Morgunblaðið - 12.05.2022, Side 40

Morgunblaðið - 12.05.2022, Side 40
40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2022 Eftir tólf ára óstjórn vinstri manna er sannarlega kominn tími á breytingar í borgarstjórn. Reykja- víkurborg hefur á mörgum sviðum glat- að því forystuhlut- verki, sem hún hafði lengi meðal íslenskra sveitarfélaga. Gildir þá einu hvort litið er til fjárhagsstöðu, lóðaframboðs eða margvíslegrar grunnþjónustu. Ný- lega birtist enn ein könnunin (þjóð- málakönnun Félagsvísindastofn- unar HÍ), sem staðfestir að meðal Reykvíkinga mælist mun minni ánægja með þjónustu sveitar- félagsins en hjá íbúum annarra sveitarfélaga. Stíflustefna í samgöngumálum Umferðarmál eru í ólestri í Reykjavík vegna þess að núverandi borgarstjóri beitir sér markvisst gegn samgönguframkvæmdum, sem auka myndu umferðaröryggi og greiða fyrir umferð. Dæmi um þetta er viðleitni meirihlutans til að leggja stein í götu Sundabrautar og andstaða við löngu tímabærar úr- bætur á fjölförnum gatnamótum í borginni. Í umferðarmálum þarf að reisa ný og nútímaleg umferðarmann- virki, sem auka umferðaröryggi og greiða fyrir umferð. Þá þarf að efla strætisvagnaþjónustu að nýju í Reykjavík eftir umfangsmikla þjón- ustuskerðingu vinstri meirihlutans á kjörtímabilinu. Stóraukum lóðaframboð Í húsnæðismálum vill Sjálf- stæðisflokkurinn m.a. tryggja nægt framboð lóða fyrir fólk á öllum aldri, hvort sem það vill búa í eigin húsnæði eða vera á heilbrigðum leigumarkaði. Auka þarf þjónustu við eldri borgara og fjölga bú- setukostum, t.d. í samstarfi við byggingarfélög þeirra. Ábyrgðarleysi í fjármálum Þrátt fyrir að skattheimta sé í hámarki á Reykjavíkurborg við al- varlegan fjárhagsvanda að stríða. Skuldir borgarinnar nema nú um 407 milljörðum króna og munu skv. áætlunum fara yfir 420 milljarða í árslok 2022. Stöðva þarf skulda- söfnunina og stórbæta reksturinn með sparnaði og hagræðingu. Börnin eiga betra skilið Skólamál borgarinnar eru í kreppu undir forystu Samfylking- arinnar. Ekki hefur verið staðið við margítrekuð loforð borgarstjóra um framboð leikskólarýma og lestrarkunnátta grunnskólabarna er óviðunadi. Vanhugsaðar breyt- ingar meirihlutans í skólamálum hafa engum árangri skilað en valdið mikilli ólgu meðal for- eldra og starfsmanna. Vegna vanrækslu á við- haldi hefur mygla mynd- ast í mörgum skólum og fjölmargir nemendur þurfa nú að sækja skóla utan heimahverfis vegna hennar. Bæta þarf grunn- skólamenntun, m.a. með því að notast við ný og mælanleg markmið og upplýsa foreldra sem best um námsframvindu barna sinna. Leita þarf nýrra leiða til að manna leikskólana og efla dagfor- eldrakerfið. Ný forysta – nýjar lausnir Eftir kosningar mun Dagur B. Eggertsson borgarstjóri láta einsk- is ófreistað við að halda völdum með hinum ýmsum smáflokkum. Nauðsynlegar breytingar á rekstri Reykjavíkurborgar verða hins veg- ar ekki gerðar undir stjórn Sam- fylkingar eða þeirra vinstri flokka, sem styðja hana: VG, Viðreisnar og Pírata. Um leið og Framsóknarflokkur- inn boðar breytingar, segist nýr oddviti hans jafnt geta unnið til vinstri sem hægri. Kjósendur Framsóknar vita því ekki í raun hvort þeir eru að kjósa breytingar eða vinstri meirihlutann áfram undir forystu núverandi borgar- stjóra. Það er fullreynt að stefna núver- andi meirihlutaflokka leysir ekki þann vanda, sem Reykvíkingar standa frammi fyrir, hvort sem lit- ið er til húsnæðismála, samgöngu- mála, skólamála, fjármála eða um- hirðu í borginni. Skýrir kostir á laugardaginn! Þeir kjósendur, sem vilja raun- verulegar breytingar í Reykjavík, standa frammi fyrir skýrum kost- um í borgarstjórnarkosningunum 14. maí. Annars vegar er hægt að kjósa áframhaldandi stöðnun undir stjórn Samfylkingarinnar og fylgi- flokka hennar. Hins vegar er hægt að kjósa raunverulegar breytingar með því að styðja Sjálfstæðisflokkinn, X-D. Breytum til batnaðar – X-D Eftir Kjartan Magnússon »Eina leiðin til að velja raunverulegar breyt- ingar í borgarstjórn og umbætur á þjónustu borgarinnar er að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Kjartan Magnússon Höfundur er í 3. