Bændablaðið - 17.11.2022, Page 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
FRÉTTIR
Ísteka:
Minni framleiðsla blóðs
– Yfirlit yfir framleiðslu, frávik og eftirlit við blóðsöfnun árið 2022
Framleiðsla blóðtöku hefur
minnkað töluvert síðan í
fyrra vegna fækkunar bænda
í starfsgreininni. Ástæðan
rekja forsvarsmenn Ísteka
ehf. til birtingar myndbands
dýraverndarsamtakanna AWF,
umfjöllun því tengdu og áhrif þess
á bændur.
Þetta kemur fram í yfirliti
yfir starfsemi Ísteka ehf. á
blóðtökutímabilinu árið 2022.
Starfsstöðvar voru 90 talsins og
hafði fækkað um 30 bú síðan í fyrra.
Alls voru 4.141 tæk í blóðsöfnun
en heildarfjöldi hryssna í stóðum
bænda var 4.779. Rúmur helmingur
blóðtökuhryssna gaf blóð sjö eða
átta sinnum og er hlutfall hryssna
sem gefur hámarksmagn miðað
við reglugerð hærra en meðaltal á
viðmiðunartímabili fyrirtækisins.
Afurðaverð hækkaði
Í yfirlitinu kemur fram að nýtt
greiðslukerfi til bænda hafi orðið til
þess að vægi þeirra hryssna sem best
gáfu af sér var aukið en þar að auki
var grunntaxti blóðeininga hækkaður
um 8%. Með þessu hækkaði
andvirði blóðs hjá meðalgóðri
framleiðsluhryssu úr 70.000 kr. í
95.000 kr. og er fullyrt að afurðaverð
hafi hækkað að jafnaði um 35,7%
milli ára.
Einnig kemur fram að
eftirlitsdýralæknar Ísteka hafi
heimsótt yfir 90% starfsstöðva
á blóðtökutímabilinu. Þá hafi
forsvarsmenn fyrirtækisins haft af
því spurnir að MAST hafi heimsótt
alla aðila á tímabilinu auk þess sem
eftirlitsaðilar á vegum erlendra
kaupenda lyfjaefnanna hafi heimsótt
meirihluta bænda.
Lýsa furðu á framkomu AWF
Í yfirlitinu eru ástæður
framleiðsluminnkunar raktar til
áhrifa af birtingu myndbands
dýraverndarsamtakanna AWF, sem
höfðu þau áhrif á bændur að þeir
upplifðu sig jaðarsetta. „Því miður
tókst samtökunum það ætlunarverk
sitt grátlega vel, að sannfæra margt
fólk og samtök með rakalausum
fullyrðingum sem þau heimfærðu
á atvinnugreinina í heild“, segir í
fréttatilkynningu Ísteka. Þá var
ástæða samdráttarins einnig rakin til
erfiðrar mönnunar í hópi dýralækna
en þó hafi verið komið í veg fyrir
tjón með „lipurð annarra dýralækna
og ráðningu erlendra dýralækna“.
Segir enn fremur að bændur
hefðu orðið varir við fulltrúa AWF
í nágrenni 15 bæja. Segir að Ísteka
hafi hafnað viðtali við þau og lýsi
þau mikilli furðu á framkomu og
verklagi hópsins sem hefði t.a.m
verið ágengur gagnvart bændum.
„Markmiðið virðist beinlínis
hafa verið að skapa þessar ógnandi
aðstæður til að ná viðbrögðum
bænda á filmu. Ísteka gerir ráð
fyrir að efnið verði birt á næstu
mánuðum í einhverju formi. Tekið
skal fram að enginn varð var við
faldar myndavélar í nágrenni sínu,
hvort sem er á bæjarhlöðum eða
við blóðtökur. Tíminn mun leiða í
ljós hvort þær voru til staðar eða
ekki. Vitað er að samtökin hafa um
langt skeið haft mikinn áhuga á þeim
bæjum þar sem Ísteka heldur sín stóð
til að ná þar í efni enda telja þau
áhrifin af því vera mun sterkari en
upptökur frá bæjum almennt. Ekki
fundust neinar faldar upptökuvélar
í sumar en fyrrgreint upptökuteymi
sást þó við einn þeirra og virtust þar
vera að taka viðtöl við sig sjálf.“
Um fjörutíu endurtekin frávik
Samkvæmt reglugerð nr. 90/2022
um blóðtöku úr fylfullum hryssum
ber að skrá öll frávik sem verða
við blóðtöku, þar með talið tilvik
um áberandi ótta eða streitu hjá
merunum. Í yfirliti Ísteka segir að
erfitt kunni að vera að skilgreina
nákvæmlega hvað telst eiginlegt
frávik en ákvörðun hafi verið tekin
um að skrá frekar meira en minna.
„Af um 24.000 blóðtökum voru
skráð frávik í 391 tilviki (1,6%).
Langflest tilvik voru skráð vegna
hryssna sem sýndu einkenni túlkuð
sem ótti eða streita. Yfirgnæfandi
meirihluti þeirra (90% tilvikanna)
jafnaði sig (róaðist) strax eða meðan
á dvöl í bás stóð. Endurtekin frávik
voru skráð hjá 41 hryssu og er
það eindregin ráðlegging Ísteka
að eigendur þeirra íhugi vel hvort
þær eigi heima í þessu hlutverki til
frambúðar,“ segir í yfirlitinu.
Skráð slys voru fimm hjá hryssum
og eitt hjá folaldi og afföll hryssna
voru sjö talsins. „Þá voru á tímabilinu
skráð tilvik sem kallast „ofbeiting
valds“ í skráningarforminu teljandi
á fingrum annarrar handar sem er
samt of mikið. Að mati Ísteka er
mjög nauðsynlegt að allir sem koma
að vinnu við blóðtöku missi ekki
sjónar á hlutverki sínu og leggi ávallt
höfuðáherslu á velferð og nærgætni
í umgengni sinni við hryssurnar.
