Bændablaðið - 17.11.2022, Page 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
Á FAGLEGUM NÓTUM
Fimmtán bú tilnefnd
til ræktunarverðlauna
Stafafura er stórvaxin
trjátegund sem ætti að geta
náð að minnsta kosti þrjátíu
metra hæð hérlendis.
Tegundin hefur ýmsa
kosti sem henta sérlega vel
fyrir nýskógrækt á Íslandi.
Hún auðgar rýrt land og býr í
haginn fyrir næstu kynslóðir
trjáa en gefur líka verðmæti í
formi viðarafurða. Á Suður- og
Vesturlandi er hún eina tiltæka
nytjatrjátegundin sem vex
bærilega í rýru mólendi. Um allt
land er hún sú tegund sem helst
er hægt að rækta á flatlendi þar
sem frosthætta er mikil. Þá er hún
líka vinsælasta íslenska jólatréð.
Stafafura er því mjög mikilvæg
tegund í skógrækt á Íslandi.
Að vaxtarlagi hneigist
stafafura til að verða einstofna
tré en krónan getur verið mjög
misbreið, bæði eftir aðstæðum
og uppruna þess kvæmis sem
notað er hverju sinni. Stafafura
er svokölluð tveggja nála fura
sem þýðir að tvær nálar eru oftast
í knippi en iðulega má þó sjá
þrjár í knippi líka.
Hérlendis hafa verið
reynd kvæmi vítt og breitt af
útbreiðslusvæði stafafuru í
Norður-Ameríku. Mest hafa
verið notuð kvæmi ættuð frá
Skagway í Alaska og nágrenni.
Þau þola betur útivistina hér
en flest önnur og gefa fallegri
jólatré. Bestu innanlandskvæmin
hafa aftur á móti fíngerðari
greinar, eru gjarnan beinvaxnari
og því vænlegri sem timburtré.
Þau eru helst gróðursett í
innsveitum.
Stafafura er ljóselsk tegund
og þarf því góða birtu til að vaxa
úr grasi. Fyrstu árin vex hún
fremur hægt á nýjum svæðum
en nær smám saman allhröðum
vexti. Hún er að miklu leyti
sjálfri sér nóg um næringu enda
í öflugu sambýli við sveppi og
annað jarðvegslíf. Í stálpuðum
furuskógi er gróskan svo mikil
að sjálfsánar furur komast mun
hraðar í góðan vöxt en þær sem
gróðursettar eru sem frumherjar
á rýru landi. Gæta þarf vel að
rótarkerfi stafafuru og best að
hún komist í jörð áður en rætur
ná að vaxa saman í þétt knippi
í plöntubakka eða potti. Best
rótarkerfi hafa því þær plöntur
sem komast fljótt í jörð eða það
sem enn betra er, þær sem vaxa
upp af fræi úti í náttúrunni. Þá
ná trén að skjóta rótum í allar
áttir, verða stöðugri í vindi þegar
þau stækka og minni hætta á
að þau verði völt eða sveigð.
Stafafurur eru viðkvæmar fyrir
snjóbroti þegar blotasnjór sest í
þær, einkum kvæmi með grófar
greinar á borð við Skagway.
Styrkur stafafuru er ekki síst
gott frost- og vindþol. Þó er
furan viðkvæm fyrir saltákomu,
næðingskulda og skaraveðrum
á vetrum sem skemma nálar.
Þegar vorar þorna nálarnar upp
og roðna. Þá geta trén litið mjög
illa út en ná sér yfirleitt aftur á
strik ef brum eru óskemmd.
Stafafura vex sæmilega í rýrum
jarðvegi og framleiðir mikinn
lífmassa. Þá byrjar hún ung að
mynda fræ og er líka fljót að
verða fallegt jólatré. Núorðið er
hún vinsælasta íslenska jólatréð
enda barrheldin, fallega græn og
ilmandi.
Stafafura er réttilega ein
aðaltegundin í íslenskri skógrækt
og ásamt rússalerki ein besta
frumherjategundin á rýru landi.
Hún er góð fóstra fyrir sitkagreni.
Blandskógar furu og grenis hafa
gefið góða raun. Þegar kemur
að endurnýjun skógar má nýta
jarðveginn sem hún hefur bætt
fyrir kröfuharðari trjátegundir
ellegar rækta nýjan og betri
furuskóg á grunni þess gamla.
Nokkuð er talað um ógnir af
sjálfsáningu stafafuru á Íslandi.
Rannsóknir eru gerðar á dreifingu
hennar og eru nú orðnar fastur
liður í reglulegum vísindalegum
úttektum á skóglendi landsins.
Stafafura fellur ekki undir
skilgreiningu íslenskra laga á
ágengum framandi tegundum
og ekkert sem bendir til þess að
útbreiðslan sé óviðráðanleg, né
að furan ógni líffjölbreytni eða
öðrum verðmætum.
Pétur Halldórsson.
Stafafura (Pinus contorta)
Kvenblóm á stafafuru. Myndir / PH
SKÓGRÆKT
Með réttri grisjun stafafuru fæst með tímanum bjartur og fallegur
skógur sem opnar fyrir fjölskrúðugan gróður á skógarbotni.
Á ráðstefnu Fagráðs í hrossarækt
20. nóvember næstkomandi
verður eins og hefðbundið er
yfirferð um hrossaræktarárið,
veittar verða viðurkenningar fyrir
tilnefnd ræktunarbú.
