Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Page 2
Frá ritstjórum
2 ..
Greinin „Skólaþjónusta sveitarfélaga við nemendur og foreldra: Stefna, skipulag
og inntak“ eftir Hermínu Gunnþórsdóttur, Rúnar Sigþórsson, Jórunni Elídóttur, Birnu
Maríu B. Svanbjörnsdóttur og Sigríði Margréti Sigurðardóttir beinir sjónum að stuðn-
ingi við nemendur í leik- og grunnskólum og foreldra þeirra. Rannsóknin byggir á
spurningakönnun til skólastjóra leik- og grunnskóla og forsvarsaðila skólaþjónustu,
viðtölum við forsvarsaðila skólaþjónustu í fimm tilvikum og greiningu á stefnuskjölum
á vefjum sveitarfélaganna. Greinin „Mótun verðuga sjálfsins í menntaskólanum“ eftir
Berglindi Rós Magnúsdóttur og Unni Eddu Garðarsdóttur tengist einnig menntakerfinu,
nánar tiltekið framhaldsskólanemum. Í rannsókninni greina höfundar þau félagslegu og
tilfinningalegu átök sem framhaldsskólanemar upplifa þegar þau ganga í menntaskóla
sem þau hafa lært að sé bæði merkilegri og fínni en þeir staðir sem þau hafa fram að
því alið manninn á. Rannsóknin byggir á djúpviðtölum við 48 stúdentsefni í framhalds-
skólum hérlendis.
Að lokum birtist greinin „Manni líður eins og maður sé alltaf að stara í ginið á ljón-
inu: Viðhorf ungra kvenna til barneigna“ eftir Sunnu Símonardóttur og Hlédísi Maren
Guðmundsdóttur. Í rannsókninni nota höfundar rýnihópa og einstaklingsviðtöl við kon-
ur á aldrinum 25 til 30 ára til að greina viðhorf ungra kvenna til barneigna. Niðurstöður
benda til þess að ungar konur eigi erfitt með að sjá fyrir sér hvernig þær geti uppfyllt
vaxandi kröfur um „ákafa“ mæðrun í samfélagi sem einkennist af lífsgæðakapphlaupi,
einstaklingshyggju og yfirvofandi loftslagsvá.
Íslenska þjóðfélagið er á góðri siglingu um þessar mundir og finnur ritstjórn fyrir
miklum áhuga á tímaritinu. Til stendur að halda málþing á vordögum í tengslum við
birtar greinar ársins 2022. Uppfærsla vefsíðu tímaritsins stendur enn yfir en vonir
standa til þess að henni ljúki 2023.
Ritstjórar hvetja lesendur til að fylgjast vel með uppfærðu tímariti og halda áfram
að senda inn handrit.
Ritstjórar Íslenska þjóðfélagsins,
Guðmundur Oddsson og Margrét Valdimarsdóttir.