Morgunblaðið - 12.05.2022, Page 30

Morgunblaðið - 12.05.2022, Page 30
30 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2022 VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég er bara svona veitingastjóri eða eitthvað, mér er alveg sama, ég er svo lítið fyrir svona titla,“ segir Elín- borg Hauksdóttir, veitingastjóri þá, úr því hún kýs það, í Húsi Máls og menningar við Laugaveg, áður þekktu bókaforlagi og bókaverslun í hjarta Reykjavíkur en núna öldur- húsi sem um leið er bókabúð, eða í raun hálfgert bókasafn. Gestum og gangandi býðst að líta inn, fá sér kaffibolla eða hvítvínsglas, glugga í bækur og jafnvel hlýða á lifandi tón- list sem stundum er boðið upp á í þessu gamalgróna vígi bókmennta þjóðarinnar. Elínborg á sér merkilega sögu, sem reyndar var að hluta til kveikj- an að þessu viðtali, hún er Vest- mannaeyingur fædd gosárið 1973, þriggja barna móðir og hefur unnið nánast alls staðar þegar kemur að veitingabransanum, byrjaði á A. Hansen í Hafnarfirði 1991 en listinn er töluvert lengri, Gamla bíó, Perl- an, Austurbær, Borgin og miklu fleira. Hvernig stendur á þessu er fyrsta spurningin. Aðalstaðurinn í Hafnarfirði „Ja, mig vantaði nú bara auka- vinnu,“ svarar Elínborg og hlær dátt þar sem við sitjum í kjallara gamla bókmenntavirkisins umkringd fag- urbókmenntum og kliðurinn af fyrstu hæðinni, þar sem gengið er inn af Laugaveginum, skilar sér þægilega niður til okkar. Ekki nægi- lega mikið til að trufla upptökuna þó. „Þá var þetta aðalstaðurinn í Hafn- arfirði þegar Princess og allir þessir togarar voru að koma þarna. Þetta var nú ekkert sérstaklega góður tími, þarna voru slagsmál og oft allt vitlaust hjá okkur, við þurftum oft að hringja í lögguna og svo voru ein- hverjir karlar að elta mann heim,“ segir Elínborg og skellihlær við upp- rifjunina þótt þeir atburðir sem hún rifjar upp hafi ef til vill ekki verið svo broslegir þá, alltént ekki í aug- um átján ára Eyjapæju sem var rétt að byrja að læra á lífið og vantaði bara aukavinnu. „Ég man nú ekkert hvaðan þessir togarar komu, þetta voru einhverjir Bretar og Rússar og oft voru bara heilmikil læti hjá okkur,“ segir Elín- borg sem hafði í nógu að snúast árið 1991, var í Flensborgarskólanum, að kaupa sína fyrstu íbúð og allt að ger- ast. „Svo varð ég ófrísk og þurfti í framhaldinu að fara að ala upp barn og þetta var nú stundum ekki fyndið á A. Hansen, maður var bara í stór- hættu þegar verst lét. Þarna voru engir dyraverðir enn þá og við starfsfólkið lentum oft í mjög hörð- um átökum, ég var oft í hörkuslags- málum þarna. Getur verið mamma frá sjö En hvað á ég svo sem að segja, maður tók þessu bara, svona var þetta bara á þessum tíma,“ segir Elínborg og lítur dreymnum augum upp í næstu bókahillu við tilhugs- unina og blaðamanni verður í laumi hugsað til upphafslína ljóðs Davíðs Stefánssonar um Hrærek konung frá Heiðmörk sem dó á Íslandi, „Man ég man ég tíma tvenna/tár úr blindum augum renna.“ En Elín- borg Hauksdóttir er ekki blind og heldur ekki smákonungur frá Nor- egi. Hún er valkyrja frá Vest- mannaeyjum og við höldum áfram með söguna. „Ég hef alltaf verið að aðstoða eig- endur á veitingahúsum borgarinnar og lært mikið af þessum meisturum. Eins hef ég alltaf verið á bar og eitt- hvað svona en ég er ekki lærður þjónn og var eiginlega alltaf í þessu með annarri vinnu. Bæði var þetta áhugamál og svo freistaði vinnutím- inn líka. Þú getur verið mamma frá sjö á morgnana til klukkan eitthvað og svo farið í vinnuna,“ segir veit- ingastjórinn í Húsi Máls og menn- ingar og hlær dátt, sannarlega kona sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. „Hún er algjört æði“ „Stemningin var brjáluð og það var ekkert mál að fá vinnu,“ segir Elínborg, innt eftir stöðu mála í ís- lensku næturlífi á síðustu öld sem spyrillinn kannast nú ágætlega við sjálfur, á þeim tíma dyravörður á öldurhúsum borgarinnar þar sem á ýmsu gekk, vitstola miðaldra kona á sterkum lyfjum dró upp flökunar- hníf og hótaði að sneiða dyraverði á Nelly’s eins og hvern annan fisk, menn hrifnir af amfetamíni og neyslu þess lofuðu okkur öruggum dauðdaga en útskýrðu aldrei hvers vegna. Sá sem hér skrifar stóð þó aldrei sömu megin afgreiðsluborðs- ins og Elínborg. „Á þessum tíma fékk maður bara vinnu ef maður vildi, maður þekkti mann og fólk vissi að ég gerði það sem átti að gera og oft meira til,“ segir Elínborg og gengur þess reyndar dulin að áður en þetta var rætt hafði sannleiksgildi orða henn- ar verið kannað hjá undirmönnum hennar. „Já, maður, hún er sko al- gjört æði,“ sagði einn og annar tók undir með orðunum: „Þetta er okkar önnur mamma, hún er alveg frá- bær,“ og lýkur þar vitnaleiðslum. „En það var líka fullt af ljótu í gangi og ég er hreinlega hissa á að þjónastéttin hafi ekki farið bara „full force“ í skrúðgöngu til að gera eitt- hvað í því,“ heldur Elínborg áfram með þungri áherslu og á við kynferð- islega áreitni og annað af svipuðum toga sem kynsystur hennar í þjóna- stétt hafa mátt búa við um aldur og ævi. „Þetta var oftast svona eitt og eitt klíp og maður lifir það svo sem alveg af en þetta er engu að síður óviðunandi og þótt ég hafi sterk bein og sé orðin þetta gömul þá gildir það ekkert um alla og þetta er aldrei já- kvætt,“ segir Elínborg ákveðin. Hún þraukaði þó eins og Þórður gamli í loff malakoff-söngnum, hvernig stendur á því? „Ja, mér þykja fyllibyttur bara svo skemmti- legar,“ svarar Elínborg af hreinu æðruleysi hinnar lífsreyndu konu, „mamma fór kasólétt með mig í bumbunni upp á land í febrúar sjötíu og þrjú og við enduðum í Njarðvík- um hjá afa og ömmu sem voru ný- flutt upp á land svo ég hef nú upp- lifað ýmislegt. Og svo endaði mamma í gámunum,“ heldur val- kyrjan úr Eyjum áfram eins og ekk- ert sé sjálfsagðara. Hvaða gámum? „Þeir voru þarna þar sem lög- reglustöðin í Eyjum er núna. Þetta voru svona íbúðir í gámum, her- bergi, stofa og eldhús, allt til alls auðvitað, og í þessu bjó ég frá eins árs til fjögurra ára aldurs. Ég man ekkert eftir þessu, hef bara séð myndir og svo var fólk að tala um þetta. Þarna voru rottur að gera sig heimakomnar og ég var að koma inn með mýs og leyfa þeim að gista,“ segir Elínborg og skellihlær að gámabyggðinni í Vestmannaeyjum eftir gos. „Svo eftir að maður flutti upp á land fór maður alltaf til Eyja að vinna, var þar í fiski milli þess sem ég fór upp á land en annars hef ég mest verið í þessum veitingabransa. Svona um það bil upp úr 2000 fóru kokkar og þjónar að umgangast hverjir aðra af virðingu, fram að því var blint hatur milli þessara stétta, kokkarnir töldu sig yfir okkur þjón- ana hafna þótt þetta sé svipað langt nám, annars tók ég þetta þjónanám aldrei og má ekki kalla mig þjón, ég er bara svona veitinga … eitthvað,“ segir Elínborg og hlær í fimmta sinn, tveimur skiptum oftar en mar- bendillinn í þjóðsögunni. Er uppeldið betra? Elínborg kveður næturlífið hafa gjörbreyst þau 30 ár sem hún hefur þekkt það. „Unglingarnir okkar eru æðislegir. Mér finnst djammið líka bara miklu fallegra núna en það var. Leiðinlegasta fólkið í gamla daga var fólk um fertugt sem hélt að það ætti heiminn, bar enga virðingu fyrir þjónum eða fólkinu sem var að þrífa klósettið,“ segir Elínborg og hvessir dimm augun á blaðamann sem þakk- ar almættinu fyrir að vera nýorðinn 48 ára. „Núna er þetta bara allt annað, krakkarnir eru að koma til manns núna og spyrja hvort þeir geti að- stoðað. Uppeldið í dag er kannski bara betra, ég veit það ekki, fólki bara er ekki sama og það smitast lík- lega út í okkur hin. Nú er ég ekki í neinum minnihlutahópi eða neitt svoleiðis, ég er bara venjuleg, en ég get alveg sagt þér að við afgreiðslu- fólkið í þjónustustörfunum finnum fyrir þessu,“ segir Elínborg Hauks- dóttir Eyjapæja í Húsi Máls og menningar að lokum. Lesendur mega dæma um það hvort hún teljist venjuleg en þeim sem hér skrifar finnst hún í senn óvenjulegur og ein- staklega skemmtilegur viðmælandi. Og þar setjum við punktinn. „Mér þykja fyllibyttur skemmtilegar“ - Í bransanum frá 18 ára aldri - Slagsmál og fyllerí á A. Hansen - Á þessum tíma fékk maður vinnu ef maður vildi - Blint hatur milli kokka og þjóna - Djammið miklu fallegra núna en það var Eyjapæjan Elínborg ásamt samstarfsmönnum sínum Trausta Má Ísaksen og Friðriki Berg Sigþórssyni. Hún nýtur vinsælda enda skemmtin mjög. Forðum daga Elínborg, lengst til hægri, „svona ’82-ish“ í Eyjum með Bryndísi systur og Hjördísi litlu frænku sem er fremst á myndinni. Lífshlaupið „Mamma fór kasólétt með mig upp á land í febrúar sjötíu og þrjú.“ Elínborg Hauksdóttir lumar á fleiri en einni góðri sögu. Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Skoða ávfs.is T 5 hraðasti llingar á d rifi. Hægt að stjór na hraða á blaði hand virkt. LED ljós að fram an og á hli ðum. 7 hæðarstilling ar. Sláttubrei dd: 53cm. Hámarkshraði blaðs: 3.30 0 sn/mín. Skurðarhæ ð: 25-100 m m. Hávaðasti g: 96 dBA . Grassafna ri: 70L. Þyngdmeð rafhlöð u: 38,5 kg. 2 stk.M18 12AhH IGHOUTPUT ™ rafhlöður og hraðhle ðslutæki fylgja. vöM18 FUEL™ rafhlöðuh ólf. NÝM18 SLÁTTUV ÉL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.