Morgunblaðið - 12.05.2022, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 12.05.2022, Qupperneq 34
er stærsta fjárfestingarverkefni sem Samherji hefur ráðist í frá upp- hafi, en félagið hefur starfað í tæp 40 ár. Spurður um tilgang hlutafjár- aukningarinnar nú og því hvað felst í næstu skrefum segir Þorsteinn Már að hlutafjáraukningin muni nýtast í framangreind verkefni og tekur fram að uppbygging fiskeld- isstöðva feli í sér umtalsverðan kostnað. „Starfsfólk Samherja býr yfir þeirri þekkingu sem til þarf til að taka næstu skref í þessari uppbygg- ingu en þar mun koma að félagið þarf að sækja sér aukið fjármagn. Það verður gert með aðkomu nýrra BAKSVIÐ Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Hlutafé Samherja fiskeldis ehf. hef- ur verið aukið um 3.500 milljónir króna. Þá hefur Norðmaðurinn Alf- Helge Aarskog, fyrrverandi for- stjóri Mowi og einn af reyndustu sérfræðingum heims á sviði fiskeld- is, fjárfest í félaginu og mun í fram- haldinu taka sæti í stjórn. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, segir í samtali við Morgunblaðið að fjármagnið verði nýtt til uppbyggingar í Öxarfirði auk hönnunar og framkvæmda við eldisgarð á Reykjanesi. „Við erum mjög ánægð með að fá Alf-Helge Aarskog til liðs við okkur og teljum að þekking hans og reynsla muni nýtast til frekari upp- byggingar á þessari mikilvægu atvinnugrein,“ segir Þorsteinn Már. „Það er mikill vöxtur að eiga sér stað í fiskeldi í heiminum og við höfum því fulla trú á þessu verk- efni.“ Horfa til skráningar á markað Þess má geta að sú uppbygging sem Samherji fiskeldi stendur nú að fjárfesta og við horfum einnig til þess mögulega að skrá félagið á markað,“ segir Þorsteinn Már. Mikil uppbygging í fiskeldi Samherji fiskeldi hefur um árabil starfrækt eldi á bleikju og laxi. Þá hefur það vakið athygli að félagið rekur einungis eldi á landi, en ekki í sjókvíum. Um 1.500 tonn af laxi eru framleidd af í Silfurstjörnunni í Öxarfirði í dag en stefnt er að því að auka framleiðsluna upp í 3.000 tonn á ári. Áform félagsins við uppbygg- ingu landeldis á Reykjanesi hafa áður verið kynnt, en þar er stefnt að framleiðslu á 40 þúsund tonnum af laxi á ári. Eldisgarðurinn er stað- settur við Reykjanesvirkjun og er heildarfjárfesting hans um 45 millj- arðar króna. Til samanburðar má geta þess að í fyrra voru framleidd um 53 þúsund tonn af eldisfiski af öllum tegund- um, þar af einungis rétt rúmlega 8.000 tonn í landeldi, og jókst um 12.500 tonn á milli ára. Framleiðsla á laxi nam um 46.500 tonnum og á bleikju um 5.400 tonnum. Stórt nafn í greininni Alf-Helge Aarskog lét af störfum sem forstjóri Mowi síðla árs 2019, eftir að hafa gegnt því starfi í tíu ár og þar áður sem forstjóri Lerøy Seafood Group um árabil. Nafn hans er nokkuð þekkt meðal alþjóð- legra sjávarútvegsfyrirtækja og hann hefur skapað sér gott orð í greininni. Mowi er eitt stærsta fiskeldis- fyrirtæki heims en hann sat í stjórn félagsins í eitt ár eftir að hann lét af störfum sem forstjóri. Í janúar á þessu ári tók hann jafnframt sæti í stjórn norska fiskeldisfyrirtækisins Steinvik Fiskefarm, sem stefnir einnig að aukningu á landeldi, og í mars tók hann sæti í stjórn franska líftæknifélagsins InnovaFeed. Aarskog hefur ekki fjárfest sjálf- ur í fyrirtækjum fram til þessa, en sem fyrr segir hefur hann nú fjár- fest í Samherja fiskeldi. Samherji fiskeldi stígur næstu skref Fiskeldi Tölvugerð mynd af framleiðslunni í Öxarfirði. Þar er stefnt að því að framleiða 3.000 tonn af laxi á ári. Í hnotskurn » Alf-Helge Aarskog er þekkt nafn í sjávarútvegi á heims- vísu. » Uppbygging á fiskeldi Sam- herja er stærsta fjárfesting í tæplega 40 ára sögu félagsins. » Verkefnið mun kalla á frek- ara fjármagn til frekari upp- byggingar. » Flest af stærri fiskeldis- fyrirtækjum heims eru skráð á markað. - Hlutafé Samherja fiskeldis aukið um 3,5 milljarða - Reyndur aðili tekur sæti í stjórn - Stærsta fjárfesting Samherja frá upphafi - Mögulega verður horft til þess að skrá félagið á markað Þorsteinn Már Baldvinsson Alf-Helge Aarskog 34 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2022 NeauviaOrganic Gelísprautun Hreinasta fylliefnið í varir og hrukkur. Sléttir húðina. Gelísprautun er tilvalin í djúpar hrukkur og til aðmóta varir, kinnbein eða kjálkalínu. Sníðamámeðferð að þörfum hvers viðskiptavinar. Ve 13 Við to réttu Pe 21 re Við ta 13 12. maí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 132.18 Sterlingspund 162.98 Kanadadalur 101.77 Dönsk króna 18.754 Norsk króna 13.634 Sænsk króna 13.151 Svissn. franki 133.12 Japanskt jen 1.0154 SDR 177.03 Evra 139.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.8642 Breska orkufyrirtækið ATOME, sem er 75% eigandi Green Fuel, sem sagt var frá í Morgunblaðinu á dögunum í tengslum við uppbygg- ingu á fyrstu stórskalarafeldsneyt- isverksmiðju landsins á Bakka við Húsavík, gekk á dögunum frá nýj- um langtíma 60 megavatta orkukaupasamningi vegna fram- leiðslu á vetni og ammoníaki í Para- gvæ. Stærsti samningurinn Eins og fram kemur í tilkynningu frá ATOME er þetta stærsti orku- kaupasamningur sem hið ríkisrekna raforkufyrirtæki ANDE hefur gert við framleiðsluaðila. Orkan sem er 100% endurnýjan- leg er aðgengileg samstundis og verður veitt í gegnum nýja raforku- virkjun ANDE í Villeta við hina skipgengu Paragvæ-á (e. River Paraguay). Í tilkynningunni segir að ATOME hyggist nú hraða uppbyggingu raf- eldsneytisverksmiðjunnar og hefja framleiðslu innan þriggja ára. Ekki er langt síðan ATOME kynnti 250 mw áætlun um fram- leiðslu eldsneytis á farartæki í Para- gvæ. Er það verkefni, ásamt því sem nú er sagt frá, fyrsta stórskala- verkefni fyrirtækisins í Paragvæ. Í tilkynningunni segir einnig að verkefnin tvö þýði að Paragvæ skipi sér nú í fremstu röð í heiminum í þróun græns rafeldsneytis og áburðar úr endurnýjanlegri orku. Olivier Mussat, forstjóri ATOME, segist í tilkynningunni spenntur að halda áfram með hin framsæknu markmið ATOME sem sett voru við skráningu félagsins á markað í des- ember á síðasta ári. Orka Frá undirritun samningsins milli ATOME og ANDE. Eigandi Green Fuel fær rafmagn - 60 mw fyrir verksmiðju í Paragvæ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.