Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 1
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 13. árgangur 2022, 1–2
© höfundar 2022. Tengiliður: Margrét Valdimarsdóttir, margretv@unak.is
Vefbirting 16. desember 2021. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Frá ritstjórum
Þrettánda útgáfuár Íslenska þjóðfélagsins – tímarits Félagsfræðingafélags Íslands líður
senn í aldanna skaut. Uppskera ársins var góð og COVID-frestaður en vel heppnaður
Félagsfræðidagur í upphafi árs var tileinkaður tímaritinu. Ritstjórarnir Guðmundur
Oddsson og Margrét Valdimarsdóttir klára fyrsta tveggja ára skipunartíma sinn nú um
áramótin og munu sitja áfram næstu tvö ár. Sóllilja Bjarnadóttir hefur gegnt starfi að-
stoðarritstjóra síðustu tvö ár og mun gera það áfram á nýju ári.
Sjö greinar birtust í þessum árgangi Íslenska þjóðfélagsins. Tímaritinu bárust 10
handrit til umsagnar á árinu. Þremur var hafnað af ritstjórum og sjö fóru í ritrýni. Sem
fyrr eru birtar greinar þessa árs fjölbreyttar. Þær hverfast annars vegar um heilbrigðis-
kerfið og margþætt áhrif COVID-19 faraldursins og hins vegar um menntakerfið með
áherslu á félagslegan bakgrunn og mótun sjálfsins hjá framhaldsskólanemum og skóla-
þjónustu sveitarfélaga (þ.e. stuðningur við nemendur í leik- og grunnskólum og for-
eldra þeirra). Aukinheldur birtist grein um viðhorf ungra kvenna til barneigna sem tekst
á við viðfangsefni á borð við foreldrahlutverk, kynjajafnrétti og fæðingartíðni í víðu
samhengi.
Í fyrstu grein ársins „Óhefðbundin heilbrigðisþjónusta: ,að læðast inn bakdyra-
megin‘“ greinir höfundurinn Sveinn Guðmundsson frá rannsókn sinni á stöðu óhefð-
bundinnar heilbrigðisþjónustu í tengslum við opinbera heilbrigðisþjónustu á Íslandi.
Rannsóknin byggir m.a. á viðtölum við hjúkrunarfræðinga og þátttökuathugunum þar
sem litið er til reynslu hjúkrunarfræðinga af því að vinna með óhefðbundnar eða við-
bótarmeðferðir. Greinin „Vægi fjárhagsþrenginga í áhættu á þunglyndiseinkennum hjá
launafólki á Íslandi á tímum kórónuveirunnar“ eftir Margréti Einarsdóttur, Kolbein
Hólmar Stefánsson og Kristínu Hebu Gísladóttur byggir á spurningalistakönnun sem
lögð var fyrir launafólk sem tilheyrir aðildarfélögum innan ASÍ og BSRB. Niðurstöður
sýna að líkur á þunglyndi aukast eftir því sem félags- og efnahagsleg staða er verri og
benda til verulegs félags- og efnahagslegs ójafnaðar hérlendis í þunglyndiseinkennum
launafólks á tímum COVID-19.
Guðný Björk Eydal, Ingólfur V. Gíslason og Tómas Björn Bjarnason eru einnig á
kórónaslóðum í grein sinni „Breytingar á verkaskipinu á heimili meðal starfandi feðra
og mæðra í fyrstu bylgju COVID-19“. Í rannsókninni sem greinin byggir á eru áhrif
farsóttarinnar á verkaskiptingu starfandi foreldra í sambúð skoðuð hvað varðar um-
önnun, heimilisstörf og samþættingu launavinnu og umönnunarábyrgðar. Í greininni
„Límdu saman heiminn minn: Ábyrgð stjórnvalda á að tryggja börnum og ungmennum
velferðarþjónustu“ eftir Ragný Þóra Guðjohnsen og Telma Tórshamar skoða höfundar
með viðtalsrannsókn sýn ungs fólks sem glímir við vímuefnavanda á eigin neyslu og
velferðarþjónustu sem þeim hefur staðið til boða frá barnsaldri.
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni