Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Blaðsíða 38
Vægi fjárhagsþrenginga í áhættu á þunglyndiseinkennum hjá launafólki á Íslandi á tímum kórónuveirunnar
38 ..
Kynning á rannsókninni og ítrekun svara var í höndum hvers aðildarfélags fyrir sig. Gögnum var
safnað frá 25. nóvember til 8. desember 2020. Rannsóknin byggði ekki á úrtaki heldur var öllum sem
tilheyrðu þýði rannsóknarinnar, það er öllu félagsfólki allra aðildarfélaga innan ASÍ og BSRB, boðið
að taka þátt. Alls svöruðu 8.461 af 118.530 félagsmönnum könnuninni og svarhlutfall því 7,0%. Til
að leiðrétta fyrir skekkjum sem gætu leitt af lágu svarhlutfalli voru aðildarfélögin flokkuð saman
eftir skyldleika í 11 starfsgreinaflokka og gögnin vigtuð eftir svörun innan hvers starfsgreinaflokks
fyrir sig. Það er þó ekki hægt að útiloka að nokkur munur sé innan tiltekinnar starfsgreinar á þeim
einstaklingum sem svara og þeim sem svara ekki. Þar sem markmið greinarinnar er ekki að meta
umfang þunglyndiseinkenna í þýðinu heldur að skoða sambandið á milli heilsu og fjárhagsþrenginga
eru niðurstöðurnar engu að síður upplýsandi.
Þunglyndiseinkenni voru mæld á PHQ-9 kvarðanum (Kroenke o.fl., 2001) en kvarðinn hefur
verið þýddur á íslensku (Andri Steinþór Björnsson o.fl., 2019). Kvarðinn er einfaldur sjálfsmatskv-
arði sem metur níu einkenni þunglyndis:
1) Lítill áhugi eða gleði við að gera hluti.
2) Verið niðurdregin/n, dapur/döpur eða vonlaus.
3) Átt erfitt með að sofna eða sofa alla nóttina.
4) Þreyta og orkuleysi.
5) Lystarleysi eða ofát.
6) Líður illa með sjálfa/n þig eða finnst að þér hafi mistekist eða ekki staðið þig
í stykkinu gagnvart sjálfum þér eða fjölskyldu þinni.
7) Erfiðleikar með einbeitingu, til dæmis við að lesa blöðin eða horfa á sjón-
varp.
8) Hreyfir þig eða talar svo hægt að aðrir hafa tekið eftir því – eða hið gagn-
stæða – verið svo eirðarlaus eða óróleg/ur að þú hreyfðir þig miklu meira en
venjulega.
9) Hugsað um að það væri betra að þú værir dáin/n eða hugsað um að skaða þig
á einhvern hátt.
Spurt var hversu oft á síðustu tveimur vikum viðkomandi hafði fundið fyrir hverju einkenni á fjór-
gildum skala (alls ekki/nokkra daga/meira en helming tímans/nánast alla daga). Svörin frá hverjum
svaranda voru síðan lögð saman og gat hver svarandi fengið 0 til 27 stig. Fleiri stig gefa til kynna
alvarlegri þunglyndiseinkenni. Hér eru mörkin á milli þess að vera með þunglyndiseinkenni eða ekki
dregin við 10 stig (sjá töflu 1). Það eru þau mörk sem höfundar kvarðans draga á milli engra eða
lítilla einkenna og miðlungseinkenna en þeir telja að miðlungseinkenni eða meiri bendi til þess að
þörf sé á meðhöndlun (Kroenke o.fl., 2001).
Fjárhagsþrengingar voru mældar með tveimur mælingum sem báðar eru fengnar úr evrópsku
lífskjararannsókninni (Eurostat, e.d.), annars vegar með efnislegum skorti og hins vegar með því
hversu vel eða illa gengur að ná endum saman. Efnislegur skortur er margþættur mælikvarði sem
fangar vel áhrifin á fátækt af eignum og skuldum, hjálp frá öðrum og félagslegum stuðningi sem er í
öðru formi en beinhörðum peningum. Það að ná endum saman mælir hins vegar huglægari upplifun
af fátækt sem vísar til þess eiga ekki fyrir því sem viðkomandi og nærsamfélag hans telja nauðsyn-
legt (Moisio, 2004).
Efnislegur skortur: Spurt var hvort níu staðhæfingar ættu við um heimili svarenda. Svörin voru
lögð saman og þannig búinn til tígildur hlutfallskvarði (sjá töflu 1). Spurt var um eftirfarandi stað-
hæfingar:
1) Vanskil á leigu, húsnæðislánum eða öðrum lánum vegna fjárskorts á síðast-
liðnum 12 mánuðum.
2) Hef ekki efni á að fara árlega í vikulangt frí með fjölskyldu.