Þá verða bæði hryssur og
stóðhestar sem náðu lágmörkum
verðlauna fyrir afkvæmi eftir
haustútreikninga kynbótamatsins
veitt viðurkenning og Undína
Þorgrímsdóttir kynnir rannsóknar-
niðurstöður sínar um magasár
í hrossum. Þá mun Þorvaldur
Kristjánsson fjalla um kynbótahross
á landsmótum fyrr og nú og í
framhaldi verður haldin vinnustofa
um aðkomu kynbótahrossa á
Landsmótum. Fjallað verður um
spurningar eins og hver sé tilgangur
með þátttöku kynbótahrossa í
Landsmótum, hvernig kynnum
við ræktunarstarfið þar sem best,
hvernig á aðkoma kynbótahrossa að
Landsmótum vera og hver sé kostur
þess að dæma hross á landsmótum
að öllu leyti eða að hluta. Vonandi
sjá sér flestir fært að mæta þann
20. nóvember í Samskipahöllinni í
Spretti en ráðstefnan hefst klukkan
13.
Hvernig fer val á tilnefndum
ræktunarbúum fram?
Þau bú sem Fagráð í hrossarækt
tilnefnir ár hvert til ræktunarbúa
ársins eru reiknuð út frá þeim
hrossum sem koma til fullnaðardóms
á kynbótasýningum auk hrossa sem
ná lágmörkum afkvæmaverðlauna á
árinu. Reglurnar eru skýrar og eru
eftirfarandi:
Varðandi einstaklingssýnd hross
er reglan að aðeins hæsti dómur
hvers grips telji með og skiptir þá
ekki hvar hrossið er sýnt, innanlands
sem utan. Þau bú sem koma til
greina eru bú sem að lágmarki sýna
fjögur hross á árinu og þar af skulu
að lágmarki tvö vera með 8.00 eða
meira í aðaleinkunn. Í framhaldi er
reiknuð aldursleiðrétt aðaleinkunn
og skulu að lágmarki fjögur hross
innan hvers tilnefnds bús hafa átta
eða meira í þeirri einkunn.
Varðandi afkvæmahross sem
hljóta viðurkenningu á árinu telja
þau aukalega til meðaleinkunnar
og fjölda sýndra hrossa. Hvert
afkvæmahross bætir við 0.05
í meðaleinkunn og viðbættur
fjöldi er eitt hross fyrir hverja
heiðursverðlaunahryssu, tvö hross
fyrir hvern fyrstu verðlauna stóðhest
og svo fjögur hross fyrir hvern
heiðursverðlaunastóðhest.
Þá er búum raðað upp eftir
fjölda sýndra hrossa og leiðréttum
aðaleinkunnum. Stig þessara þátta
eru lögð saman fyrir hvert bú og
raðað eftir skori. Fagráð tilnefnir á
hverju ári 12 efstu búin til þessarar
viðurkenningar og þegar það liggur
fyrir hver þessi bú eru, er stigað
og raðað að nýju innbyrðis svo
endanleg röðun náist fram.
Tekið skal fram að sá hrossahópur
sem kemur til álita ár hvert sem
grundvöllur ræktunarbús ársins og
þeirra búa sem tilnefnd eru verður að
hafa sama uppruna (upprunanúmer).
Skráðir ræktendur hrossanna verða
að vera skráðir undir upprunanúmeri
búsins. Undantekning er gerð ef
tengja má saman tvö upprunanúmer
ef viðkomandi ræktendur hafa flust
búferlum eða rækta hross á tveimur
jörðum, enda er um sama (eða
sameiginlegan) rekstur að ræða. Til
að Fagráð geti tekið tillit til þannig
aðstæðna þarf að tilkynna þetta fyrir
1. maí ár hvert.
Auðsholtshjáleiga Gunnar Arnarsson, Kristbjörg Eyvindsdóttir og fjölskylda
Austurás Haukur Baldvinsson, Ragnhildur Loftsdóttir og fjölskylda
Árdalur Ómar Pétursson, Pétur Jónsson og fjölskylda
Fákshólar Jakob Svavar Sigurðsson og Helga Una Björnsdóttir
Garðshorn á Þelamörk Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
Hjarðartún Óskar Eyjólfsson, Bjarni Elvar Pétursson og Kristín Heimisdóttir, Hans Þór Hilmarson og Arnhildur Helgadóttir
Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar Bergur Jónsson og Olil Amble
Lækjamót Sonja Líndal Þórisdóttir, Friðrik Már Sigurðsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Vigdís
Gunnarsdóttir, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Þórir Ísólfsson og Elín Rannveig Líndal
Prestsbæ Inga og Ingar Jenssen
Rauðalækur Guðmundur Friðrik Björgvinsson, Eva Dyröy og Kristján Gunnar Ríkharðsson
Skagaströnd Sveinn Ingi Grímsson, Þorlákur Sigurður Sveinsson
Skipaskagi Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir
Steinnes Magnús Jósefsson, Líney Árnadóttir, Jón Árni Magnússon og Berglind Bjarnadóttirr
Sumarliðabær 2 Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir
Þúfur Gísli Gíslason og Metta Mannseth
Þau bú sem tilnefnd eru til ræktunarverðlauna Bændasamtaka Íslands árið 2022 eru:
Elsa Albertsdóttir
ráðunautur, búfjárræktar- og
þjónustusviði
elsa@rml.is
Sindri frá Hjarðartúni og ræktendur hans gátu glaðst á Landsmóti hestamanna í sumar. Myndir/ghp
Valíant frá Garðshorni á Þelamörk stóð uppi sem hæst dæmdi 4 vetra
stóðhestur Landsmótsins.