Þetta á að sjálfsögðu við í hvaða
búfjárhaldi sem er,“ segir enn fremur
í yfirlitinu.
Staðfest var að einn hundur hafi
haft neikvæð áhrif á hryssur og segir
að framvegis muni Ísteka gera þá
kröfu að dýralæknar hefji ekki
blóðtökur séu hundar nærstaddir.
Hryssur á vegum Ísteka
Fyrirtækið sjálft hélt 280 hryssur
í fjórum hópum í sumar, sem
fyrirtækið segir telja tæp 6% af
heildarfjölda hryssna. Í yfirlitinu eru
helstu frávik í þeim hópi talin upp.
Þar með talið var of mikill hófvöxtur
hjá nokkrum hryssum, hryssa sem
lét folaldi sem þurfti að aflífa,
mertryppi sem kastaði folaldi og
tilfelli endurtekinna hegðunarfrávika
sem urðu til þess að nokkrar hryssur
voru teknar úr hópunum.
Í niðurlagi yfirlitsins segir að
hrossabúskapur til framleiðslu blóðs
til lyfjaframleiðslu og folaldakjöts
sé eðlislíkur öðrum búskap að flestu
leyti.
„Frávik, slys og afföll verða
vissulega í þessari starfsemi eins og
annarri en þau eru fá miðað við það
sem þekkist úr öðrum rekstri. Það
ber því þessu fallega en oft misskilda
búskaparformi vel söguna, búskap
sem getur hentað mun fleirum en nú
þegar stunda hann. Markmiðið og
stöðug vinna Ísteka er að skerpa sem
kostur er á öllum verkferlum til að
lágmarka frávik af hvaða tagi sem er,
búskapnum í heild til framdráttar.“
/ghp
Blóðtaka á Álftarhóli í Austur-Landeyjum. Alls var tekið blóð í um 24.000 skipti á árinu. Fjöldi blóðtökuhryssna var
4.141 á 90 starfsstöðvum. Mynd /ghp
Arnþór Guðlaugsson, framkvæmda-
stjóri Ísteka.
Greiðslumark:
Um 70 bú munu ekki ná
að fylla mjólkurkvótann
Miðað við tölur í byrjun október
stefnir í að 68 bú muni ekki
fullnýta framleiðslurétt sinn.
Á fyrsta haustfundi naut gripa-
bænda BÍ 10. nóvember sl. kom
fram að ekki öll kúabú muni
framleiða jafnmikla mjólk og
greiðslumark þeirra er. Þetta er byggt
á tölum matvælaráðuneytisins eftir
uppgjör í lok október. Miðað við
meðalframleiðslu í nóvember og
desember má gera ráð fyrir að þetta
verði 68 bú.
Þessar tölur eru góðar í
samanburði við árið 2021, þar
sem 220 kúabú fullnýttu ekki
greiðslumarkið sitt. Stærstur hluti
þeirra búa, eða 136, var einum til
20.000 lítrum frá markinu og 60
bú vantaði 20–50 þúsund lítra upp
á sett takmark. Athygli vekur að
sex bú sátu á algjörlega ónýttum
framleiðslurétti árið 2021.
Heildarframleiðslan yfir landið
allt stefnir þó í að vera nokkuð
nálægt heildargreiðslumarki ársins
2022. Miðað við tölur eftir uppgjörið
í október voru 22,3 milljón lítrar
ómjólkaðir af 146.500.000 sem
stefnt er að. /ÁL
Allt stefnir í að 68 bú muni ekki skila inn innleggi fyrir öllum sínum kvóta.
Dýravelferð:
Búfé fjarlægt frá
Nýjabæ 2
Með aðstoð Lögreglu á Vesturlandi
hefur Mast fjarlægt alla nautgripi
af bænum Nýjabæ 2 í Borgarfirði
vegna umhirðuleysis. Hvorki um
harðýðgi né svelti að ræða að sögn
yfirdýralæknis.
Búið er að fjarlægja alla nautgripi
af Nýjabæ í Borgarfirði. Áður var
búið að fjarlægja sauðfé. Nær öllum
kvígum og kúm var ráðstafað til lífs
en nautum var slátrað.
Sigurborg Daðadóttir, yfir-
dýra læknir hjá Mast, segir að
samfélagsmiðlar hafi farið mikinn í
þessu máli og margar staðhæfingar
sem settar hafa verið fram rangar.
„Við hjá Mast höfum reynt að
leiðrétta rangar fullyrðingar en þar
sem við megum ekki tjá okkur um
einstök mál er það erfitt.“
Hvorki harðýðgi né svelti
„Ástæða vörslusviptingarinnar er
hvorki harðýðgi né svelti heldur er
hér á ferðinni
a l m e n n t
umhyggju- og
umhirðuleysi,
s v o s e m
vanfóðrun sem
er annað en
svelti.
Dýrin hafa
ekki fengið
að njóta þess
aðbúnaðar og
réttinda sem þeim ber og á að vera
tryggð samkvæmt lögum.“
Að sögn Sigurborgar hefur komið
fram í fjölmiðlum að gripirnir hafi
verið fóður- og vatnslausir í lengri
tíma en það sé rangt.
„Ástæðan fyrir aðgerðum Mast
er fyrst og fremst vegna þess að
fullreynt er að ná fram fullnægjandi
úrbótum með vægari aðgerðum og
sýnt þykir að vöntun er á hæfni og
getu ábúenda til að halda búfé.“
/VH
Sigurborg
Daðadóttir.