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Það er með þakklæti sem þessi orð eru skrif- uð. Það er með þakk- læti til allra þeirra fjöl- mörgu sem nú bjóða sig fram í komandi sveit- arstjórnarkosningum, hvar í flokki sem fólk finnur sig. Það er mik- ilvægt að til sé fólk sem er tilbúið að sinna okk- ar sameiginlegu málum í nærsamfélaginu. Ekki er það alltaf auðvelt, umræðan getur verið erfið, snúin og stundum persónuleg og óvægin. Vald eða þjónusta? Á vettvangi sveitarstjórna eru teknar ákvarðanir sem varða okkar sameiginlegu mál. Skóla-, íþrótta- og æskulýðsmál, málefni fatlaðra, skipu- lagsmálin og húsnæðismálin og þann- ig mætti áfram telja. Hversu vel tekst til á hinu pólitíska sviði litar gjarnan gæði sam- félagsins og félagsauð. Að hlusta á íbúana, hafa hag heildarinnar að leiðarljósi, sinna hin- um þurfandi, tryggja mannréttindi allra og mannsæmandi líf eru verkefnin. Aðalatriðið er því ekki hver ræður eða hver fær bestu hug- myndirnar heldur hvort okkur lánist að vinna verkin í þjón- ustu við aðra. Það má kannski segja að það sé aðalverkefni þeirra sem um helgina munu hljóta umboð okkar allra á vettvangi sveitarstjórna til að leiða okkar sameiginlegu mál til lykta, þ.e. þjónustuhlutverkið. Að mæta á kjörstað Og svo er það verkefni okkar allra og skylda, að mæta á kjörstað. Kosn- ingarrétturinn er ein af grunnstoðum okkar lýðræðislega samfélags. Mik- ilvægt er því að við öxlum okkar ábyrgð, mætum á kjörstað og nýtum kosningaréttinn. Lýðræðið er besta og skilvirkasta verkfærið sem mað- urinn á til að tryggja velferð, sam- vinnu, samkennd og náungakærleika. Allt grunnatriði sem Kristur stóð fyr- ir. Okkar sameiginlegu mál Eftir Þorvald Víðisson » Aðalatriðið er því ekki hver ræður eða hver fær bestu hugmyndirnar heldur hvort okkur lánist að vinna verkin í þjónustu við aðra. Þorvaldur Víðisson Höfundur er sóknarprestur Fossvogsprestakalls. „Get tekið að mér yngri en 35 ára ein- hleypa konu, væri gott ef hún kynni að dansa salsa.“ Þetta voru skilaboð sem aðgerða- stjóri teymisins, sem skipuleggur móttöku flóttamanna frá Úkra- ínu, fékk frá íslenzkum karlmanni. Þetta er klárlega ekki aðstoðin, sem flóttamenn frá Úkraínu þurfa á að halda – og von- andi alls ekki einkennandi fyrir við- brögð íslenzkra karlmanna. Sýnir okkur samt inn í veruleika, sem er miður geðslegur. Talið er að átta milljónir Úkra- ínumanna séu nú á flótta, um 90% þeirra konur og börn. Vitað er að konur á flótta eru í margfaldri hættu á að verða fyrir kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi, að vera seldar mansali eða þvingaðar í vændi til að endurgjalda aðstoð og nauðsynjar. UN Women, stofnun Sameinuðu þjóðanna um jafnrétti og valdefl- ingu kvenna, starfar á átakasvæðum víða um heim og rekur marg- víslega starfsemi til að aðstoða þær milljónir kvenna, sem eru á flótta í Evrópu vegna stríðsins í Úkraínu. UN Women hefur með- al annars unnið að því að veita kvenmiðaða neyðaraðstoð til flóttakvenna í Moldóvu, einu fá- tækasta ríki Evrópu, sem þarf nú að taka á móti tugum þúsunda flótta- manna. Á meðal verkefnanna þar í landi er að koma upp neyðarskýlum sem taka mið af þörfum kvenna og tryggja öryggi þeirra. Hver sá sem á móður, systur, kærustu, eiginkonu eða dóttur getur reynt að gera sér í hugarlund hvað hann vildi að stæði henni til boða ef stríð eða hamfarir yrðu þess valdandi að hún yrði að flýja heimili