess að hin nýja þjóðarhöll rísi sunnan við Laugardalshöllina, við Suðurlandsbraut. Þrándheimur Handboltaleikur í Trondheim Spektrum. Uppselt var á leik- inn eins og sjá má. Nú er það spurning hvort svona glæsihöll rísi hérlendis. Endurhæfing – þekkingarsetur, í samvinnu við Sjúkratryggingar Ís- lands og Hjálpartækjamiðstöð og Æfingastöð SLF, sendi nýlega hjálp- artæki fyrir fötluð börn og ung- menni frá stríðshrjáðum svæðum í Úkraínu. Má þar nefna hjólastóla, göngugrindur og fleira. Hjálpartækin fóru m.a. til Poznañ í Póllandi en mikill fjöldi barna hef- ur fengið aðstoð við að flýja frá Úkraínu til Póllands. Mörg hver eru munaðarlaus og án allra nauðsyn- legra hjálpar- og stoðtækja. Hjálpartækin voru flutt frá Ís- landi til Lublin í Póllandi í leiguflugi og greiddi sendiráð Úkraínu í Finn- landi fyrir flugið, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Var þetta gert í samvinnu við dr. Marek Jozwi- ak, yfirlækni við Wiktor Dega- ndurhæfingarstofnunina í Poznan, og Polish Academy of Childhood Di- sability (PANDa). Tóku þessir að- ilar, með aðstoð Lionsklúbbs Pozn- an, að sér að dreifa hjálpartækjun- um þar sem þörfin var mest, bæði í Póllandi og í Kiev og Lviv í Úkraínu. Golfsamband Íslands, Jónar Transport og Rótarýhreyfingin á Ís- landi aðstoðuðu við að pakka tækj- unum og koma þeim áleiðis úr landi. Aðstoð Hjálpartæki innpökkuð og tilbúin á leið til Póllands. Aðstoð við fötluð börn frá Úkraínu - Hjálpartæki frá Íslandi til Póllands
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.