Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2012, Síða 47

Andvari - 01.01.2012, Síða 47
andvari RÓBERT ABRAHAM OTTÓSSON 45 Þótt allir tónleikar Fílharmóníu undir stjórn Róberts væru stór- viðburðir var einn þó öðrum meiri í þeim skilningi. Níunda sinfónía Beethovens var flutt fimm sinnum fyrir fullu húsi í febrúar 1966. Hér rættist draumur margra og um leið markaði flutningurinn tímamót í íslensku tónlistarlífi. Þegar Jón Leifs viðraði hugmyndir sínar um að flytja Níundu sinfóníuna á Alþingishátíðinni 1930 tók enginn mark á slíkum draumórum. A þeim árum sem síðan voru liðin hafði margt breyst og hröð uppbygging átt sér stað sem stjórnandinn sjálfur átti ekki minnstan heiður af. Nú uppskar hann ávöxt erfiðisins. Jón Þórarinsson var hástemmdur í blaðadómi sínum um flutninginn: „Þá er sú mikla stund upp runnin, að við íslendingar erum orðnir meðeigendur, ásamt öðrum menningarþjóðum heims, að einni mestu gjöf, sem mannkyninu hefur verið gefin: níundu sinfóníu Beethovens.“" Níunda sinfónían var Róberti einkar hjartfólgin. Oðinn til gleðinnar hafði hann sungið ungur að árum í Berlín og hann kunni hvern einasta tón í verkinu öllu; á pallinum í Háskólabíói stjórnaði hann nótnalaus. I hófi sem haldið var í Þjóðleikhúskjallaranum eftir síðustu tónleikana færðu forsvarsmenn Fílharmóníu stjórnanda hennar tónsprota úr silfri, sem á voru grafnar nótur allra radda í kórstefi lokaþáttarins. I þakkar- orðum sínum var stjórnandinn fullur auðmýktar gagnvart hinu mikla meistaraverki. Hann líkti hlutverki sínu við bréfberann sem flutti ungu stúlkunni bréf frá unnusta sínum. Átti hún þá stundum til að kyssa póst- manninn af einskærri gleði, jafnvel þótt hann væri ekki nema boðberi gleðitíðinda.100 Aðeins eitt skyggði á gleðina við flutning þeirrar Níundu. Upphaflega var áformað að nýstofnað Ríkissjónvarp kvikmyndaði einn kafla og sendi út í annál ársins sem „einn mesta merkisviðburð í menn- ingarlífi landsins“ eins og það var orðað. Ekkert varð þó af því vegna deilna um samning milli Sjónvarpsins og Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitarinnar, og var þar meiri hagsmunum fórnað fyrir minni.101 Eftir því sem öðrum verkefnum fjölgaði sást Róbert sjaldnar á stjórnandapalli Sinfóníunnar í Háskólabíói nema þegar Fílharmónía átti hlut að máli. Þó leið vart sá vetur að hann stýrði ekki einhverju meistaraverkinu og oft var um að ræða frumflutning á Islandi. Ödipus konungur eftir Stravinskíj hljómaði í fullri lengd í Háskólabíói síðla árs 1971 í flutningi Sinfóníuhljómsveitarinnar, Karlakórsins Fóstbræðra, einsöngvara og framsögumanns undir stjórn Róberts, og var þá liðinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.