sitt. Vildi hann að það væru glæpa- samtök eða einstaklingar sem reyndu að nýta sér neyð hennar eða að það væru alþjóðlegar mann- úðarstofnanir og –samtök sem hefðu fagþekkingu og bolmagn til að að- stoða hana við að halda sæmd sinni og lifa mannsæmandi lífi á nýjum stað? Þú getur hjálpað – með því að senda SMS-ið KONUR í 1900 (1.900 kr.) leggur þú þitt af mörkum til starfs UN Women. Þú getur líka gerzt ljósberi, mán- aðarlegur stuðningsmaður UN Women, á unwomen.is. Vertu maður – leggðu þitt af mörkum til að hjálpa flóttakonum að halda mennsku sinni og reisn. Vertu maður – hjálpaðu konum á flótta Eftir Ólaf Stephensen »Hjálpaðu flótta- konum að halda mennsku sinni og reisn. Ólafur Stephensen Höfundur situr í stjórn Lands- nefndar UN Women á Íslandi. Það dylst engum að aðstæður til reksturs Seltjarnarnesbæjar eru sérstakar. Þrátt fyrir að útsvarið á Seltjarnarnesi hafi á síðasta ári verið hlut- fallslega með því lægsta á landinu, eða 13,7%, þá er útsvarið á hvern íbúa það fjórða hæsta á landinu. Skýringin liggur auðvitað í því að meðaltekjur íbúa á Seltjarnarnesi eru háar. Í meðfylgjandi töflu má sjá útsvar á hvern íbúa á Seltjarnarnesi í sam- anburði við sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu á árinu 2021. Hér má sjá að útsvarið á Seltjarn- arnesi var 768 þúsund kr. á hvern íbúa með 13,7% útsvari. Til saman- burðar var útsvarið 704 þúsund kr. á hvern íbúa í Reykjavík, en þar er álagningarprósenta útsvars í leyfi- legu hámarki eða 14,52%. Skýrt val um lækkun eða hækkun útsvars á Seltjarnarnesi Um síðustu áramót hækkaði minnihlutinn í bæjarstjórn Sel- tjarnarnesbæjar með fulltingi svo- kallaðs óháðs bæjarfulltrúa útsvar á Seltjarnarnesi úr 13,7% í 14,09%, þrátt fyrir að fyrirliggjandi áætlanir með 13,7% útsvari sýndu jafnvægi í rekstri bæjarins á árinu 2022. Sjálf- stæðismenn á Seltjarnarnesi hafa talað skýrt um það að lækka útsvarið aftur í 13,7% strax árið 2023 á meðan önnur framboð á Seltjarnarnesi boða enn frekari hækkun þess í 14,48%. Bjartir tímar og lágir skattar Fram undan eru bjartari tímar á Seltjarnesi. Atvinnuleysi stóð í 9,6% í upphafi síðasta árs, var liðlega 6% um miðbik ársins en var komið í 3,4% á Seltjarnarnesi í árslok. Samfara litlu atvinnuleysi, fólksfjölgun og hagvexti munu útsvarstekjur styrkj- ast verulega á komandi misserum. Íbúum mun fjölga á næstu árum og munu tekjur bæjarins aukast með tilkomu Gróttubyggðar um 300-400 m.kr. Tekjustoðir bæjarins standa því traustum fótum þrátt fyrir lágar álögur og tækifæri liggja í að gera reksturinn skilvirkari. Hækkun skatta leysir engan vanda og hefur aldrei gert. Hækkun skatta getur hins vegar búið til vanda og leitt sjónar af öðru en grunnrekstri yfir í gæluverkefni og of mikla yfir- byggingu. Þetta sýna dæmin í Reykjavík, þar sem flokkar minni- hlutans á Seltjarnarnesi ráða för og það fordæmi ber að varast. Eftir Magnús Örn Guðmundsson og Örn Viðar Skúlason » Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi hafa talað skýrt um það að lækka útsvarið aftur í 13,7% á meðan önnur framboð á Seltjarnar- nesi boða hækkun þess í 14,48%. Magnús Örn Guðmundsson Magnús Örn er formaður bæjarráðs og skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins á Seltjarnarnesi. Örn Viðar er formaður Sjálfstæðisfélags Seltirninga, skipar 7. sæti listans. Örn Viðar Skúlason Forsendur fyrir lágu útsvari á Seltjarnarnesi Greitt útsvar á íbúa samkvæmt Árbók sveitarfélaga 2021 Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinuog álagningarprósenta útsvars. Seltjarnarnes 13,7% Garðabær 13,7% Kópavogur 14,48% Reykjavík 14,52% Hafnarfjörður 14,48% Mosfellsbær 14,48% 768.256 745.389 736.921 706.222 703.593 681.486

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.