Bændablaðið - 17.11.2022, Side 40

Bændablaðið - 17.11.2022, Side 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022 LÍF&STARF Falco rusticolus: Sá sem býr í sveitinni – Daníel Bergmann sat við fyrsta fálkahreiðrið sumarið 2000 Fálkinn er stærsti og að margra mati glæsilegasti fulltrúi fálka- ættarinnar og sú fálka tegund sem lifir nyrst á jörðinni. Hann lifir í löndunum allt umhverfis Norðurpólinn og þótt á Íslandi sé ekki nema um 5% af heildarstofninum þá er hvergi jafnlíklegt og aðgengilegt að sjá fálka og einmitt hér á landi. Daníel Bergmann náttúru- ljósmyndari sendi nýlega frá sér afar glæsilega og fróðlega bók um fálkann. „Hugmyndin að gera bókina kviknaði fljótt eftir að hafa setið fyrst við fálkahreiður sumarið 2000. Eftir það byrjaði ég að safna myndum og efni í bók. Ég ákvað snemma að birta sem minnst af fálkamyndunum sem hafa orðið til í gegnum árin því mig langaði að þær kæmu fyrst fram sem hluti af því heildarverki sem bókin er.“ Tók lengri tíma en til stóð Að sögn Daníels var ætlunin að ljúka verkinu á skemmri tíma en það hefur tekið. Elstu myndirnar í bókinni eru frá sumrinu 2000 og þær nýjustu frá vorinu 2022. Myndirnar eru því teknar yfir tæplega 23 ára tímabil og fyrir vikið eru efnistökin afar fjölbreytt og veita einstaka sýn í líf fálkans á öllum tímum árs. Saga og framtíð Auk glæsilegra mynda er mikinn fróðleik að finna um fálkann í bókinni þar sem segir meðal annars frá líf- og vistfræði fálkans, lífi fálka á Íslandi, uppeldi unga, hvítum fálkum og spáð í framtíð hans. Auk þess sem sagðar eru sögur af fálkum. Þar segir að víða annars staðar, líkt og á Grænlandi og í Kanada, verpa fálkar á mjög afskekktum svæðum og miklar vegalengdir eru á milli óðala. Á Íslandi má stundum finna fálka verpandi í gljúfrum eða giljum skammt frá sveitabæjum eða akvegum. „Búsvæði fálkans á Íslandi eru mjög í takt við fræðiheiti tegundarinnar, Falco rusticolus, sem merkir á latínu; sá sem býr í sveitinni.“ Ókrýndur þjóðarfugl „Fálkinn er í mínum huga ókrýndur þjóðarfugl Íslendinga og það væri mikill missir af honum úr íslenskri náttúru. Rjúpan er meginbráð fálkans, án hennar getur hann ekki verið, en rjúpan er einnig okkar helsta veiðibráð og ef gengið yrði of nærri rjúpnastofninum þá hefur það jafnframt mikil áhrif á fjölda fálka. Fálkum hefur fækkað töluvert undanfarna áratugi, í takt við fækkun rjúpna, og við sjáum ekki lengur þessa stóru toppa í rjúpnastofninum sem sögur fara af á fyrstu áratugum 20. aldar. Með því fyrirkomulagi sem nú ríkir um rjúpnaveiðar, ásamt áframhaldandi sölubanni, þá hefur náðst nokkur sátt um veiðarnar og rjúpnastofninn virðist þola þá ásókn sem nú er stunduð. Við þurfum þó að halda áfram að huga vel að rjúpunni og þá jafnframt fálkanum því ég held að það vilji enginn missa þessar fuglategundir úr náttúru Íslands,“ segir Daníel. Parið í Mývatnssveit og fleiri fálkar Fálkapar sem varp í Mývatnssveit í rúman áratug leikur lykilhlutverk í bókinni og saga þess rakin og hún er um margt einstök, auk þess sem fjöldi annarra fálka kemur við sögu. Í bókinni eru myndir af þrjátíu mismunandi einstaklingum og nokkrum ófleygum ungum að auki. „Áður en ég hóf að ljósmynda fálka höfðu nokkrir erlendir og íslenskir ljósmyndarar myndað við fálkahreiður að sumarlagi. Ég áttaði mig fljótt á því að ef ég ætlaði að gera fálkanum skil í myndum yrði myndefnið að vera fjölbreytt. Sýna þyrfti ólíka þætti í tilveru fuglanna og ná yfir allar árstíðir, ekki síst veturinn. Þetta kallaði á mikla yfirlegu og nokkur ár í röð dvaldi ég tvær til þrjár vikur í senn á fálkaslóðum á Norðausturlandi að vetrarlagi. Á hverju ári náðust ekki nema nokkrar ásættanlegar myndir en smám saman urðu þær fleiri eftir því sem árin liðu, allt þar til að mér fannst vera komið efni til að setja saman bók.“ Gefur sjálfur út Daníel gefur bókina út sjálfur og það má nálgast hana á www. gyrfalcon.is. Auk þess sem myndir úr henni verða til sýnis í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur til 29. janúar. Daníel Bergmann náttúru ljósmyndari. Fálkar lifa í löndunum allt umhverfis Norðurpólinn og um 5% af heildar- stofninum á Íslandi. Myndir Daníel Bergmann Fálkinn Jókasta í sterkum mótvindi. Myndir / Daníel Bergmann Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is á bbl.is og líka á Facebook og Instagram Frá Bændasamtökum Íslands: Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni. Fagráð í hrossarækt Bændahöllinni v/Hagatorg 107 Reykjavík. Fagráð í hrossarækt. Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar. Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í desember 2022. Nánari upplýsingar fást hjá Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins (elsa@rml.is). Frestur til að skila inn umsóknum er til 5. desember 2022 og skal umsóknum skilað til:

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.