Bændablaðið - 17.11.2022, Page 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
og myndað átusár. Stærð sársins fer
eftir því hversu mikið sveppurinn
vex meðan tréð er í vetrardvala og
ná sárin sjaldnast hringinn í kringum
stofninn. Gróhirslur sveppsins, sem
hérlendis hefur aðeins fundist á
vankynja stigi sínu, eru litlar svartar
bólur um 0,3 til 0,5 millimetrar í
þvermál. Gróhirslurnar eru nokkurra
hólfa og með þykkan vegg að
ofanverðu, myndast í berkinum og
lyfta honum upp og brjótast upp á
yfirborðið er þær ná þroska. Svo
virðist sem tjón af völdum þinátu
sé vaxandi hér á landi.
Sjúkdómar í lauftrjám
Í máli Halldórs kom fram að birki
hafi vaxið á Íslandi frá lokum ísaldar
og á þeim tíma safnað á sig mörgum
tegundum skaðvalda, en einnig haft
tíma til að aðlagast þeim að einhverju
leyti en að á sama tíma sé það
viðkvæmt fyrir nýjum óværum sem
eru að berast til landsins og leggist
á það.
Nornavendir, Taphrina betulina,
orsakast af asksvepp sem lifir í
sprotum og brumum birkitrjáa
og veldur því að fjöldi smásprota
myndast. Á nokkrum árum
myndast greinavöndur, svonefndur
nornavöndur. Blöð á sýktum sprotum
eru ljós og oft krumpuð, en neðan á
þeim myndast gró sveppsins, askgró.
Mest ber á nornavöndum á gömlum
trjám og þá einkum að vetrinum.
Sjúkdómurinn er tiltölulega meinlaus
fyrir trén og breiðist lítið út. Ung
tré geta þó liðið meira fyrir þennan
sjúkdóm en þau eldri. Oft visna sýkt
blöð, og kal er algengt í sýktum
sprotum. Nornavöndur að sumri eru
ekki það vandamál að þeir réttlæti
dýrar aðgerðir. Á litlum trjám er hægt
að klippa þá af, og það er einmitt á
litlum trjám sem þeir gera mestan
skaða.
Á birki hér á landi leggst ein
tegund ryðsvepps, Melampsoridium
betulinum. Sveppurinn er útbreiddur
á norðurhveli og olli verulegu tjóni í
gróðrarstöðvum þegar uppeldið var á
beðum og dregur úr vexti birkiskóga.
Reklasveppur, Taphrina
amentorum, er algengur sjúkdómur
á reklum gráelris. Einkenni hans eru
króklaga útvöxtur úr fræreklunun
og mest af fræinu verður ónýtt. Að
öðru leyti virðist sveppurinn ekki
skaða tréð. Blaðvisnusveppur, T.
tosquinetii, hefur fundist hér á rauðöl
og erlendis á fleiri elritegundum.
Einkenni sýkingar eru að blöð visna
og verpast, en sveppurinn getur
einnig lagst á árssprota. Börkurinn
verður þá þykkur og hrukkóttur
og brum springa seint út og blöðin
verða rauðleit og krumpuð. Sveppur
þessi virðist sjaldgæfur hér enn sem
komið er.
Phytophthora alni er alvarlegur
rótarsjúkdómur á elritegundum.
Á Bretlandseyjum er álitið að
20% elritrjáa séu sýkt af þessum
þörungasvepp. Hann hefur enn ekki
greinst hér en þar sem innflutningur
á elri er ekki bannaður er mikil hætta
á ferðum. Banna þyrfti innflutning á
elritrjám til landsins.
Víðiryð, Melampsora epitea, er
algengt á grávíði og loðvíði og sést
oft á brekkuvíði og leggst einnig
á viðju, hreggstaðavíði og selju.
Líklega þarfnast þessi ryðsveppur
ekki millihýsla til þess að lifa af og
fjölga sér, en önnur gróstig hans hafa
þó fundist á steinbrjótstegundum.
Sumargró og sveppþræðir lifa því
venjulega í brumum víðisins yfir
veturinn og smita ný blöð sumarið
eftir.
Guláta, Godronia fuliginosa,
orsakast af asksvepp sem er
auðþekktur á því, að hann myndar
rauðgula, skífulaga bletti á berki en
í miðri skífunni er svartur blettur
sem inniheldur gróhirslur sveppsins.
Sveppurinn leggst einkum á gulvíði
og brekkuvíði þar sem hann vex í
berki ungra greina og drepur þær.
