Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Síða 33
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 13. árgangur 2022, 33–45
© höfundar 2022. Tengiliður: Margét Einarsdóttir, margrei@hi.is
Vefbirting 31. mars 2022. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Vægi fjárhagsþrenginga í áhættu á
þunglyndiseinkennum hjá launafólki á Íslandi
á tímum kórónuveirunnar
Margrét Einarsdóttir, félagsfræðingur, dr.
Kolbeinn Hólmar Stefánsson, dósent við
félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands
Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu
– rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins
ÚTDRÁTTUR: Erlendar rannsóknarniðurstöður benda til þess að félags-
og efnahagslegur ójöfnuður í geðheilsu hafi aukist í COVID-19 faraldrin-
um. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða tengsl þunglyndiseinkenna
við fjárhagsþrengingar og annan félags- og efnahagslegan ójöfnuð á tím-
um kórónuveirunnar hjá íslensku launafólki sem tilheyrir aðildarfélögum
innan ASÍ og BSRB. Aðferðir: Rannsóknin er þýðisrannsókn sem byggir
á spurningakönnun á stöðu launafólks á Íslandi og var lögð fyrir í árslok
2020. Alls svöruðu 8461 rannsókninni, eða 7,0% þýðisins. Gögnin voru
vigtuð til að þau endurspegli sem best þýðið. Þunglyndiseinkenni voru
sjálfsmetin með PHQ-9 kvarðanum. Spurt var um tvær tegundir fjárhags-
þrenginga, efnislegan skort og að ná endum saman. Niðurstöður byggjast
á einbreytu- og fjölbreytutvíundargreiningum. Niðurstöður sýna að líkur á
þunglyndi aukast eftir því sem félags- og efnahagsleg staða er verri. Þegar
stjórnað er fyrir öðrum félags- og efnahagslegum áhættuþáttum og líkam-
legri heilsu vegur efnislegur skortur þyngst í áhættunni en skýringarmáttur
þess að ná endum saman er minni en bæði líkamlegrar heilsu og aldurs.
Ályktun: Verulegur félags- og efnahagslegur ójöfnuður er hérlendis í
þunglyndiseinkennum launafólks á tímum COVID-19. Aðgerðir stjórn-
valda til að tryggja afkomu og lífkjör fólks í COVID-kreppunni gengu of
skammt. Stjórnvöld þurfa ávallt og óháð efnahagsástandi að tryggja öllum
framfærslu sem dugir fyrir lágmarksneysluviðmiðum.
LYKILORÐ: Geðheilsa – fjárhagsþrengingar – COVID-19
ABSTRACT: There are indications that socioeconomic inequality in
mental health has intensified during the COVID-19 pandemic. However,
information from Iceland is lacking. The aim of this research is to examine
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni