Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 2

Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 2
Frá ritstjórum 2 .. Greinin „Skólaþjónusta sveitarfélaga við nemendur og foreldra: Stefna, skipulag og inntak“ eftir Hermínu Gunnþórsdóttur, Rúnar Sigþórsson, Jórunni Elídóttur, Birnu Maríu B. Svanbjörnsdóttur og Sigríði Margréti Sigurðardóttir beinir sjónum að stuðn- ingi við nemendur í leik- og grunnskólum og foreldra þeirra. Rannsóknin byggir á spurningakönnun til skólastjóra leik- og grunnskóla og forsvarsaðila skólaþjónustu, viðtölum við forsvarsaðila skólaþjónustu í fimm tilvikum og greiningu á stefnuskjölum á vefjum sveitarfélaganna. Greinin „Mótun verðuga sjálfsins í menntaskólanum“ eftir Berglindi Rós Magnúsdóttur og Unni Eddu Garðarsdóttur tengist einnig menntakerfinu, nánar tiltekið framhaldsskólanemum. Í rannsókninni greina höfundar þau félagslegu og tilfinningalegu átök sem framhaldsskólanemar upplifa þegar þau ganga í menntaskóla sem þau hafa lært að sé bæði merkilegri og fínni en þeir staðir sem þau hafa fram að því alið manninn á. Rannsóknin byggir á djúpviðtölum við 48 stúdentsefni í framhalds- skólum hérlendis. Að lokum birtist greinin „Manni líður eins og maður sé alltaf að stara í ginið á ljón- inu: Viðhorf ungra kvenna til barneigna“ eftir Sunnu Símonardóttur og Hlédísi Maren Guðmundsdóttur. Í rannsókninni nota höfundar rýnihópa og einstaklingsviðtöl við kon- ur á aldrinum 25 til 30 ára til að greina viðhorf ungra kvenna til barneigna. Niðurstöður benda til þess að ungar konur eigi erfitt með að sjá fyrir sér hvernig þær geti uppfyllt vaxandi kröfur um „ákafa“ mæðrun í samfélagi sem einkennist af lífsgæðakapphlaupi, einstaklingshyggju og yfirvofandi loftslagsvá. Íslenska þjóðfélagið er á góðri siglingu um þessar mundir og finnur ritstjórn fyrir miklum áhuga á tímaritinu. Til stendur að halda málþing á vordögum í tengslum við birtar greinar ársins 2022. Uppfærsla vefsíðu tímaritsins stendur enn yfir en vonir standa til þess að henni ljúki 2023. Ritstjórar hvetja lesendur til að fylgjast vel með uppfærðu tímariti og halda áfram að senda inn handrit. Ritstjórar Íslenska þjóðfélagsins, Guðmundur Oddsson og Margrét Valdimarsdóttir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.