Tjörublettir, Rhytisma salicinum,
eru algengir svartgljáandi og
upphleyptir blettir sem sjást á eldri
blöðum íslensku víðitegundanna
síðsumars. Sveppurinn sem þessu
veldur, tjörusveppur, veldur litlum
skaða og ástæðulaust að beita neinum
varnaraðgerðum gegn honum.
Asparryð, Melampsora larici-
populina, er útbreitt í Evrópu og
hefur á síðustu árum gert töluverðan
usla í asparækt í Frakklandi og
á Niðurlöndum. Hann fannst hér
fyrst árið 1999 á Suðurlandi.
Lífsferill sveppsins er þannig, að
yfir sumarið lifir hann á ösp og
myndar þar ryðbletti, en ryðið er í
rauninni aragrúi gróa, ryðgró, sem
berast með vindi á aðrar aspir og
mynda þar enn meira ryð sem síðan
dreifir sjúkdómnum enn frekar.
Þegar líður að hausti myndast í
blöðunum dvalagró sem lifa yfir
veturinn í föllnum blöðum. Um vorið
spíra dvalagróin og mynda örsmá
gró sem einungis geta smitað lerki.
Barrnálar lerkisins smitast strax við
laufgun á vorin og á þeim myndast
stig þar sem byrjun á kynæxlun á
sér stað og síðan myndast svonefnd
skálagró sem berast yfir á ösp og
smita hana. Þræðir sveppsins vaxa
síðan í nokkrar vikur inni í blöðum
asparinnar og mynda síðan gróflekki
eða ryð sem brýst út í gegnum
yfirhúðina á neðra borði og lokar
smithringnum.
Asparvendill, Taphrina populina,
fannst fyrst hér á landi um 1990.
Sveppurinn framkallar gulleitar
bólur á laufblöð alaskaaspar síðari
hluta sumars en veldur litlum skaða.
Reyniáta, Cytospora rubescens,
er átusjúkdómur sem algengur er um
allt land, en þó meira áberandi við
ströndina en í innsveitum. Einkenni
sjúkdómsins eru þau að börkur
á greinum dökknar og fellur inn.
Síðar myndast í honum flöskulaga
gróhirslur, sem þó eru huldar af
berkinum að mestu; aðeins efsti
hlutinn með munnanum stendur
upp úr. Gróin spýtast út í rauðum
massa. Algengt er þó að sveppurinn
vaxi í langan tíma án þess að mynda
gróhirslur eða gró og stundum virðist
hann liggja í dvala í berkinum og
byrjar þá fyrst að vaxa þegar greinin
særist eða hana kelur. Klippingu og
sögun verður að vinna að síðvetrar,
á vori eða sumri en ekki á haustin
þegar tréð er í dvala, því þá á það
óhægt um vik að verjast árásum
sveppsins.
Hornryð, Gymnosporangium
cornutum, víxlar á milli einis,
Juniperus sp., og reynis, og er
millihýsill með skálagróstigið.
Skálagróin og skálarvefurinn mynda
útvöxt sem líkist hornum. Ryðgró
finnast á eini, en eru lítt áberandi.
Hér á landi finnst þetta ryð aðeins
þar sem reynir og einir vaxa saman.
Barrviðaráta getur lagst á margar
tegundir barrtrjáa. Á myndinni má
sjá hana á lerki.
Þináta. Tjón af völdum þinátu er
vaxandi hér á landi.
Rekilvendill. Einkenni hans eru
króklaga útvöxtur úr fræreklunun
og mest af fræinu verður ónýtt.
Asparvendill. Framkallar gulleitar bólur á laufblöð alaskaaspar síðari hluta
sumars. Fannst fyrst hér á landi um 1990. Veldur litlum skaða.
Gróhirslur reyniátu. Einkenni
sjúkdómsins eru þau að börkur á
greinum dökknar og fellur inn.
Hornryð. Hér á landi finnst þessi sveppur aðeins þar sem reynir og einir
vaxa saman.
Asparryð. Mestur skaði verður að völdum asparryðs þar sem ösp og lerki
vaxa saman.
Birkiryð. Sveppurinn er útbreiddur á norðurhveli og dregur úr vexti birkiskóga.
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S:551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker 900–1600L
Salt og sanddreifari í tveim
stærðum fyrir stóra pallbíla og
minni vörubíla. Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 380–550L
Salt og sanddreifarari í tveim
stærðum, fyrir minni pallbíla.
Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 600 TR
Rafdrifinn kastdreifari
fyrir dráttarvélar m/öflugum
efnisskömmtunarbúnaði.
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegur í
185–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótönn fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanleg í
165–240 cm breidd.
Hilltip Fjölplógur MVP
Fjölplógur fyrir ameríska
pallbíla t.d. RAM 3500,
GMC 3500 og FORD 350.