Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 14
Óhefðbundin heilbrigðisþjónusta: „að læðast inn bakdyramegin“
14 ..
Hjúkrunarfræðingarnir í rannsókninni eru allir menntaðir í einhverri óhefðbundinni eða viðbótar-
meðferð og hafa trú á því að hún geti hjálpað fólki. Þó er mismunandi hvar þeir finna meðferð-
unum stað. Hluti hjúkrunarfræðinganna notar þær í starfi sínu í formi viðbótarmeðferðar í bland
við önnur úrræði innan heilbrigðiskerfisins. Aðrir nota þær utan heilbrigðiskerfisins og þá e.t.v. sem
óhefðbundna meðferð. Stofnun Fagdeildar um samþætta/viðbótarmeðferð í hjúkrun sýnir að hjúkr-
unarfræðingar eru að skipuleggja og ræða þessi mál opinberlega og vinna þannig að málefnalegri
umræðu um efnið. Sama má segja um hjúkrunarfræðinga sem gera rannsóknir á ákveðnum með-
ferðarformum. Hjúkrunarfræðingarnir í rannsókninni tóku þó fram að varast þurfi öfgar og að hug-
myndin um heildræna sýn á heilsu innihaldi ekki einungis óviðurkennd heilsuúrræði heldur snúist
hugmyndafræðin einmitt um að nota ólíkar aðferðir til að ná sem bestum árangri. Auka þurfi rann-
sóknir á óhefðbundnum meðferðum til að sannreyna gagnsemi þeirra. Varlega þurfi að fara í notkun
meðferðartegunda og lyfja sem geta haft óæskilega milliverkun eða áhrif.
Erfitt er að staðhæfa að á Íslandi í dag sé tvíhliða heilsukerfi eins og Anderson komst að í skýrslu
sinni fyrir embætti landlæknis árið 2000. Þó er samvinnan og samþættingin ekki það mikil að um
samþætt heilsukerfi sé að ræða. Vettvangarnir tveir, opinbera heilbrigðiskerfið og óhefðbundna
heilsuþjónustan, eru byrjaðir að blandast og mörkin á milli þess sem er talið óhefðbundið og hefð-
bundið eru ekki eins skýr og áður. Innleiðing á viðbótarmeðferðum á ýmsum deildum Landspítalans
er gott dæmi um þessa þróun þó enn skorti stefnu um notkun þeirra. Nær væri að segja að Íslendingar
séu mitt á milli þess að búa við tvíhliða og samþætt heilsukerfi. Samþætting á sér stað á einhverjum
stöðum en ekki öðrum og er ekki alltaf formleg eða skilgreind eins og reynsla viðmælendanna sýnir.
Staða hjúkrunarfræðinganna í rannsókninni varpar skýrara ljósi á samspil ríkjandi og óhefðbund-
innar heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Sem heilbrigðisstarfsmenn eru þeir í stöðu til að innleiða óhefð-
bundna hugmyndafræði í ríkjandi hugmyndafræði. Þannig fær óhefðbundin heilbrigðisþjónusta „að
læðast inn bakdyramegin.“
Heimildaskrá
Abbott, Andrew. (1988). The System of Professions: An Essay on the Division of Expert Labour. Chicago: University of
Chicago Press.
Anderson, Robert. (2000). Alternative and Conventional Medicine in Iceland: The diagnosis and treatment of low back
pain. Heilbrigðisskýrslur, Fylgirit 2000 Nr 1. Reykjavík: Landlæknisembættið.
Baer, Hans A. (2002). The Growing Interest of Biomedicine in Complementary and Alternative Medicine: A Critical Per-
spective. Medical Anthropology Quarterly, 16(4), 403-405. https://doi.org/10.1525/maq.2002.16.4.403
Bennett, Tony. (1986). Popular Culture and the “turn to Gramsci”. Í T. Bennett, C. Mercer og J. Woollacott (ritstjórar),
Popular culture and Social Relations (bls. 217-224). Athens: The University of Georgia Press.
Bjarki Ármannsson. (2015, 3. mars). Júlíus Júlíusson tjáir sig: „Ég vildi hjálpa þessum manni.“ Vísir.is, http://www.visir.
is/julius-juliusson- tjair-sig---eg-vildi-hjalpa-thessum-manni-/article/2015150309669
Björg Helgadóttir, Rúnar Vilhjálmsson og Þóra Jenný Gunnarsdóttir. (2010). Notkun óhefðbundinnar heilbrigðisþjónustu
á Íslandi. Læknablaðið, 96(4), 267-273.
Braun, Virginia og Clarke, Victoria. (2013). Successful Qualitative Research: A Practical Guide for Beginners. Los An-
geles: SAGE Publications.
Byrne, Rhonda og Harrington, Paul (framleiðendur) og Heriot, Drew (leikstjóri). (2006). The Secret [kvikmynd]. Mel-
bourne, Australia: Prime Time Productions.
Crotty, Michael. (1998). The Foundations of Social Research: Meaning and Perspective in the Research Process. London:
Sage Publications.
Erlendur Haraldsson. (1978). Þessa heims og annars. Könnun á dulrænni reynslu Íslendinga, trúarviðhorfum og þjóðtrú.
Reykjavík: Bókaforlagið Saga.
Erlendur Haraldsson. (2007). Samanburður á meintri dulrænni reynslu Íslendinga árin 1974 og 2006. Í Gunnar Þór Jó-
hannesson (ritstjóri), Rannsóknir í Félagsvísindum VIII, Department of Social Science. Reykjavík: Félagsvísinda-
stofnun Háskóla Íslands.
Esterberg, Kristin. G. (2002). Qualitative Methods in Social Research. Boston: McGraw Hill.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. (2018, 14. október). Nálastungur í eyru [stöðuuppfærsla]. Facebook. https://www.
facebook.com/hjukrun/posts/10155528010470194/
Foucault, Michel. (1977a). Discipline and Punish: The Birth of the Prison. A. Sheridan þýddi úr frönsku. New York:
Vintage.