Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
LÍF&STARF
Seyðisfjörður:
Vinna með bilið milli
manns og lands
– Tvöföldun á nemendum og starfsmönnum LungA skólans
Ný námsbraut sem ber yfir-
skriftina Land verður í boði í
LungA skólanum á Seyðisfirði
frá og með næsta hausti.
Undirbúningur við að setja
brautina saman stendur nú sem hæst,
en mánaðarlangri prufuönn verður
ýtt úr vör í janúar næstkomandi.
Hilmar Guðjónsson, einn af
kennslustjórum námsbrautarinnar,
segir að Seyðisfjörður í heild sinni
sé uppspretta brautarinnar, Land, en
sjónum verði beint að því hvað þar
megi finna, hvað hægt er að borða
af því sem finnst í firðinum auk þess
sem farið verði yfir þætti eins og
hvernig hægt sé að geyma matinn,
á hvern hátt hægt sé að lesa landið,
hvernig hægt er að ferðast sporlaust
um það.
Auðmýkt fyrir uppruna
hefur dofnað
„Við sökkvum okkur ofan í allt
sem viðkemur landinu og reynum
að hugsa hlutina upp á nýtt, skoða
þá frá öðru sjónarhorni. Ætlunin
er að reyna að þróa eins konar
tilfinningu fyrir því hvernig er að
tilheyra náttúrunni, landinu okkar og
að fara vel með það,“ segir Hilmar.
„Það er ákveðin tilgáta okkar sem
standa að skólanum, að með hraða
samfélagsins og auðveldu aðgengi
okkar að nánast hverju sem hugurinn
girnist, hafi ákveðin virðing eða
auðmýkt fyrir uppruna og tilurð
dofnað. Innan þessarar tilgátu viljum
við vinna með bilið milli mannsins
og landsins, spyrja okkur spurninga
eins og; hvað er innan áhrifahrings
okkar og innan hvaða áhrifahrings
stöndum við? Hvað er að lifa með
landinu en ekki bara á því?“ segir
Hilmar.
Námið á námsbrautinni er byggt
upp m.a. á mikilli útiveru, farið
verður vítt um fjörðinn og upp til
fjalla. Safnað verður saman ýmsu
því sem hægt er að nýta til matar og
verka, bæði á landi og sjó.
Landið er fjársjóðskista
„Við munum horfa nær okkur en
ella og bjóða til okkar sérfróðum
leiðbeinendum til að kenna okkur
á möguleika nærumhverfisins.
Hvaða tækifæri eru fólgin í t.d.
melgresi, þangi og þara, rótum og
roði. Við viljum að þátttakendur
námsbrautarinnar hafi prufað á
eigin skinni hvernig það er að
verka hráefnin sem leynast allt í
kring. Landið er fjársjóðskista og
í þessari nýju námsbraut ætlum við
að læra hvernig við umgöngumst
hana og stuðla að því að þessi
fjársjóður verði aðgengilegur fyrir
komandi kynslóðir,“ segir Hilmar.
Umsóknir eru þegar farnar að berast
svo áhugi fyrir nýju námsbrautinni
er greinilega fyrir hendi.
Allt að tvöfaldast
Alls verða tuttugu nemendur
teknir inn í hvern hóp, en LungA
hefur nokkur undanfarin ár boðið
upp á nám sem er listatengt og
er fyrirkomulag skólans í anda
lýðskóla. Þegar nýrri námsbraut
verður bætt við næsta haust verða
því um 40 nemendur við nám í
skólanum á hverri önn. Nú eru
starfsmenn sex talsins í hlutastörfum
en verða helmingi fleiri. „Það er allt
að tvöfaldast hjá okkur, umsvifin
að aukast og mikill hugur í fólki
að standa sem best að þessu svo
upplifun og hagur allra verði sem
bestur,“ segir Hilmar.
LungA hafði endurbyggt gamla
netagerð er skólinn fékk að gjöf
frá Síldarvinnslunni fyrir nokkrum
árum, en netagerðin hefur hýst alla
helstu starfsemi skólans síðan.
En í ljósi lærdóms af aurskriðunum
sem féllu síðla árs 2020 liggur
þó fyrir að ekki er forsvaranlegt
að starfrækja skóla í nýuppgerðu
húsinu vegna skriðuhættu. „Það
var ákveðið bakslag vissulega, en
við erum að skoða hvernig hægt er
að bregðast við, það er mikill áhugi
hér og metnaður fyrir að standa sem
allra best að málum og bjóða upp á
aðstöðu eins og best verður á kosið,
og nýtt húsnæði er nauðsynlegt,“
segir Hilmar. /MÞÞ
Seyðisfjörður í heild sinni er uppspretta brautarinnar sem ber heitið Land, en sjónum verði beint að því hvað þar
megi finna, hvað hægt er að borða af því sem finnst í firðinum. Myndir / Aðsend
Hilmar Guðjónsson, einn af
kennslustjórum nýrrar námsbrautar
við LungA skólann á Seyðisfirði.
Námið er byggt upp á mikilli útiveru, farið verður vítt um fjörðinn og upp
til fjalla. Safnað verður saman ýmsu því sem hægt er að nýta til matar og
verka, bæði á landi og sjó.
Fyrir utan einbýlishús skammt
frá Laugardalslauginni stendur
traktorsgrafa sem er orðin
að kennileiti. Þessi grafa er
af gerðinni JCB 3D II og var
framleidd árið 1979. Hannes
Rútsson hefur átt hana frá því
árið 1993 og hefur haldið henni
í góðu ástandi alla tíð.
Þegar þessi grafa var seld ný fór
Globus hf. með umboðið fyrir JCB
vinnuvélar. Fyrsti eigandi þessa
eintaks var verktakafyrirtækið
Vélgrafan ehf. á Selfossi. Þorsteinn
Bjarnason, einn af þremur
stofnendum þess fyrirtækis,
man lauslega eftir þessari JCB
gröfu. Helstu verkefni hennar
voru skurðgröftur fyrir raf- og
hitaveiturnar á Selfossi. Þar sem
fyrirtækið átti margar vélar man
hann ekki hver eignaðist þessa
tilteknu gröfu þegar þeir seldu
hana.
Sveinbjörn Jóhannsson, bóndi
á Snorrastöðum við Laugarvatn,
var á tímabili eigandi gröfunnar.
Sonur hans, Jóhann Reynir,
man ágætlega eftir þessari vél
og segir hann að hún hafi verið
á Snorrastöðum í nokkur ár. Eitt
helsta verkefni hennar þegar hún
var í eigu Sveinbjörns var að moka
möl úr á, sem var notuð sem efni
í vegi í sumarbústaðalöndum í
nágrenninu. Líklegt verður að
teljast að Sveinbjörn hafi keypt
vélina af Vélgröfunni og þar með
verið annar eigandi gröfunnar, þó
það sé ekki alveg staðfest.
Setti nýtt ökumannshús
Þegar Hannes keypti vélina árið
1993 var hún í eigu Sveinbjarnar,
en þá var kominn tími á nokkra
yfirhalningu. Ári eftir að hann
eignaðist gröfuna pantaði Hannes
nýtt ökumannshús í gegnum
Globus hf. Alla þá næstum þrjá
áratugi sem Hannes hefur verið
eigandi gröfunnar hefur hann
passað upp á að halda henni í góðu
ástandi. Allt virkar eins og það á að
virka og myndi hún rjúka í gegnum
skoðun samkvæmt Hannesi.
Á þessum árum starfaði
Hannes við jarðvinnu á höfuð-
borgarsvæðinu og var grafan keypt
til að sinna verkefnum því tengdu.
Hann hefur átt fleiri vinnuvélar, og
þar af tvær frá JCB, en er þetta sú
eina sem hann á enn þá. Aðspurður
um kosti grafanna frá þessum
framleiðanda, þá segir Hannes að
þær séu mun skemmtilegri en vélar
frá öðrum merkjum sem algeng
voru á þessum árum, eins og Case.
Þessi tiltekna vél er „gamlingi“
eins og Hannes orðar það. Öllu
er stjórnað með gamaldags
vökvastöngum og er nær ekkert
rafmagn sem kemur við sögu.
Þar að auki er hún ekki útbúin
framhjóladrifi. Þrátt fyrir þetta
hefur hún reynst Hannesi vel, enda
er hún mjög sterkbyggð.
Ekki í reglulegri vinnu í 15 ár
Undanfarin 15 ár hefur vélin ekki
verið í reglulegri vinnu. Síðasta
stóra verkið hennar var mokstur á
lóðinni í kringum einbýlishúsið þar
sem Hannes býr. Að öðru leyti er
hún ekkert notuð nema til að moka
snjó rétt í kringum heimilið.
„Ég verð einhvers staðar að
hafa þetta grey,“ segir Hannes
aðspurður um ástæðu þess af
hverju svona vel með farin 43 ára
gömul traktorsgrafa er geymd við
einbýlishús í íbúðahverfi. Hann
stefnir þó að því að koma henni
norður á Siglufjörð þar sem hann
hefur aðstöðu til að geyma vélina.
Skemmdist í sprengju
Skammt frá heimili Hannesar
er stórt bílastæði sem fylgir
Laugardalsvellinum. Núna
forðast hann að geyma gröfuna
þar eftir að spellvirki voru unnin
á henni þar á gamlárskvöld 2019.
Í kringum miðnætti heyrði hann
sprengjuhvell sem var hærri en
eðlilegt var. Hannes leit þá út um
gluggann og sá hvar grafan stóð
í björtu báli, en þá hafði hópur
ungmenna komið sprengju fyrir
inni í ökumannshúsinu. Með
snöggu viðbragði náði hann að
slökkva eldinn, en tjónið var
umtalsvert. Í kjölfarið þurfti
Hannes að endurnýja allar
rúður og klæðningar í húsinu og
endurnýja hluta af rafkerfinu.
Ýmsir hafa sýnt vélinni áhuga
í gegnum tíðina og óskað eftir að
kaupa hana. Enginn þeirra hefur
þó boðið Hannesi fjárupphæð sem
hann hefur sætt sig við.
/ÁL
Grafan í Laugardalnum
Síðasta stóra verkið sem Hannes vann á vélinni var endurnýjun
lóðarinnar á heimili sínu. Mynd / Aðsend
Hannes Rútsson hefur átt þessa JCB traktorsgröfu í næstum þrjá áratugi.
Alla tíð hefur hann haldið henni vel við og vekur hún athygli þar sem hún
er yfirleitt á áberandi stað við Reykjaveginn í Laugardal. Mynd / ÁL
SAGA VÉLAR