Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Síða 3
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 13. árgangur 2022, 3–16
© höfundur 2022. Tengiliður: Sveinn Guðmundsson, sveinng@hi.is
Vefbirting 24. mars 2022. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Óhefðbundin heilbrigðisþjónusta
„að læðast inn bakdyramegin“
Sveinn Guðmundsson, doktor í mannfræði
ÚTDRÁTTUR: Í þessari grein verður greint frá rannsókn á stöðu óhefð-
bundinnar heilbrigðisþjónustu í tengslum við opinbera heilbrigðisþjónustu
á Íslandi. Rannsóknin var unnin m.a. með viðtölum við hjúkrunarfræðinga
og þátttökuathugunum þar sem litið er til reynslu hjúkrunarfræðinga af
því að vinna með óhefðbundnar eða viðbótarmeðferðir. Þrátt fyrir skort
á opinberri stefnu um notkun óhefðbundinna og viðbótarmeðferða á heil-
brigðisstofnunum hefur hluti íslenskra heilbrigðisstarfsmanna fundið
þeim stað í starfi sínu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess
að hjúkrunarfræðingarnir í rannsókninni sýni óhefðbundnum og viðbótar-
meðferðum talsverðan áhuga og noti þær á ýmsa vegu. Ef vinnustaður
þeirra er jákvæður í garð meðferðanna reyna sumir hjúkrunarfræðinganna
að beita þeim þar. Ef svo er ekki finnst hjúkrunarfræðingunum þeir þurfa
að leyna áhuga sínum á þeim og/eða vinna á eigin vegum utan heilbrigðis-
kerfisins. Allir viðmælendurnir töldu vanta stefnumótun og rannsóknir
varðandi meðferðirnar og vildu sjá meiri samvinnu milli opinberrar og
óhefðbundinnar heilbrigðisþjónustu. Margt bendir til þess að í dag ríki
hvorki tvíhliða né samþætt kerfi á Íslandi, heldur sé til staðar ákveðið
millibilsástand þar sem samvinna á sér stað á ákveðnum sviðum en ekki
öðrum.
LYKILORÐ: Óhefðbundnar lækningar – Viðbótarmeðferð – Hjúkrun –
Heilbrigðiskerfið – Mannfræði – Heildræn heilsa
ABSTRACT: The aim of this study is to investigate complementary and
alternative health services (CAHS) in relation to official health services
(OHS) in Iceland. For this purpose, interviews and participant observation
to explore nurses’ experience of working with complementary and alter-
native medicine (CAM) were used. Despite the lack of an official policy
on the use of CAM within health institutions, some health professionals
in Iceland have found a place for them in their practice. The respondents
demonstrate a great interest in CAM and use it in various ways. If their
workplace is positive toward CAM therapies, some of them try to practice
it there. If CAM therapies are not positively received, the nurses feel they
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni